Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 177
Viðar]
STARFSSKRÁ VÖKUMANNA
175
Skipulagsreglur Vökumanna.
1. gr. — Vökumenn mynda með sér landssamband, sem heitir
»Vökumenn íslands«, skammstafað V. i.
2. gr. — Vökumenn vilja fyrst og fremst starfa í skólum Jandsins
og út frá þeim.
3. gr. — Félagar í landssambandinu geta verið: a) Vökumanna-
deildir víðsvegar um land. b) Einstaklingar, sem ekki eru í neinni
sérstakri Vökumannadeild.
4. gr. — Hver deild kenni sig við Vöktimenn.
5. gr. — Allir félagar verða að starfa eftir stefnuskrá Vökumanna
og viðurkenna kjörorð þeirra.
6. gr. — Vökumenn skulu hafa sérstakt merki, félagssöng og fána.
7. gr. — Stjórn sambandsins skipa 3 menn, forseti, ritari og gjald-
keri og jafnmargir til vara. Allir stjórnarmenn skulu kosnir sérstak-
lega og gildir kosning þeirra á milli landsmóta sambandsins.
8. gr. — Það er hlutverk sambandsstjórnar að annast forstöðu
sambandsins út á við og inn á við með aðstoð hinna einstöku deilda-
stjórna. Hún kveður saman og stjórnar landsmótum Vökumanna, sér
um útgáfu rita sambandsins og beitir sér fyrir því, að sem bezt sam-
band haldist á milli Vökumanna, hvar sem þeir dvelja á landinu.
9. gr. — Landsmót Vökumanna skal halda a. m. k. annað hvert ár,
nema sambandsstjórn og fulltrúaráð ákveði annað. Skulu landsmótin
auglýst með nægum fyrirvara og eigi fyrr en vegir eru orðnir færir.
Allir Vökumenn hafa rétt til að taka þátt í landsmótum eftir þeim
reglum, sem um það verða settar á hverjum tíma. Sambandsstjórn á-
kveður í hvert skipti, hvar næsta landsmót skuli háð.
10. gr. — Landsmótin hafa æðsta vatd í öllum málefnum Vöku-
manna. Þar skulu teknar ákvarðanir um stefnu þeirra og starfsemi.
Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála á landsmótum.
11. gr. — Hver deild Vökumanna ræður sjálf um stjórn sína, enda
sé hún í fullu samræmi við almennar lýðræðisreglur. Einn stjórnar-
maður hverrar déildar skal vera formaður og vera umboðsmaður
hennar gagnvart sambandsstjórn. Formenn deildanna mynda full-
tiúaráð Vökumanna ásamt stjórn sambandsins. Forseti Vökumanna
er formaður fulltrúaráðs.
12. gr. — Sérhver Vökumaður á rétt til að teljast til þeirrar deild-
ar, sem starfar á dvalarstað hans, enda sé hann ekki nema í einni
deild samtímis. Ennfremur hafa allir Vökumenn gagnkvæman rétt
til þátttöku í öllum samkomum Vökumanna, hvar sem er með fullum
tillögurétti og málfrelsi. Atkvæðisrétt hefur hann aðeins í deild sinni
og svo á landsmótum.