blaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 34

blaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 34
42 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 blaöiö konan konan@bladid.net Einstök Maya Angelou er ekki einungis þekktur rithöfundur bóka á borö viö Ég veit af hverju fuglinn í búrinu syngur. Hún hefur líka lagt hart aö sér viö aö bæta hag kvenna í þróunarlöndunum, sérstaklega í Afríku. Starf hennar hefur því hjálpað þús- undum kvenna víðs vegar um heiminn. I matador með lúdóreglur Þegar kjarnafjölskyldan er notuö sem fyrirmynd fyrir stjúp- fjölskyldur viö lausn verkefna er hætta á að óheppilegar aðstæður skapist sem vinna gegn fjölskyldunni og draga úr þrótti hennar. Til að mynda ef ekki er gert ráð fyrir tengslum barna við báða kynforeldra sína eða ef til þess er ætlast að stjúpforeldri taki að sér hlutverk kynforeldris án þess að það hafi nokkurn tíma verið rætt. Fimmtudaginn 14. september klukkan 17.15 mun Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA og formaður Félags stiúp- fjölskyldna, flytja erindið: I matador með lúdóreglur? Hvers er að vænta í stjúpfjölskyldum? í fyrirlestrinum mun Valgerður benda á algengustu verkefni stjúpfjölskyldna þannig að þær fái tækifæri til að vinna út frá eigin forsendum og efla þrótt sinn. Fundarstaður er Hringsjá - Hátúni 10d og nánari upplýs- ingar má fá I síma 692-9101. Vinsælir Allir þurfa að sanna sig Halla Tómasdóttir: „Það voru einstakir tímarí íslensku atvinnulífi og hagkerfi þegar ég tók viö og alþjóðleg um- ræða á neikvæðum nótum var í hámarki. En það hefur veriö virkilega skemmtilegt verkefni að takast á við það.“ Halla Tómasdóttir er fyrsta konan sem er fram- kvæmdastjóri Viðskipta- ráðs íslands en hún tók við því starfi í. mars síðastliðinn. Halla segir að þessi tími hafi verið mjög skemmtilegur enda krefjandi og skemmtilegt starf. „Það voru einstakir tímar í ís- lensku atvinnulífi og hagkerfi þegar ég tók við og alþjóðleg umræða á nei- kvæðum nótum var í hámarki. En það hefur verið virkilega skemmti- legt verkefni að takast á við það,“ seg- ir Halla sem hlakkar alltaf til að fara í vinnuna. „Ég hætti alltaf í störfum ef ég hlakka ekki lengur til. Við er- um auðvitað að fást við þrjú mjög mikilvæg málefni. í fyrsta lagi erum við að beita okkur fyrir því að hér sé viðskiptaumhverfi sem sé hagfellt. 1 öðru lagi erum við öflugur bakhjarl menntunar, við rekum Háskólann í Reykjavík og Verslunarskólann og styðjum við bakið á sjálfstæðum grunn- og leikskólum. I þriðja lagi erum við vettvangur tengsla hér inn- anlands og í auknum mæli á alþjóð- legum vettvangi.“ Geri sjálfri mér örugglega ekki auðveldara fyrir Halla segir að vissulega sé starfið annasamt. „I raun og veru skapar maður starfið dálítið mikið sjálfur og ég hef tilhneigingu til að gera sjálfri mér ekki auðveldara fyrir. Það er því alltaf mikið að gera en það er skemmtilegra þannig,“ segir Halla og bætir við að hún haldi að það sé gott að vera kona í viðskipta- heiminum og þar þyrftu að vera fleiri konur. „Ég held að það sé ýmislegt sem við höfum aðra skoðun á og það tel ég vera mjög gott. Til dæmis held ég að við leggjum stundum meiri áherslu á samstarf heldur en sam- keppni. Eins tel ég að við leggjum aðeins meiri áherslu á heildarmynd- ina frekar en ávinning okkar eigin hagsmuna og það held ég að sé mjög jákvætt.“ Allir þurfa að sanna sig „Það veit enginn fyrir víst hvaða áhrif kyn hefur því þú veist aldrei hvað hefði getað gerst,“ segir Halla þegar hún var innt eftir því hvort kyn hennar hefði eitthvað að segja. „Það hefur aldrei háð mér sérstaklega að vera kona en það er vissulega stað- fest í rannsóknum að í fjölmörgum tilfellum fá konur ekki rétt mat fyr- ir sín störf. Ég er fyrsta konan sem er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Islands og kannski var það skrýtið fyrir einhverja. Ég held að þetta sé bara spurning um að allir þurfi að sanna sig og ég hugsa að kannski þurfi konur stundum að sanna sig meira. En ég held að það sé enginn sem velti sérlega mikið fyrir sér kyn- ferði mínu núna. Það koma vissu- lega upp aðstæður þar sem ég er eina konan og of oft eru hóparnir í við- skiptalífinu of einsleitir. Almennt trúi ég á fjölbreytta hópa og ég er meðal annars hér því mér finnst skipta ofboðslega miklu máli að raddir kvenna og karla heyrist við mótun viðskiptalífsins og við upp- byggingu menntunar í landinu. Ég held að fjölbreytni skipti öllu ef ætl- unin er að skapa öflugra samfélag.“ svanhvit@bladid.net bókaklúbbar Flestar konur á (slandi eru í einhvers konar saumaklúbbi og jafnvel fleirum en einum. Svokallaðir bókaklúbbar hafa líka færst í aukana en þá lesa konurnar bækur sem valdar hafa verið. Síðan hittast þær og ræða ítarlega um efni bókar- innar. Bókaklúbbar hafa orðið sífellt vinsælli og það er ekki síst talið að Oprah Winfrey eigi þátt í þeirri menningu þar sem hún hefur starfrækt bókaklúbb í þáttum sínum um nokkurt skeið. í annasömum nútímanum er bókaklúbbur tilvalinn leið til að örva hugann og ýta undir lestur en mörgum finnst hrein- lega sem þeir hafi ekki tíma í lestur. Það er því tilvalið að fá vinkonurnar með og þræða bókasöfnin í leit að fróðlegu, skemmtilegu og jafnvel sorg- legu lesefni. Wýr framkvæmdastjóri SMÁÍS Höfundarrétturinn er mikilvægur Tinna Jóhannsdóttir tók nýlega við framkvæmdastjórn hjá SMÁIS, samtökum myndrétthafa á íslandi. Tinna segir að sér lítist mjög vel á starfið enda sé viðfangsefnið ein- staklega spennandi. „Ég byrjaði að kynna mér verkefnin í ágúst en byrjaði á fullu upp úr mánaðarmótum. Ég er vön sjópvarpsbransanum, var á Skjánum í nokkur ár og millilenti aðeins á 365. Ég kannast því að- eins við umhverfið þótt verkefni samtakanna snúi auðvitað að fleiru." SMÁÍS voru stofnuð árið 1992 til að vera hagsmunagæsla rétthafa myndefnis á íslandi og samtökin hafa ýmis hagsmunamál rétthafa á sínum snærum. Félagsmenn samtakanna hafa rétt til dreifing- ar á yfirgnæfandi meirihluta kvik- mynda- og sjónvarpsefnis og tölvu- leikja sem eru á íslenskum markaði. Aðild að samtökunum eiga kvik- myndahús, helstu útgefendur kvikmynda- og sjónvarpsefnis, sjónvarpsstöðvar og helstu dreifing- araðilar tölvuleikja. Aðspurð seg- ir Tinna að verndun höfunda- og hugverkaréttar sé afar mikilvægt hagsmunamál fyrir samfélagið allt. „Sömu lögmál gilda um höfund- arrétt í greinum myndbanda og Sömu lögmál Tinna Jóhannsdóttir: „Það gilda sömu lög- mál um höfundarrétt í greinum myndbanda og kvikmynda og í öllum öðrum greinum, hvort sem það eru bókmenntir, tónlist eða almennur hug- verkaréttur." Blammki kvikmynda og i öllum öðrum grein- um, hvort sem það eru bókmenntir, hugbúnað, tónlist, myndlist eða al- mennan hugverkaréttur.“ Að sögn Tinnu hafa umsvif SMÁ- ÍS aukist undanfarið ár og eitt hlut- verk samtakanna sé til dæmis að fræða fólk um afleiðingar ólöglegs upp- og niðurhals og koma í veg fyrir það. „Hallgrímur Kristinsson, sá sem ég tók við af byrjaði hérna í hlutastarfi og smám saman hefur þetta undið upp á sig. Undanfarin 4 til 5 ár hafa verkefnin gefið tilefni til þess að hafa starfsmann sem ræki batteríið. Við höfum einnig ný- lega tekið við hlutverki Kvikmynda- skoðunar.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.