blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 35

blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 35
blaðið LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 ÝMISLEGT I 35 Ættleiðingarþung- lyndi er vel þekkt Foreldrar sem hafa cettleidd börn geta fundiðfyrir þunglyndi rétt eins ogforeldrar nýfœddra barna. Margir foreldrar sem ættleiða börn eru frá sér numin af gleði þegar barnið kemur heim. Hjá sumum er þessi gleði skammvinn og hún leysist upp í ættleiðing- arþunglyndi. Ættleiðingar- þunglyndi getur verið allt frá dapurleika í einhvern tíma yfir í raunverulega örvæntingu í lengri tíma. Flestir þjást þó í hljóði þar sem þeir finna fyrir skömm og sekt yfir að vera ekki fullkomlega hamingjusamir með eitthvað sem þeir kusu sjálfir og unnu lengi að. Ættleiðingarþunglyndi er vel þekkt á meðal starfsfólks innan ættleiðingarkerfisins en það hafa engar rannsóknir farið fram á sjúk- dómnum. Ingibjörg Birgisdóttir, fræðslufulltrúi Islenskrar ættleið- ingar, segir að rétt eins og fæðingar- þunglyndi sé ættleiðingarþunglyndi viðkvæmt mál. „Foreldrar eru búnir að leggja mikla vinnu í ættleiðing- arferlið og hafa jafnvel beðið eftir barni í lengri tíma. Síðan fá foreldr- arnir barnið í hendurnar og lífið er einhvern veginn allt öðruvísi en þau ímynduðu sér. Það er mjög erf- itt að tjá sig um þetta og viðurkenna að lífið er ekki eins yndislegt og það átti að vera. Þetta er vitanlega sprottið upp úr því að fólk er með miklar væntingar enda er barn loksins í sjónmáli og lífið á að vera fullkomið.“ mikið tjón á sálinni við aðskilnað frá líffræðilegum foreldrum að þau læra ekki að treysta og geta ekki tengst fólki.“ Síðan fá foreldrarnir barnið í hendurnar og Iffið er einhvern veginn allt öðruvfsi en þau ímynduðu sér Ekki ást við fyrstu sýn Það getur því verið erfitt fyrir for- eldra að viðurkenna ættleiðingar- þunglyndi, fyrir sjálfum sér, vinum og fjölskyldu. Þrátt fyrir að móðir sem ættleiðir barn geti ekki skýrt þunglyndið með hormónum eins og konur sem berjast við fæðingarþung- lyndi er það samt sem áður raun- verulegt. Enda er álagið mikið við að verða foreldri, skortur á svefni, síþreyta og annað sem foreldrar finna fyrir. Sumir foreldrar sem ætt- leiða geta fundið fyrir dapurleika finni þau ekki fyrir ást við fyrstu sýn þegar þau sjá barnið eða ef þau tengjast barninu ekki samstundis. Samkvæmt Ingibjörgu eru for- eldrar ekki alltaf viðbúnir því sem koma skal. „Börnin hafa í flestum tilfellum verið í einhvern tíma á stofnun og það er skelfilegt að þurfa að byrja lífið þannig. Barnið þekkir þig vitanlega ekki og hleypur ekki til þín fagnandi þegar það sér þig, það öskrar kannski vikum saman. Fólk talar líka um að barnið gerir engan greinarmun á foreldrum sínum og öðrum, það brosir framan í alla og er alveg sama hver heldur á því. Þegar þessi tenging verður ekki finna foreldrarnir fyrir örvæntingu og veröld þeirra hrynur." Uppeldið er verkefni Ingibjörg segir Islenska ættleiðingu standa fyrir undirbúningsnám- skeiði fyrir foreldra sem eru að fara að ættleiða og þar er fjallað um ætt- leiðingarþunglyndi „Við reynum að fjalla um þá staðreynd að barnið þekkir foreldrið ekki neitt og því er uppeldið hreinlega verkefni sem þarf að vinna. Áður en fólk tekur ákvörðun um að ættleiða þurfa þau að vita hvað getur mögulega gerst. Kannanir á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum sýna að 8o% barna gengur vel eftir eðlilegan aðlögunar- tíma með nýju fjölskyldunni, 15-18% eiga í einhverjum vanda sem tekur mislangan tíma að vinna úr og 2% ættleiddra barna hafa beðið það /TIGK Hágæða > sláttutæki Garden Combi sláttutraktór 12,5 hestafla, sjálfskiptur B&S mótor 170 Itr. grashirðikassi Estate Pro 22 sláttutraktór 22 hestafla, sjálfskiptur B&S mótor 300 Itr. grashirðikassi Vetrarsol ehf. - Askalind 4 Kópavogi Sími 5641864
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.