Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 2

Neytendablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 2
Almannahagsmunir í Ástandið á fjölmiðlamarkaði mun vera óviðunandi. Stjórnvöldum fannst því ástæða til að koma almenningi til bjar- gar og leggja fram hið margumtalaða fjölmiðlafrumvarp. Fyrir þá sem hafa starfað að málefnum neytenda kemur þessi skyndilegi áhugi stjórnvalda á almannahagsmunum heldur spánskt fyrir sjónir. Tökum nokkur dæmi. Frumvarp um innheimtulög var lagt fram í fjórða sinn í vetur. Þrisvar hef- ur þetta sama frumvarp dagað uppi og það virðist einnig ætla að verða raunin íþetta sinn. Nágrannaþjóðim- ar hafa sett löggjöf sem tryggir skuld- urum lágmarksvernd með lögum. Það hafa íslensk stjórnvöld ekki gert og virðast ekki ætla sér að gera. Enda ekki um almannahagsmuni að ræða. I desember 2002 var samþykkt þings-ályktunartillaga þess efnis að skoða ætti nánar ástæður fyrir háu matvælaverði hér á landi og að hve miklu leyti ríkinu er um að kenna. Skýrslan hefur nú loksins litið dagsins Ijós og niðurstöðurnar koma íslensk- um neytendum ekkert á óvart. Mat- vælaverð á íslandi er miklu hærra en gengur og gerist í vestur Evrópu. Það þykir ásættanlegt og ólíklegt að stjórnvöld grípi til aðgerða nú frekar en fyrri daginn, enda hefur hátt mat- vælaverð ekkert með almannahags- muni að gera. Fákeppni og verðsamráð hafa bitnað illa á íslenskum neytendum. Forstjór- ar ýmissa fyrirtækja hafa í samein- ingu ákveðið hvaða verð neytendur skuli greiða fyrir vörur og þjónustu. Þetta fyrirkomulag kemur sér vel fyrir fyrirtækin sem virðast telja að markmið frjálsrar samkeppni sé að efla hag fyrirtækjanna á kostnað neytenda. Það er hlutverk Sam- keppnisstofnunar að hafa eftirlit með markaðnum og koma lögum yfir sam- ráðsdólgana. Hingað til hefur stjórn- völdum ekki þótt sérstök ástæða til að efla Samkeppnisstofnun og finnst það greinilega ásættanlegt að rann- sóknir á meintu verðsamráði taki nokkur ár. En viti menn. I kjölfar fjöl- miðlafrumvarpsins er allt í einu farið að tala um í fullri alvöru að efla Sam- keppnisstofnun. Það er víst um að gera að passa að landinn hafi aðgang að fréttum og afþreyingu í hlutföllum sem stjórnvöld geta saétt sig við. Það að tryggja virka samkeppni á öðrum sviðum neytendumtil hagsbótaflokk- ast auðvitað ekki undir almannahags- muni. Brynhildur Pétursdóttir Efni Frá kvörtunarþjónustunni 3 Listin að kvarta 4 Vítamínbætt matvæli 6 Gæðakonnun á GSM-símum 8 Garðrækt 10 Ábyrgð flugfélags á farangri 12 Farþegar í flugi 13 Gæðakönnun á hundamat 14 Gæðakönnun á kattamat 10 Lífræn merki 17 Sykur í matvælum 18 Ánægjulegar markaöshræringar 20 Hávaðamengun 22 Mysa 23 Prentað efni Blaðið er prentað á umhverfisvænan hátt. NEYTENDABLAÐIÐ 2. tbl., 50. árg. - júní 2004 Útgefandi: Neytendasamtökin, Síðumúla 13, 108 Reykjavík Sími 545 1200 Fax 545 1212 Veffang: www.ns.is Netfang: ns@ns.is Ábyrgðarmaður: Jóhannes Gunnarsson Ritnefnd: Brynhildur Pétursdóttir, Jóhannes Gunnarsson, Þórólfur Daníelsson, Puríður Hjartardóttir Umsjón með gæðakönnunum: Ólafur H. Torfason Yfirlestur: Laufey Leifsdóttir Umbrot og hönnun: Ásprent Stíll hf. Prentun: HjáGuðjónÓ ehf. - vistvæn prentsmiðja Pökkun: Bjarkarás Upplag: 13.000 eintök, blaðið er sent öllum félagsmönnum í Neytendasam- tökunum Ársáskrift: 3.400 krónur og gerist áskrifandi um leið félagsmaður í Neytendasamtökunum. Heimilt er að vitna í Neytendablaðið í öðrunt fjölmiðlum sé heimildar getið. Óheimilt er þó að birta heilar greinar eða töflur án leyfis Neytendasam- takanna. Upplýsingar úr Neytenda- blaðinu er óheimilt að nota í auglýs- ingum og við sölu nema skriflegt leyfi Neytendasamtakanna liggi fyrir. Lykilorð á heimasíðu: kisa2004 2 NEYTENDABLABIÐ 2.TBL. 2004

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.