Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1997, Blaðsíða 10

Neytendablaðið - 01.12.1997, Blaðsíða 10
Gæðakönnun APS-filmur ekki betri en venjulegar Ný kynslóð af mynda- vélum er komin á markaðinn fyrir fjöl- skylduljósmyndarann, svokallaðar APS-mynda- vélar. Gæði APS-filmna eru hinsvegar ekki nægj- anleg ástæða til að breyta frá gömlu 35 mm- filmunum, því það þarf nýja myndavél til að nota APS-filmu. Vissulega er APS-filman auðveldari í notkun, en það er líka eini kosturinn. APS er ensk skammstöfun fyrir „Advanced Photo Syst- em“ og er ný tækni sem kom á markaðinn hér á síðasta ári. Intemational testing hefur gert gæðakönnun á tíu APS- filmum og sex venjulegum 35 mm-filmum til samanburðar. Engin þessara sextán filmna fær lakari heildareinkunn en „góð“ en í heildina koma 35 mm-filmumar heldur betur út. Tvær 35 mm-filmur fá heild- areinkunnina „mjög góð“, en aðeins ein APS-filma. Besta APS-filman er Agfa, en hún er að minnsta kosti ekki ennþá seld hér á landi. Bestu 35 mm-filmurnar vom Fujicolor reala og Scotch. Fujicolor reala-filman er ekki flutt hingað, heldur önnur tegund Fujicolor sem raunar er einnig með í könnuninni. Engin 35 mm-Kodak filma er með í þessari gæðakönnun sem er bagalegt miðað við markaðshlutdeild Kodak hér. Niðurstöður þessarar gæðakönnunar sýna hinsvegar að APS-filmur em í mesta lagi svipaðar að gæðum og 35 mm-filmurnar, alls ekki betri. Einföld í notkun APS-tæknin er ekki síst fyrir þá sem halda að þeir hafi verið að taka myndir án þess að hafa gert það, filman var einfaldlega ekki sett rétt í. APS-filman liggur alltaf inni í hylkinu sem stungið er beint í myndavélina. Það er ekki hægt að gera mistök. APS-filman er aðeins 24 mm á breidd, en venjuleg filma er 35 mm. Myndflötur APS-filmunnar er aðeins 16,7 x 30,2 mm. Myndflötur 35 mm-filmunnar er 24 x 36 mm. APS-filman er með seg- ulrönd sem geymir upplýs- ingamar. Meðal annars er skráð hvenær myndin er tekin og hvernig ljósskilyrðin eru. Þessar upplýsingar fær vélin sem framkallar myndirnar og stillir efni í samræmi við hverja mynd. Þegar venjuleg filma er framkölluð er öll filman meðhöndluð á sama hátt. Ef á sömu fílmunni eru bæði inni- og útimyndir getur annar hlutinn komið lakar út. Tími og dagsetning mynda- töku er alltaf prentað aftan á APS-myndir. Hvað er ISO? APS-filmurnar í gæðakönn- uninni eru 100, 200 og 400 ISO. ISO-mælikvarðinn segir til um hve ljósnæm filman er: þeim mun hærri tala, því ljós- næmari filma. Með 400ISO filmu er því hægt að taka APS-filmur Afga Futura 100 Lýsing Litur1 ☆ Litur2 ☆ Skerpa ☆ Heilar- einkunn ☆ Fujicolor Nexiia Fine grain 100 rC ☆ ☆ ☆ ☆ Kodak Advantix 100 ★ ☆ ☆ ☆ ☆ Agfa Futura 200 ★ 'W ☆ ☆ ★ Fujicolor Nexia All round 200 ☆ ☆ ☆ ☆ Kodak Advantix 200 W ☆ ☆ ☆ ☆ Agfa Futura 400 ★ ☆ ☆ ☆ ☆ Fujicolor Nexia high speed 400 ★ ☆ ☆ ☆ ☆ Kodak Advantix 400 ★ ☆ ☆ ☆ ☆ Konica3 JX 400 ★ ☆ ☆ ☆ ☆ 35 mm-filmur Agfa Optima 100 ★ ☆ ☆ ☆ ☆ Fujcolor Super G plus 100 ★ ☆ ☆ W ☆ Fujicolor Reala ★ -X- X ☆ ★ W Konica3 VX 100 X ☆ ☆ * ☆ Scotch/lmation 100 4 ★ ★ ☆ ☆ ★ 1. Litur1: Hvernig litur skilar sér á mynd, dæmt af 10 sérvöldum dómurum 2. Litur2: Hvernig litur skilar sér á mynd, mælt með þar til gerðu tæki. 3. Konica-filmur eru seldar hér undir merki Tudor. Todur APS-filmur eru ekki fluttar inn en Tudor 35-filman er sú sama og Konica í könnuninni. 4. Áður Scotch color EXL plus. Best ☆ O 3 • Lakast 1 O NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1997

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.