Bændablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 16
16 Þriðjudagur 12. október 2004 Á árunum 1960 til 1964 var nokkurt magn veitt af álum á Íslandi til útflutnings. Stóð Jón Loftsson að skipulögðum veiðum. Síðar stóð Samband íslenskra sam- vinnufélaga að álaveiðum. Álarnir sem komu frá Skaftárhreppi þóttu með þeim stærstu og magnið mik- ið, sbr. mynd nr. 1. Bændur höfðu aukatekjur af þessum veiðum á þeim tíma. Fyrir um 9 árum var einnig gerð tilraun til skipulegra álaveiða á Íslandi. Nú eru margir sem veiða ála fyrir sjálfan sig þar sem mörgum þykir reyktur áll herramannsmatur. Vegna versnandi afkomu bænda var ákveðið árið 1991 af at- vinnumálanefnd Skaftárhrepps að gera könnun á magni ála o.fl. á gömlu veiðisvæðunum til að athuga hvort möguleiki væri að hefja veiðar á þeim á ný. Þetta verkefni var eitt af fjórum sem fjallaði um nýtingu á staðbundnum fiskistofnum í hreppnum. Eitt verkefnið fjallaði svo um veiðar á glerál. Valdir voru fjórir veiðistaðir fyrir verkefnið, þar af tveir staðir þar sem veitt var 1962 til saman- burðar. Þeir staðir voru Fitjarflóð í Landbroti og Steinsmýrarflóð í Syðri-Steinsmýri í Meðallandi. Bæði þessi vatnasvæði eru með tært vatn og gott vatnsgegnum- streymi. Hinir veiðistaðirnir voru Víkurflóð í Efri-Vík í Landbroti og Mjóásvatn í Norðurhjáleigu, í Álftaveri. Þessi vatnasvæði eru með gruggugt vatn og lítið gegn- umstreymi og verða volg á góðum sumardegi þegar sólin skín. Bændur á veiðisvæðunum lögðu til tæki og vinnu sem hjálpaði mikið við framkvæmd verkefnisins. Álagildrurnar, sem voru 8-10 metra langar, voru hefðbundnar með tveimur endapokum og leiðara á milli þeirra. Möskva- stærð í enda gildranna var 11 mm. Állinn kemur syndandi að gildrunni með botni en syndir ekki yfir gildruna heldur meðfram henni og lendir þá í endapokanum. Möguleiki er að vera með agn í gildrunum, t.d. saltfiskbút, en það var ekki gert í þessu verkefni. Kvarnir voru teknar og þær aldursgreindar á vegum Veiði- málastofnunar á Selfossi ásamt fæðu álanna. Álar og silungar voru merktir og vonast var til að þeir fiskar veiddust aftur seinna af veiði- mönnum til mælinga, en það gerðist ekki. Niðurstöður, Fitjarflóð Fitjarflóð var besta veiði- svæðið í hreppnum 1961 til 1963 og því gert skil hér, ásamt því að þar veiddust flestir álarnir af veiðsvæðunum fjórum í verkefninu. Meðalþyngd álanna var 350 gr, sá þyngsti var 950 gr og sá léttasti var um 50 gr. Þyngd ála er annars mjög mismikil eftir veiðivötnum (gruggug eða tær vatnakerfi), sjá mynd nr. 2. Meðallengd var 57 sm, sá lengsti var um 74 sm og stysti var um 30 sm. Meðalholdastuðull, sem segir til um hvað fiskurinn var feitur, var 0,166. Holdmesti állinn í Fitjarflóði var um 0,27 en sá rýrasti var 0,05. Meðalaldur var 10,6 ár. Elsti állinn var um 16 ára, 770 gr að þyngd og 72 sm að lengd. Yngsti állinn var um 5 ára, gildrurnar héldu ekki yngri álum sem fóru í gegnum möskvann á gildrunum. Meðalummál, mælt fyrir fram- an bakugga, var 10,5 sm. Minnsta ummál var 6 sm en sá digrasti var með 17 sm. Meðalveiði, þ.e.a.s. veiddir álar á hverja gildru eftir eina veiði- nótt, var 0.67 álar. Veiðisvæði eru misgjöful eftir vatnagerð, sjá mynd nr. 3. Litur. Álarnir voru flokkaðir mest í 9 litaflokka. Dekkstu álarnir voru yngstir eða 8,5 ára að meðaltali. Þeir ljósustu voru 12 ára að meðaltali. Þyngsti állinn sem veiddist á öllum fjórum veiðisvæðunum var um 1870 gr í Mjóásvatni. Hann var einnig sá digrasti með holdastuðulinn 0,29 og 86 sm á lengd. En lengsti állinn sem veiddist var 94 sm. Aðalfæða álanna í Fitjarflóði voru vatnabobbar, um 70%, jafnt var af hornsílum, rykmýlirfum og þráðormum í fæðu álanna. Umræða Að mati undirritaðs þá ganga þeir álar til sjávar sem fara að nálgst holdastuðulinn 0,2, eru þeir þá að verða bjartálar, eftir um 12 ár í ferskvatni. Þessa ála er best að veiða áður en þeir ná til sjávar og má miða við að taka alla ála sem eru þyngri en 400 gr og lengri en 50 sm. Minni fiskur mætti vera áfram í vatninu til vaxtar. Hér má bæta við að hængarnir fara minni til sjávar en hrygnurnar, minnsti bjartállinn sem veiddist var 42 sm. Þessar tölur eru svo breytilegar eftir veiðivötnum. Veiðin í Fitjarflóði í eina gildru var um 30 kg alls frá 9. júlí til 30. ágúst. Hægt er að fá mikinn afla í veiðivötnum ef allur áll væri hirtur og þá einungis í nokkur ár, vegna hættu á ofveiði eins og gerðist í Skaftárhreppi. Mesta veiði á dag í eina gildru var 0,67 í þessu verkefni en var 1962 um 7,0 sem sýnir mikla minnkun á afla- brögðum. Mikill munur er í veiði eftir dögum. Þar kemur inn veðurfar, lofthiti, birta, gerð gildra o.s.frv. Best er að veiða sem næst útfalli vatnsins til að ná ljósustu álunum á leið til sjávar. Þegar fer að hausta og dimma þá er mesta veiðin af öllum ál, sjá mynd 1. Mikið sást af glerálagöngum áður fyrr í hreppnum og eru til ýmsar sögur um hann. Á landinu öllu veiddist árið 1961 17 tonn af ál, 1962 voru það 13 tonn, 1963 voru það 10 tonn og minna eftir það. Handverk mannanna hafa valdið því að veiðisvæðum ála hefur fækkað með framræslu mýra, breytinga á árfarvegum, uppþurrkun svæða ásamt kólnandi veðurfari eftir 1960 o.s.frv. Þetta hafði einnig áhrif á silung og fugla. Til viðbótar má nefna að sandfok í Skaftárhreppi hefur fært vatnasvæðin í kaf. Undirritaður telur að fá veiði- svæði geti haldið uppi stöðugum veiðum til lengdar, þó að álar finnist víða um land. Þá helst frá sunnanverðu Snæfellsnesi og austur fyrir Höfn í Hornafirði um Suðurland. Að síðustu má nefna það að meðhöndlun á þessu dýra hráefni þarf að vera rétt eftir veiðar og við slátrun svo að gæðin eyðileggist ekki, en það er svo annar kafli út af fyrir sig. Trúlega er erfitt að treysta á ár- vissar glerálaveiðar á sama veiði- staðnum hér á landi vegna breyti- leika í straumum fyrir utan ströndu, breytinga á vindakefum og veðráttu á landi. Til er rit sem, sem fjallar nánar um þetta efni, það nefnist Ála- rannsóknir 1991 og er með mörgum myndum og töflum. Það má nálgast á skrifstofu Skaftár- hrepps, Kirkjubæjarklaustri hjá Ólafíu Davíðsdóttur. Heimild; Jón Gunnar Schram. 1991. Álarannsóknir 1991. Atvinnumálanefnd Skaftárhrepps Vestur - Skaftafellssýslu og Fjölbrautaskóli Suðurlands. 59 bls. Fjölrit. Höfundur: Jón Gunnar Schram, fiskeldisfræðingur. S. 551 2005 Állinn hrygnir í Þanghafinu um 5000 km við austurströnd Mið- Ameríku. Seiðin berast til Evrópu með Golfstraumn- um sem tekur um 3 ár. Þegar til Evrópu er komið hafa glerálaseiðin náð 6-8 cm lengd og ganga þá upp í ferskvatn. Þar dvelst állinn í fleiri ár sem fer eftir því hvaða lífskilyrði eru fyrir hendi, t.d. hiti og fæðu- framboð. Elsti áll í þessu verkefni í Skaftárhreppi var um 16 ára gamall í ferskvatni en 19 ára í raun með dvöl í hafi sem gleráll. Hér í þessu ritkorni er bara talað um aldur í ferskvatni. Eftir glerálatímabilið í hafi hefst uppvaxtartíma- bilið í ferskvatni og er állinn þá kallaður guláll. Þegar állinn hefur náð full- um þroska þá breytist litur hans og hann verður hvítur á magann og dökkur á bakið, eins og lax, og er þá kallaður bjartáll. Bjartáll- inn gengur til sjávar á haustin til hrygningar í Þanghafinu og er þá verð- mætari vegna feitleika síns en guláll. Á leið sinni í Þanghafið étur állinn ekkert því meltingafærin hverfa en í stað þeirra þroskast kyn- færin. Þess vegna verður állinn að vera vel feitur því að fituforðinn verður að duga honum alla leið frá Íslandi. Hrygnurnar eru stærri en hængarnir. Állinn andar með tálknum í vatni en á landi lokar hann tálknunum og andar þá með húðinni. Dæmi er um að áll hafi farið í einum áfanga 8 km milli vatna í blautu grasi og eru förin eftir hann eins og eftir reiðhjól. /JGS Álaveiðar í Skaftárhreppi, Vestur-Skaftafellssýslu 0 100 200 300 400 500 600 700 800 900 1000 Þ yn g d ,g r Meðalþyngd 350 583 297 951 Fitjarflóð Víkurflóð Steinsmýrarfl Mjóásvatn 0 0,1 0,2 0,3 0,4 0,5 0,6 0,7 0,8 Á la r á g ild ru e ft ir e in n d ag Meðalveiði 0,67 0,16 0,44 0,14 Fitjarflóð Víkurflóð Steinsmýrarfl Mjóásvatn Mynd 2. Meðalþyngd er mjög breytileg eftir vatnagerð. Minnsta meðalþyngdin er í tveim vötnum með tæru vatni. 0 200 400 600 800 1000 1200 1400 1600 1800 Þ yn g d , k g Afli, kg á mán. 12 149 477 882 1.664 494 216 Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt. Nóv. Tilraunaveiðar á ál í Skaftafellssýslu. Kjartan Halldórsson t.h. og Steingrímur Matthíasson með reyktan ál á milli sín. Fyrir ofan þá er álagildra eins og Kjartan lánar bændum. Þessar gildrur lét hann smíða í Kína. Mynd 1. Þróun álaveiða í Fitjarflóði 1962. Veiðin eykst þegar það fer að skyggja en minnkar svo með meiri kulda. Mynd 3. Afli er mismikill eftir gerð vatnakerfa. Fitjarflóð og Steinsmýrarflóð eru með tært vatn en hin með gruggugt vatn.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.