Tónlistin - 01.03.1947, Blaðsíða 4

Tónlistin - 01.03.1947, Blaðsíða 4
50 TÓNLISTIN „íslenzk tónlást á sér mikla framtíð, ef þjóðin sjálf á Ræða Brynjólfs Bjarnasonav menntamálaráðherra við opn- un tónlistarsýningar í Reykja- vík 21. janúar 1947. Snautt og ömurlegt er líf þeirrar þjóðar, sem ekki gerir aðrar kröfur en þær, að hafa í sig og á. Lágkúru- legt og dapurt er hlutskipti þess manns, sem aldrei hefur átt þess kost að njóta hins dýpsta unaðar, scm listin ein getur veitt. Tónlistin hefur sérstöðu meðal allra annarra listgreina. Hún á sér alþjóðlegt tungumál, sem allir skilja, scm eyrú hala að heyra, hvar sem er á þessari jörð'. Hitt er þó aðall hennar, að hún býr yfir töfravaldi, sem er máttugra en öll tungumál veraldarinnar samanlögð. Þó að lón-. listarmaður kynni mál allra þjóð- flokka á jörðinni, gæti hann ekki túlkað það með orðum, sem hann getur tjáð með tónum. Með hvíta- galdri sínum getur tónlistin veitt oss innsýn í veruleika, sem engin orð fá lýst. öll list, sem á skilið að heita því nafni, keppir raunar að' þessu marki. Því segjum vér um kvæði, slcáldsögu cð’a málverk, er oss þykir lullkomið í list sinni: Þetta er eins og tónlist. Lengra verður ekki lil jafnað. Hver cr þá þessi veruleiki hand- an við' allt hið sýnilega og skýran- lega, sem veitir oss slíkan unað, að' alll liið’ hvgrsdagslega verður eins og sér framtíð“. fánýtt hjóm, sem sannar oss, að’ mannleg tilvera er dásamlegri en oss grunar í önnum dagsins — vekur oss grun um æðri markmið og fjar- lægari leiðarenda mannlegrar full- komnunar en vér fáum eygt? Það væri fávíslegt að ætla sér þá dul að' lýsa hinni andlegu reynslu tónlistarinnar með orðum. Það lief- ur engum lekizt. Þótt þú lesir allar bækur vitringanna, sem glíint hafa við jretla viðfangsefni, ertu jafnnær. Enda eru bollaleggingar þeirra oft meira í ætt við skáldskap en vísindi. Schopenhauer sagði t. d., að i t'ón- listinni kæmumst við í snertingu við tilveruna sjálfa, hinn innsta kjarna hennar, án ytri tákna. Gleði og fögn- uður tónlistarinnar væri fögnuður- inn og gleðin sjálf. Sorg og þjáning tónlistarinnar væri þjáningin og sorgin sjálf. Ef svo er, þá er glcðin himnesk og jjjáningin og sorgin un- aðsleg. En sleppum heimspekinni og öfugmælum hennar. Sannleikurinn er sá, að’ allt lúð’ hverfula í lífi mann- anna, í sæld J)ess og þrautum, þolc- ar fyrir hinu óræða, sem tónarnir túlka. Tjáning sorgarinnar vekur oss ekki síður djúpan unað en leikur gleðinnar. Þetta er eitt af undrum veraldar. Margir vitrir menn hafa árangurslaust glímt við þá gátu um aldaraðir. Sennilega þurfum vér ao komast á æðra þróunarstig til ])ess að' verð’a nokkru nær um lausn lienn- ar. En undrið er veruleiki, og það'

x

Tónlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.