Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 28

Neytendablaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 28
Umhverfismál Að kafna í eigin skít Gerlar í bruggtunnu éta sykur en skíta áfengi. Bruggarinn sér þessum lífverum fyrir kjöraðstæðum í upphafi, sér um að hitastigið sé rétt og gætir þess umfram allt að gerlarnir hafi nógan sykur til að bíta og brenna. Og ekki ber á öðru en gerlarnir uni hag sínum vel. Þeir fjölga sér í ákafa og éta eins og þeir geta. Engu að síður verður endirinn sá að umhverfið í bruggtunnunni verður þeim banvænt. Þegar áfengið hefur náð vissum mörkum þola gerlarnir það ekki lengur. Þeir kafna þannig í eigin skít. Gerlarnir hafa sér það til afsökunar að vera heilalausir. Maðurinn hel'ur aftur á móti gríðarstóran heila og einkar vel þroskaðan. Engu að síður er mannkynið á góðri leið með að eitra lífríki jarðarinnar svo mjög að á endanum gæti farið fyrir okkur líkt og gerl- um í tunnu. í neyslusamfélagi Vestur- landa hafa menn að vísu verið að átta sig á því undanfarna áratugi að ekki verður enda- laust haldið áfram að losa hvers kyns úrgangsefni út í náttúruna. Við Islendingar álítum okkur yfirleitt vel setta í samanburði við aðra. Við fáum raforku úr fossum og þurfum ekki að kynda kola- orkuver. Fámennið og land- stærðin gera það líka að verk- um að mengun verður hér ekki jafn áberandi og víða annars staðar. Allt í tunnuna Þess vegna er ekki endilega neitt skrýtið þótt Islendingar hafi verið nokkuð seinir að taka við sér í umhverfismál- um. Sorp okkar fer að lang- mestu leyti óflokkað í tunn- una, þar á meðal ýmis eitur- efni sem samkvæmt lögum á að skila sérstaklega. Eina undantekningin frá þessu er í rauninni fólgin í því að við erum á alþjóðamælikvarða nokkuð dugleg við að skila drykkjarumbúðum til endur- vinnslu. Nokkru af pappafern- um og blaðapappír er líka skilað, en þó enn tiltölulega litlu. Það er heldur ekki unnt að segja að stjórnvöld hafi látið sig flokkun og endurvinnslu sorps miklu varða. Þannig segir Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, að í raun séu ekki í gildi nein lög eða reglur um skyldu neyt- enda til flokkunar og skila sorps nema hvað varðar spilli- efni. Almenningur er á hinn bóginn að líkindum ekki til- takanlega vel upplýstur um hvað flokkast undir spilliefni. Fjórtán flokkar Það vantar þó ekki að tilmæl- um sé beint til þegna þjóðfé- lagsins um að flokka úrgang. Mörgum þykir nóg um. Við eigum að telja plast- og gler- llöskur í poka og skila þeim til endurvinnslu. Við eigum að taka mjólkurfernurnar frá og skila þeim í gáma. Við eigum að sjálfsögðu ekki að henda dagblöðunum í ruslið, heldur safna þeim saman og setja í gáma. Tímarit eiga líka að fara í gáma. Garðaúrgang á að sjálfsögðu ekki að setja í ruslatunnuna heldur á hann að fara til Sorpu. Rafhlöðum, málningu, þynningarefnum og fleiri spilliefnum eigum við að skila af okkur. Alls er af hálfu yfirvalda kurteislega farið fram á að við flokkum heimilisúrgang í eina fjórtán flokka og leggjum á okkur sérstakar ferðir til að skila þessu rusli til endurvinnslu eða förgunar. Nú má spyrja hvort ekki væri eðlilegast að sorphirða sveitarfélagsins kæmi fyrir fjórtán sérmerktum ruslatunn- um fyrir utan hvert hús. Það segir Sigríður Ólafsdótlir hjá hreinsunardeild Reykjavíkur vera pólitíska spurningu en það yrði þó augljóslega gríð- arlega dýrt og þar standi hníf- urinn í kúnni. Allt of erfitt Fjöldamargt fólk vill gjarna leggja sitt af mörkum til að hlífa náttúrunni og auka end- urvinnslu. En þrátt fyrir góð- an vilja reynist það mörgum einfaldlega of erfitt. Flokkaði úrgangurinn tekur fljótlega meira geymslupláss en góðu hófi gegnir. Pappírsgámarnir eru til dæmis ekki heldur alltaf í göngufæri og þá þarf að leggja á sig sérstaka bíl- ferð með mjólkurfernurnar og dagblöðin. Bensínið kostar peninga og aksturinn mengar. En fyrir fernur eða blöð fást engir peningar, þannig að þegar allt kemur til alls þarf hinn meðvitaði náttúruvernd- arsinni að leggja á sig vinnu og taka á sig fjárútlát til að sinna því hugðarefni sínu að vernda náttúruna. Það er því kannski ekki undarlegt að mikill meirihluti fólks fer ein- faldlega með femur og blöð út í tunnu ásamt fiskroðinu, kjötbeinurium, kaffikorgnum og öllum meira eða minna þarflausu umbúðunum utan um það sem við kaupum til heimilisins úti í búð. Umbúðasamkeppnin Þegar verkjatöflur eru keyptar í apóteki er þeim gjarna pakk- að á spjöld, þannig að hver tafla fyrir sig er í sérstöku hólfi. Spjaldinu eða spjöldun- um er svo pakkað inn í lit- prentaðan pappakassa. Enn hefur þó ekki verið nóg að gert. Aður en viðskiptavinur- inn fær pakkann afhentan er honum nefnilega stungið ofan í bréfpoka. í þessu dæmi lætur senni- lega nærri að umbúðirnar séu um helmingur af heildar- þyngdinni. Það er vissulega óvenju hátt hlutfall en í sam- keppnissamfélagi nútímans verða umbúðir þó sífellt fyrir- ferðarmeiri. Margs konar matvörur eru seldar í plast- bökkum og það færist í vöxt að bæði kjöti og fiski sé auk plastumbúða pakkað í lit- prentaðar pappaumbúðir, þar sem tíundað er í myndum og máli hvers konar gæðavara hér sé á ferð og hvílíka gæða- meðhöndlun hún hafi fengið á færibandinu. Erlendis, þar sem farið er að innheimta sorphirðugjald eftir vigt eða rúmmáli, eru farin að sjást dæmi þess að fólk taki um- búðir utan af vörunni og skilji eftir í versluninni. Sorp okkar fer að langmestu leyti óflokkað í tunnuna, þar á meðal ýmis eiturefni. 28 NEYTENDABLAÐHD - nóvember 2000

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.