Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 26

Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 26
 ips^s|S| r4 Vorið 2001 sáði Michael Alberts i Nebraska-ríki erfðabreyttu sojafræi i þennan akur. Fræið er með mótefni gegn illgresiseitrinu „Roundup" sem úðað var yfir akurinn til þess að eyða öllum öðrum gróðri. Ári síðar kom i Ijós að akurinn verður „mengaður" erfðabreyttu soja um ókomna tíð (fræ sem þroskast eftir fyrstu uppskeru) nema nýtt og sterkara eitur sé notað til að „hreinsa" það burtu. Mynd: Hugh Warwick Tímamótaskýrsla um reynslu Bandaríkjamanna Aukinn efi um erfðabreytt matvæli Fyrir nokkru var kynnt í Bretlandi og tólf öðrum ríkjum merkileg skýrsla sem varp- ar nýju Ijósi á þær hættur sem kunna að fylgja erfðabreyttum matvælum, þvert á það sem líftæknifyrirtækin hafa reynt að halda fram. í skýrslunni kemur fram að frjómengun frá erfðabreyttum nytjajurt- um hafi valdið gífurlegu tjóni og er þar staðhæft að þeir sem rækta slíkar plönt- ur þurfi að nota mun meira illgresiseitur en áður var. Greint er frá margháttuðum erfiðleikum sem bandarískir framleið- endur glíma við eftir að þeir byrjuðu að rækta erfðabreyttar matjurtir. Þá komast skýrsluhöfundar að þeirri niðurstöðu að erfðabreytt fræ skili að jafnaði ekki meiri uppskeru en venjulegt fræ. Það er athyglisvert vegna þess að talsmenn erfðabreytinga hafa einmitt haldið því fram að þær auki möguleika þjóðanna til að brauðfæða sig. í fréttatilkynningu sem gefin var út í til- efni af útkomu skýrslunnar segir meðal annars að framleiðsla erfðabreyttra mat- væla dragi úr samkeppnishæfni landbún- aðar og geri honum erfiðara um vik að svara þörfum neytenda. Þá er bent á að hún kunni að þrengja valkosti neytenda þar sem framboð minnki á sambærileg- um ó-erfðabreyttum afurðum, og erfða- breytt framleiðsla smiti eða ,mengi' aðra framleiðslu. Hagnaöarvon stórfyrirtækja A undanförnum sex árum hefur fram- leiðsla erfðabreyttra matvæla náð að festa rætur í Bandaríkjunum og Kanada. Hér er einkum um að ræða erfðabreytt soja, mafs og repju (til olíuframleiðslu). Megin-drifkraftur þessarar þróunar er f stórfyrirtækjum í eiturefna- og líftækni- iðnaði. Þau sjá mikla hagnaðarvon í framleiðslueinkaleyfum á fræjum erfða- breyttra nytjaplantna sem hafa mótstöðu gegn ýmsu illgresis- og skordýraeitri eða eru búnar öðrum eiginleikum sem auðvelda geymslu, úrvinnslu og markaðs- setningu. Hafi nytjaplanta þol fyrir illgres- iseitri er hægt að nota eitrið til að drepa aðrar plöntur á akrinum, illgresið, og er því engin tilviljun að einn mikilvirkasti framleiðandi eiturefna fyrir landbúnað, Monsanto, er jafnframt í fararbroddi við framleiðslu á erfðabreyttu plöntufræi. Andstaða neytenda vaxandi Neytendur hafa á hinn bóginn sýnt þess- ari framleiðslu lítinn áhuga. í raun má segja að sinnuleysi hafi einkennt viðhorf almennings í Norður-Ameríku, eink- um Bandaríkjunum, en umræða verið nokkuð mikil í Evrópu. Áhugi á erfða- breyttum matvælum á því ekki uppruna sinn á neytendamarkaði. Talsverð and- staða er við þau meðal neytenda, eink- um f Vestur-Evrópu, vegna þeirrar miklu óvissu sem enn ríkir um áhrif erfðabreyt- inga á umhverfi og heilsufar neytenda. Samtök neytenda hafa víðast hvar lagt áherslu á að neytendur geti valið á milli erfðabreyttra matvæla og venjulegra (hefðbundinna eða lífrænt-ræktaðra). Kröfur um að erfðabreytt matvæli séu merkt sem slík nýtur víðtæks stuðnings meðal almennings, en líftæknifyrirtækin 2B NEYTENDABLAÐIÐ 1.TBL. 2003

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.