blaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007
blaöiö
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@bladid.net
Stríð er huglaus flótti frá
vandamálum friðarins.
Thomas Mann
Ný bók
frá Marinu
Hjá Máli og menningu er
komin út bókin Tveir hús-
vagnar eftir Marinu Lewycka.
í bókinni kynnumst við ör-
Iögum þess fólks sem streymt
hefur til
Vestur-
landa í leit
að betri
lífskjörum.
Það kemur
frá Úkraínu
og Póllandi,
Kína og
Kosovo og
fjarlægum
lýðveldum
Sovétríkjanna fyrrverandi
og er farið að tína jarðarber í
enskri sveit fyrir lúsarlaun.
Stutt ágrip af sögu traktorsins
á úkraínsku eftir sama höfund
naut mikilla vinsælda hér á
landi og víða um heim. Marina
Lewycka er af úkraínskum
ættum, fædd í flóttamanna-
búðum í Þýskalandi en ólst upp
í Englandi og býr þar.
verðlaunahafa
Nóbelsverðlaunahafinn J.M.
Coetzee heldur fyrirlestur á
Hátíðarsal Háskóla fslands í
dag, miðvikudaginn 12. sept-
ember kl. 16:00. Fyrirlesturinn
er hluti af Bókmenntahátíð
Reykjavíkur og er í sérstöku
samstarfi við Háskóla íslands.
Fyrirlesturinn byggir á nýút-
kominni bók Coetzee, Diary of
a Bad Year. Bókin fjallar um
roskinn ástralskan rithöfund
sem fær það verkefni að skrifa
grein í bók sem ber heitið
Strong opinions. Það verður
til þess að hann fer að velta
vöngum yfir uppruna ríkisins,
sambandi þess við borgarana
og hvernigþegnar i nútímalýð-
ræðisríki eiga að bregðast við
skertum mannréttindum í her-
ferðinni gegn hryðjuverkum,
herferð sem jafnvel felur í sér
pyntingar.
Rúnar Helgi Vignisson, sem
hefur þýtt bækur Coetzee á
íslensku, verður með stutta
kynningu á höfundinum og
verkum hans. Rúnar hlaut
íslensku þýðingaverðlaunin
fyrir þýðingu sína á Boyhood
(Barndómur).
Coetzee kemur afar sjaldan
fram opinberlega og frést hefur
að erlendir aðdáendur hans
hafi gert sér sérstaka ferð til
íslands til þess eins að hlýða á
hann.
AFMÆLI í DAG
H.L. Menken blaðamaður
og gagnrýnandi, 1880
Maurice Chevalier leikari
og söngvari, 1888
Eggert Pétursson „Þetta er
dálítið eins og mataruppskrift.
Það eru ákveðnir hlutir sem þarf
að setja í myndina og litir og teg-
undir þurfa að fara saman."
Eggert Pétursson sýnir á Kjarvalsstöðum og í i8
Þrjóska er meginþátturinn
Eggert Pétursson segir
nákvæmi vera hluta af
vinnu sinni ásamt einbeit-
ingu en meginþátturinn
sé samt þrjóskan.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@bladid.net
Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir
yfirlitssýning á verkum Eggerts Pét-
urssonar en hann er landsfrægur
fyrir einstakar blómamyndir sínar.
Verkin á sýningunni eru um 50, þau
yngstu frá þessu ári og elsta mál-
verkið er frá fyrstu einkasýningu
listamannsins árið 1980. Á morgun
verður svo opnuð í Galleríi i8 sýning
á hundrað nýjum málverkum eftir
Eggert.
„Eg byrjaði að safna blómum sem
barn og greindi þau samkvæmt ís-
lensku flórunni sem mér var gefin
þegar ég var sex ára gamall. Ég
MAÐURINN
►
Eggert hélt fyrstu einkasýn-
ingu sína í Suðurgötu 7 árið
1980. Þar sýndi hann plöntu-
þrykk á vatnslitapappír.
►
í tilefni af sýningu Eggerts á
Kjarvalsstöðum, sem stend-
ur til 4. nóvember, er gefin
út bók um listamanninn.
►
Sýningin í Galleríi i8 stendur
til 27. október.
hafði áhuga á að verða grasafræð-
ingur þegar ég var krakki en síðan
tók myndlistaráhuginn við og í
kjölfarið fékk ég alls konar aðrar
dellur, hafði áhuga á arkitektúr
eitt árið og einhverju öðru hin
árin en blómaárið var samt alltaf
þarna,“ segir Eggert. „Ég fór í Mynd-
lista- og handíðaskólann og síðan í
framhaldsnám til Hollands. Eftir
heimkomuna var fyrsta verkefni
mitt að myndskreyta nýja útgáfu
af íslenskri flóru sem Iðunn gaf út
1983 og ég var heilt ár að vinna að
því verki. Frá 1980 til 1990 vann ég
mikið við að myndskreyta náttúru-
fræðirit en svo fór málverkið smám
saman að ná yfirhöndinni og ég hef
einbeitt mér að því síðan."
Eins og mataruppskrift
Enginn sem sér myndir Eggerts
kemst hjá því að sjá hversu mikil ná-
kvæmnisvinna liggur að baki hverri
mynd. „Nákvæmni er hluti af vinn-
unni og sömuleiðis einbeiting en
þrjóska er meginþátturinn. Maður
gefst ekkert upp,“ segir Eggert. „Alls
konar hugmyndavinna á sér stað
áður en ég byrja að mála mynd. Ég
sest ekki fyrir framan trönurnar og
byrja einhvers staðar. Þetta er langt
ferli. Ég leita að ákveðnum blóma-
tegundum, mynda þær og skoða,
ekki beinlínis til að fara eftir þeim
heldur til að muna hvernig þær eru.
Svo teikna ég skissu og skrifa mikið
hjá mér í nótubækur. Útlit myndar-
innar er ekki fullmótað í huga mér
áður en ég byrja að mála. Þetta er
dálítið eins og mataruppskrift. Það
eru ákveðnir hlutir sem þarf að setja
í myndina og litir og tegundir þurfa
að fara sarnan."
Hin viðtekna fegurð
Spurður um fegurðina sem ein-
kennir myndir hans segir Eggert:
„Það er til margs konar fegurð. í
myndum mínum endurspeglast
sennilega hin viðtekna fegurð því
það er mjög erfitt að segja að blóm sé
ljótt, jafnvel líka illgresi. Olíulitirnir
og blómin þykja falleg og það verður
bara að hafa það. Ég er mikill áhuga-
maður um alls konar myndlist og
hef frekar víðsýna hugmynd um það
hvað er fallegt. Ég er ekki að reyna
að koma fegurð til skila í gegnum
myndir mínar, það vill bara þannig
til að þessar myndir eru fallegar."
MENNINGARMOLINN
Svartklæddi
maðurinn deyr
Á þessum degi árið 2003 dó tón-
listarmaðurinn Johnny Cash, 71
árs gamall. Á tæplega fimmtíu ára
ferli hljóðritaði hann rúmlega 1500
lög. Hann hafði fyrir venju að klæð-
ast svörtum fötum á tónleikum
sínum og var fyrir vikið kallaður
.svartklæddi maðurinn". Hann
varð snemma á ferlinum háður
amfetamíni og áfengi sem átti
sinn þátt í skilnaði hans frá fyrri
eiginkonu sinni, Vivian, eftir tólf
ára hjónaband en þau áttu saman
fjögur börn. Seinni eiginkona hans
var söngkonan June Carter, stóra
ástin í lífi hans, sem aðstoðaði
hann við að losna úr viðjum fíkni-
efnavandans. Árið 1986 gaf Cash
út skáldsöguna Hvítklæddi maður-
inn um Pál postula en í baráttunni
við fíkniefnin hafði Cash leitað á
náðir trúarinnar og bundist vin-
áttuböndum við Billy Graham. Ást-
kær eiginkona Cash, June, lést 15.
maí 2003 og Cash lést fjórum mán-
uðum síðar, 12 september.