blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 20
28 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 blaðiö konan «1 konan@bladid.net Ný klæði Nú er tímabil árshátíða og annarra vinnuskemmt- ana og því tilvalin afsökun til að kaupa sér tínan kjól eða annað glingur. Hví ekki að nota tækifærið og bæta við fataskápinn? Sanngirni Oft heyrist sú gagnrýni á konur að launamismunur kynjanna sé þeim sjálfum að kenna, þær sækist ekki eftir hærri launum og séu ekki nægilega aðgangsharðar. Er ekki tilvalið að afsanna það, arka inn á skrifstofu yfir- mannsins og krefjast sanngjarnra launa, óháð kyni? Barnungar mæður í Úganda Félagið Alnæmisbörn heldur sinn þriðja aðalfund í dag klukkan 16:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9. Alnæmisbörn var stofnað 22. mars 2004 að frumkvæði Erlu Halldórs- dóttur mannfræðings meðal annars til að styðja við starf hennar fyrir munaðarlausar stúlkur í Úganda og börn þeirra. Erla stofnaði kertagerð .Candle Light Foundation” í Kamp- ala árið 2001 og frá stofnun þess hafa 160 stúlkur notið aðstoðar þar. Erla lést langt um aldur fram í árs- lok 2004 og síðan hefur félagið með góðum stuðningi ættingja og vina Erlu haldið áfram starfi hennar. Menntun til framtíðar Candle Light tekur við foreldra- lausum ungum stúlkum af götunni og stúlkur með börn á framfæri ganga fyrir auk þess sem sumar eru einnig með systkini á framfæri. Stúlkunum er hjálpað til að fá hús- næði eða finna ættingja sína. Þær fá endurhæfingu, vinna í kerta- gerðinni og fá peninga fyrir auk þess sem þar er einnig barnapöss- un. Síðan fá stúlkurnar tækifæri til að afla sér menntunar, margar stúlknanna fara í verklegt nám í verkmenntaskólum og aðrar í fram- haldsskóla. Einnig hafa verið haldin verkleg námskeið hjá Candle Light aðallega i saumaskap, tölvufærni og öðru handverki með styrk frá Alnæmisbörnum. í rannsókn sem gerð var hjá Candle Light á síðasta ári af Sigríði Baldursdóttir, masters- nema í mannfræði við Háskólann í Stokkhólmi, kom fram að Candle Light hefur haft gríðarleg áhrif á líf stúlknanna þar sem þær fá mennt- un og kunnáttu til framtíðar. Eigin rekstur Næsta verkefni Alnæmisbarna er að stofna svokallaðan smálánasjóð en það er mikilvægt að fylgja stúlkunum eftir þegar þær fara frá Candle Light og styðja þær í að byrja nýtt líf. Erfitt er að fá vinnu í Úganda og því er mikilvægt að hafa menntun og verkkunnáttu sem hægt er að nota til að skapa sér sjálfstæða afkomu. Smálánasjóður- inn er ætlaður til að lána stúlkunum til að hefja eigin rekstur, til dæmis með kaupum á saumavélum eða hár- greiðsluverkfærum. Jafnframt því að fá lán er veitt fræðsla um rekstur og fjármál. Frekari upplýsingar um starf Alnæmisbarna og aðalfund- inn má finna á www.hiv-born.is Léttur og heilbrigður líkami - kíktu inn á metasys.is metasys.is YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03 YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunar- æfingar, slökun og hug- leiðsla. Sértímar fyrir byrjendur og Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar. NÝTT! Astanga yoga barnshafandi konur. www.yogaheilsa.is Sigríður Björnsdóttir: „Það sem er brýnast núna er fyrst og fremst að by- rja fræðsluna snemma, að allir skólar og leikskólar séu skyldaðir til að vera með fræðslu fyrir börnin. “ Blam/Eyþ6r Sigríður Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Blátt áfram Leyndin verri en ofbeldið Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd. svanhvit@bladid.net Það var nóg að gera hjá Sigríði Björnsdóttur, framkvæmdastjóra Blátt áfram, þegar Blaðið hafði samband við hana en Blátt áfram er að vinna í nýrri auglýsingaher- ferð. Aðspurð hvort herferðin muni vekja eins mikið umtal og síðasta herferð Blátt áfram segir Sigríður að það geti alveg verið. „I þessari herferð erum við að minna fólk á að kynferðislegt ofbeldi ger- ist nær þér en þú heldur," segir Sig- ríður og bætir við að það sé sífellt meiri umræða um kynferðislegt ofbeldi í samfélaginu. „Það sem er brýnast núna er fyrst og fremst að byrja fræðsluna snemma, að allir skólar og leikskólar séu skyld- aðir til að vera með fræðslu fyrir börnin. Það er hægt að fræða börn- in um hvað má og hvað má ekki, hvað sé góð og slæm snerting og þá erum við að hjálpa þeim að vera betur í stakk búin til þess að takast á við hluti sem munu koma upp í þeirra umhverfi. Kyn- ferðislegt ofbeldi gerist oftast inni á heimilinu og börnin fá ekki alltaf fræðslu þar. Fræðslan verð- ur því einnig að koma utan frá.“ „Að halda leyndarmál í einhvem tíma getur verið verra en ofbeldið sjálft. Því fyrr sem við fáum bömin til að segja frá því betra." Góðar og slæmar snertingar Auk þess að undirbúa auglýsinga- herferð er Sigríður að fylgja eftir bók sem Hagkaup gaf út í samstarfi við Blátt áfram en hún fjallar um „Mína einkastaði. Bókin er tæki til að kenna og leiðbeina börnum um líkama þeirra og hvernig snerting er í lagi og hvað á að gera ef einhver snertir einkastaði þeirra. „Við höfum fengið mjög góðar móttökur og frábær við- brögð frá foreldrum. Ég hef meira að segja heyrt að konur sem eiga ekki börn kaupi bókina. Mér finnst þetta meiriháttar en ástæðan fyrir því að við gáfum út þessa bók er sú að fólk vantaði verkfæri. Allur ágóði bókarinn- ar rennur til Blátt áfram en Hagkaup sá um prentun og útgáfukostnað auk þess sem Hagkaup gaf öllum leikskól- um landsins eina bók,“ segir Sigríður sem heldur venjulega þrjá til fjóra fyr- irlestra í viku. „Unglingar taka þessari umræðu vel og spyrja margra spurn- inga. Ég hef fyrirlestrana á léttum nótum svo þeir séu ekki háalvarlegir. Ég er opinská, tala sérstaklega út frá minni reynslu og hvað mér hefur þótt vanta í fræðslu um samskipti. Oftar en ekki er einhver unglingur sem opn- ar sig og segir frá sinni reynslu eftir þessar heimsóknir og það sama gerist þegar við tölum við fullorðna." Því fyrr því betra Sigríður segist finna fyrir miklum breytingum í kjölfar fræðslu um kyn- ferðislegt ofbeldi. „Við erum rétt að byrja og ef við höldum fræðslunni áfram jafnt og þétt þá sjáum við virki- legar breytingar. Því meiri fræðsla því meiri viðbrögð og þá þarf kerfið að vera tilbúið að taka á móti öllum þessum börnum og málum sem munu koma upp. Ríkið og félagsmála- ráðherra þurfa því að veita meira fé í þennan farveg til að taka á móti þeim málum.“ Aðspurð hvort það skipti miklu fyrir þolendur kynferðislegs of- beldis að segja frá ofbeldinu segir Sig- ríður að það skipti mestu máli. „Að halda leyndarmál getur verið verra en ofbeldið sjálft. Því fyrr sem við fáum börnin til að segja frá þvi betra. Ef þau segja ekki frá þá brýst þetta út á einn eða annan hátt þegar þau eru orðin eldri, í andlegu, líkamlegu eða sálrænu áfalli.“ Ovýjar vörur d Ceíðínní JXýmíngarsaCa d 6útas aumefnum 400-1000 kr. á m Œ)iza Laugavegi 44 • S: 561-4000 • www.diza.is Silvía Nótt Sæmundsdóttir Aldur: 22 ára Starfsheiti: Selebrity / Recording artist 1. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítil? Bara eitthvað ógeðslega kjúttlegt. 2. Ef ekki hér, hvar þá? Kannski bara í himnaríki, ég held samt að það sé ekki góð lykt þar. Fullt af einhverju dauðu fólki þar, bara eitthvað að rotna á fullu í góðu chilli. 3. Hvað er kvenlegt? Að vera ógeðslega sæt. 4. Er munur á körlum og konum og ef svo er hver er hann? Stelpur eru með pjöllur og strákar eru með tippaling. 5. Er fuliu jafnrétti náð? Ég veit ekki, ég er ekkert mikið að spá í svona pólitík með pissulykt af hárinu eins og sumar stelpur. 6. Hvað skiptir þig mestu í lífinu? Kannski bara ég sjálf, ég er svo mik- ið krútt. 7. Helstu fyrirmyndir? Mér fannst Isöldin 1 rosa góð en verð samt að segja að mér finnst Happy Feet best. 8. Ráð eða speki sem hef- urreynstþérvel? Veit ekki, bara eitthvað fínt. 9. Uppáhaldsbók? Bækur eru fyrir lúða sem fara aldrei neitt nema með mömmum sínum í IKEA að kaupa ís. 10. Draumurinn minn? Bara eitthvað ógeðslega kjúttlegt.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.