Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2001, Blaðsíða 4

Neytendablaðið - 01.10.2001, Blaðsíða 4
í stuttu máli Blautservétturnar fjarlægðar Danskir og norskir foreldrar fá afhentan pakka þegar farið er heim af fæðingardeildum sjúkrahúsa. Þetta er svokallaður Natusan-pakki og í honum er að finna ýmsar vörur fyrir ung- böm, þar á meðal blautservétt- ur. Eftir að könnun dönsku upplýsingamiðlunarinnar Grön Information leiddi í ljós að í sumum tegundum af blaut- servéttum eru skaðleg efni hafa fjölmörg norsk sjúkrahús ákveðið að fjarlægja blautserv- éttumar úr þessum pökkum. Rannsóknin var gerð í apríl og vom niðurstöður hennar þær að af níu tegundum blautserv- éttna höfðu tvær samkvæmt innihaldslýsingu efnið lodopropýnýl-bútýlkarbomat. Þetta efni getur orsakað of- næmi og samkvæmt banda- rískum rannsóknum einnig lifr- arskemmdir. Samkvæmt regl- um má ekki nota þetta efni í vörur sem komast í snertingu við varir. Þessar tvær tegundir vom í Natusan Baby og Pampers Sensitive. Framleiðandi Natusans, Johnson & Johnson, hefúr stað- Skráið ykkur á póstlista Neytenda- samtakanna Neytendasamtökin bjóða neytendum að skrá sig á sér- stakan póstlista á netinu. Lisl- arnir eru tveir, annar fyrir fé- lagsmenn og hinn fyrir þá sem ekki eru enn orðnir fé- lagsmenn. Félagsmenn fá allt efni sem sent er út, en aðrir aöeins hluta. Þannig borgar sig alltaf að vera félagsmaður. Þeir sem áhuga hafa á að vera á þessum listum geta haft sanrband í tölvupósti, ns(ú ns.is. og í síma 545 1200. Þeir félagsmenn sem ekki eru með aðgang að tölvu og netinu er bent á aö þeir geta fengið þessar upplýsing- ar í pósti. fest að þetta efni sé notað í ffamleiðslu á blautservéttum. Procter & Gamble, framleið- andi Pampers, segist hins veg- ar ekki nota þetta efni þrátt fyrir upplýsingar á umbúð- unum. Eftir sem áður er ráðið til nýorðinna foreldra að nota ekki blautservéttur nema í neyðartil- vikum - hreint og volgt vatn er það besta fyrir komabamið. Hvernig er þetta hér? Neytendablaðið kíkti í nokkrar matvömverslanir til að sjá hvaða blautservéttur em hér á markaði. Við fundum átta teg- undir og em tvær þeirra eins og í Danmörku, Pampers Sensitive og Johnson ’s baby skincare, með efhinu lodopropýnýl-bútýlkarbomat samkvæmt innihaldslýsingu. Aðrar tegundir sem við fúndum vom án þessa efnis, BabyCare vaskeservietter, Libero baby care, Mio vaskeservietter, Pampers og tvær tegundir frá Tesco, Toddler xvipes og Ultra soft cloth wipes. Neytendablaðið hafði sam- band við sængurkvennadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss til að fá upplýsingar um hvort sambærilegum pökkum og dreift er í Danmörku og Noregi væri einnig dreift á sjúkrahús- um hér. Það er ekki gert. „Við dreifum ekki auglýsingum. Okkur er hins vegar kunnugt um að nýorðnir foreldrar fá sendan heim kynningarpakka frá Libero,“ sagði Guðrún Guð- mundsdóttir deildarstjóri á sængurkvennadeild. „Við ráð- leggjum mæðmm að nota ekki blautservéttur nema í undan- tekningartilvikum. Blaut- servéttur koma raunar ekki inn í hús hér, enda notum við ekki þessa vöm,“ sagði Guðrún. Græn ráð: ▲ Notaðu vatn, þvottaklút og ef til vill örlítið af sápu í staðinn fyrir blautservéúur a Notaðu aldrei blautservéttu til andlitsþvoúa ▲ Taktu með hreinan þvotta- klút og vatn í flösku ef þú ferð á stað þar sem ekki er rennandi vatn ▲ Notaðu aðeins blautservéú- ur sem neyðarúrræði Upplýsingar um hreinlæti á matsölustöðum Það hefur oft komið ffam að heilbrigðisyfirvöld hér á landi veigra sér við að gefa neyt- endum nákvæmar upplýsing- ar úr gerlarannsóknum sín- um, t.d. hvaða staðir koma illa út, og sýna með þeim hætti að hreinlæti er stundum vem- lega ábótavant. Neytendur geta því ekki sniðgengið slíka staði standi vilji þeirra til þess. Þetta er með öðmm hætti í Danmörku, en þar hafa heilbrigðisyfírvöld um nokkurt skeið birt niðurstöður gerlarannsókna á fínni mat- sölustöðum, pítsustöðum og skyndibitastöðum. Tvennt hefur að minnsta kosti áunnist með þessu, staðimir hafa fengið aukið aðhald og neyt- endur sjálfsagðar upplýsingar. Þetta hefur þó verið umdeilt, ekki síst hjá þeim veitinga- stöðum sem verða illa úti. Og nú verður gengið enn lengra hjá frændum okkar, því 1. júlí í sumar gengu í gildi ný matvælalög. Nýju lögin gefa heilbrigðisyfír- völdum heimild til að opin- bera jafnt góðar sem slæmar niðurstöður á rannsóknum á matsölustöðum. Niðurstaðan verður þegar í stað hengd upp á viðkomandi stað. Einnig er það ætlunin að setja þessar upplýsingar í framtíðinni á netið. Matsölustaðir sem fá slæma útkomu geta aftur á móti óskað eftir nýrri rann- sókn innan fímm daga. Þannig getur staðurinn unnið sér goú orðspor á nýjan leik, standi hann sig í þeirri rann- sókn. Ástæða þessara breytinga á lögunum er fyrst og fremst að heilbrigðiseftirlitið í Kaup- mannahöfn hefúr verið að sýna miður góða mynd af matsölustöðum sem margir rækta bakteríur af miklum eldmóði og með tilheyrandi sóðaskap. Og offar en ekki er hráefnið einnig slakt. Sam- hliða þessu hafa tilfelli matar- sýkingarsjúdóma aukist og eru þau rakin til þessara staða sem hafa þó sumir til skamms tíma verið taldir ,klassastaðir‘. Vegna þessa hafa dönsku neytendasam- tökin, matvælayfírvöld þar í landi og stjómmálamenn vilj- að gera það auðveldara og ör- uggara fyrir neytendur að velja á milli mismunandi staða. Neytendablaðið telur brýnt að breyta matvælalögum á sama hátt hér á landi. Minnt skal á að margt það besta sem við höfum fengið í löggjöf er úr dönskum lögum. Því beina samtökin því til umhverfís- ráðherra að beita sér í málinu. Neytendasamtökin em reiðubúin að taka þáú í að knýja fram slíka breytingu hér. 4 NEYTENDABLAÐIÐ - október 2001

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.