Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 195
HÁSKÓLINN í REYKJAVÍK
REYKJAVIK UNIVERSITY
tÆKNI- og v e r k f r æð i d e i l d
Tæknimenntun hefur eflst mjög við Háskólann í Reykjavík á síðustu árum og nú leggja
Um 60'Yo nemenda HR stund á tækninám í tveimur deildum, Tækni- og verkfræðideild og
Tölvunarfræðideild.
Tækni- og verkfræðideild er stærsta deild skólans með rúmlega 1000 nemendur. Helsta
hlutverk hennar er að veita afburða háskólamenntun fyrir tæknimenn og stjórnendur
framtíðar, stunda öflugar rannsóknir og sinna nýsköpunar- og þróunarstörfum í tækni-
fræði og verkfræði. Að auki er boðið upp á nám í íþróttafræði og fjölbreytta möguleika í
sírnenntun á fagsviðum deildarinnar.
Tækni- og verkfræðideild HR skiptist í fjögur fagsvið: byggingarsvið, fjármála- og
rekstrarsvið, heilbrigðissvið og véla- og rafmagnssvið. Haustið 2011 voru fastráðnir
starfsmenn Tækni- og verkfræðideildar alls 79. Þar af voru 45 í akademískum stöðum
(lektor, dósent eða prófessor), 13 aðjúnktar eða sérfræðingar, 6 gestaprófessorar, 6 starfs-
menn við rannsóknir (nýdoktorar eða rannsóknarmenn), 2 umsjónarmenn verklegrar
aðstöðu og 6 starfsmenn á skrifstofu auk deildarforseta.
Námsframboð
Tækni- og verkfræðideild leggur áherslu á að bjóða prófgráður á
öllum stigum háskólanáms í tæknigreinum, allt frá diploma-
gráðum í iðnfræði til doktorsgráða í verkfræði. Þessi breidd
námsframboðs í verkfræði, tæknifræði og skyldum greinum er
lykilatriði í að viðhalda styrk deildarinnar og tengslum hennar
við atvinnulífið til þess að geta mætt þörf samfélagsins fyrir vel
menntaða tæknimenn.
I verkfræði er kennt til BSc-gráðu í heilbrigðisverkfræði,
hátækniverkfræði, hugbúnaðarverkfræði, fjármálaverkfræði,
rekstrarverkfræði og vélaverkfræði. Námið byggir á sterkri
fræðilegri undirstöðu í bland við sérhæfða fagþekkingu til að búa
nemendur undir frekara nám til MSc-gráðu og þátttöku í
atvinnulífinu.
A miðju ári 2010 varð námsbraut í íþróttafræði hluti af
heilbrigðissviði tækni- og verkfræðideildar, við hlið heilbrigðis-
verkfræðinnar. Nálægð þessara námsbrauta, þó ólíkar séu, opnar
margvíslega möguleika á samstarfi í rannsóknum og þróun, m.a.
rannsóknum í hreyfifræði mannslíkamans. Heilbrigðisverkfræði
er nú vinsælasta námsbrautin í verkfræðinámi við HR.
I tæknifræði er kennt til BSc-gráðu í byggingartæknifræði, vél- og
orkutæknifræði, rafmagnstæknifræði og iðnaðartæknifræði.
Markmiðið er að veita sérhæfða og hagnýta fagþekkingu þannig
Hárin rísa - eðlisfræðingar tækni- og verkfræði-
deildar kynntu heim visindanna fyrir gestum á
opnum degi HR (febrúar 2011.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana |193