Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Blaðsíða 153
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 2011 153
María steinGríMsdóttir
HáskólanuM á akureyri
Uppeldi og menntun
20. árgangur 2. hefti 2011
Fjölbreyttar leiðir í námsmati
Erna Ingibjörg Pálsdóttir. (2011). Fjölbreyttar leiðir í námsmati: Að meta það sem
við viljum að nemendur læri. Reykjavík: IÐNÚ. 213 bls.
Á þessu ári kom út hjá bókaútgáfunni IðNÚ bókin Fjölbreyttar leiðir í námsmati: Að meta
það sem við viljum að nemendur læri eftir Ernu Ingibjörgu Pálsdóttur, aðstoðarskólastjóra
við Álftanesskóla. Bókin ber nafn með rentu og það lýsir vel innihaldi hennar.
Námsmat er órjúfanlegur þáttur kennslu og náms. Á undaförnum árum hefur
mikil umræða farið fram um þátt námsmats í skólastarfi. Markmið skólastarfs eru
fjölþætt og hægt að fara ýmsar leiðir til að ná þeim og því þurfa matsaðferðir einnig
að vera fjölbreyttar og endurspegla áherslur í kennslu og þau viðmið sem nemenda-
hópnum hafa verið sett. Þetta er undirstrikað í Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 en þar
segir: „Námsmat á að vera áreiðanlegt, óhlutdrægt, heiðarlegt og sanngjarnt gagnvart
nemendum. Það þýðir að meta þarf alla þætti námsins, þekkingu, leikni og hæfni með
hliðsjón af hæfniviðmiðum í aðalnámskrá“ (Mennta- og menningarmálaráðuneytið,
2011).
Lítið hefur hins vegar verið skrifað á íslensku um námsmat. Lengi vel var bókin Gerð
prófa eftir Norman E. Gronlund, í þýðingu Þuríðar J. Kristjánsdóttur, sem gefin var út
hér á landi 1970, eina bókin á íslensku sem fjallaði um námsmat (Gronlund, 1970),
auk þriggja leiðbeiningabæklinga um námsmat sem skólarannsóknadeild mennta-
málaráðuneytis gaf út á árunum 1975–1980. Árið 2008 sendi Þóra Björk Jónsdóttir, ráð-
gjafi hjá Skólaskrifstofu Skagafjarðar, frá sér handbók fyrir kennara sem heitir Náms-
mat með áherslu á leiðsagnarmat. Í þeirri handbók var fjöldi námsmatsaðferða kynntur.
Markmið hennar er að vera hugmyndabanki sem kennarar geti nýtt sér í þróun nýrra
námsmatsleiða (Þóra Björk Jónsdóttir, 2008). Bókin var kærkomin og hefur nýst
mörgum kennurum vel í starfi. Loks er í doktorsrannsókn Rúnars Sigþórssonar, Mat
í þágu náms eða nám í þágu mats, frá 2008 fjallað um námsmat. Þar beinir Rúnar sjón-
um sínum að því hversu mikið samræmd próf í náttúrufræði í 10. bekk og íslensku í
7. og 10. bekk setja mark sitt á kennsluhugmyndir, tilhögun kennslu og á nám nem-
enda (Rúnar Sigþórsson, 2008). Fjölbreyttar leiðir í námsmati er því tímabær bók sem