Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 121

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 121
ÞÓRA SIGRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR Að verða að alvöru manni Um Gosa gervikarl og Pál Jónsson blaðamann í þríleik Olafs Jóhanns Sigurðssonar 1 Rithöfundurinn Ólafur Jóhann Sigurðsson (1918-1988) var einhver mikilvirk- asti höfundur Islendinga og lét eftir sig ein 27 verk, ljóð, skáldsögur og smá- sögur. Ólafur Jóhann hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1976, fyrstur íslendinga, fyrir Ijóðabækur sínar Að laufferjum og Að brunnum. Viðamesta verk höfundar er án efa þríleikurinn Gangvirkið, Seiður og hélog og Drekar og smáfuglar en hann er skrifaður og gefinn út á 28 ára tímabili (1955-1983). Þar er á ferðinni þroskasaga Páls Jónssonar, sveitadrengs og síðar blaðamanns. í þessu 1250 síðna verki er vakin tilfinning fyrir íslensku samfélagi á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar, en sagan gerist að mestu leyti á árunum 1939-1949. Tímasetningar og atburðir sögunnar eru í samræmi við íslandssöguna og er verkið uppgjör höfundar og sögumanns við þetta tímabil og jafnframt viðamesta bókmenntaverkið sem hefur komið út um það á íslandi. A sögutímanum verða örlagaríkar breytingar í lífi aðalpersónu og um leið miklir umbrotatímar í þjóðfélaginu í heild. Höfundur lýsir tíma- bilinu og persónum sínum af næmi og kímni. Þríleikurinn er fyrst og fremst þroskasaga í margvíslegum skilningi og afburða góð samtímalýsing. Sagan segir í stuttu máli frá Páli Jónssyni frá Djúpafirði sem hefur alist upp hjá ömmu sinni en flyst til Reykjavíkur þegar hann hefur einn um tvítugt og lýkur sögunni þegar hann stendur á þrítugu. Páll flyst til höfuðstaðarins með þá drauma í farteskinu að verða að nýtum manni með því að mennta sig, lesa góðar bækur og jafnvel skrifa sjálfur. Stuttu eftir að Páll kemur til Reykjavíkur er landið hernumið, breski herinn gengur fyrst á land og síðan sá bandaríski. Páll er mikill föðurlandsvinur og lítur á herinn sem aðskotadýr er óhreinkar ísland, menningararfinn, þjóðina og tungumálið. Páll fylgist með þeim gífurlegu breytingum sem verða á mann- og menningarlífi á íslandi, fyrst og fremst í Reykjavík, á þessum tímum íslandssögunnar. Þetta helst í hendur við tilfinningalíf Páls sem er heldur bágborið lengst af. Páll getur illa sætt sig við að herinn beri með sér eins konar gósentíð fyrir íslendinga meðan bræður hans og systur falla fyrir vopnum úti í heimi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.