Fréttablaðið - 20.01.2012, Blaðsíða 42
20. janúar 2012 FÖSTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
Myndlist ★★★★ ★
Í afbyggingu
Libia Castro og Ólafur Ólafsson
Til 19. febrúar. Listasafn Íslands er opið 11-17 alla daga nema
mán.
Sungið í Feneyjum
Ólafur og Libia voru fulltrúar Íslands
á Tvíæringnum í Feneyjum á síðasta
ári. Nú stendur yfir í Listasafni
Íslands sýning á Feneyjaverkunum.
Þetta eru þrjú, samsett verk; Landið
þitt er ekki til, Stjórnarskrá lýðveldis-
ins Íslands, og Niðurkvaðning fornra
drauga. Eins og önnur verk Libiu og
Ólafs eru innsetningarnar lagaðar
að því húsnæði þar sem þær eru
sýndar.
Listamennirnir hafa á ferli sínum leitast við að vinna með ýmsa þætti menn-
ingar á ólíkum stöðum. Ýmist í beinum tengslum við staðbundna menningu
eða óbeint eins og í verkinu Landið þitt er ekki til, þar sem merkingin breytist
eftir aðstæðum. Þau hafa m.a. vakið athygli á kjörum verkamanna, fjölmenn-
ingu samtímans og stöðu kynjanna. Svo ég grípi til nokkurrar einföldunar
leitast þau í list sinni almennt við að birta og vekja athygli á almennum,
viðteknum hugmyndum og aðstæðum í samfélagi samtímans, einna helst í
hinum vestræna heimi. Stundum leita þau til fortíðar, til hugmynda og skrifa
liðinnar tíðar, en þá einnig til að varpa ljósi á samtímann.
Vinnuaðferðir þeirra eiga að hluta rætur sínar að rekja til vinnu listamanna
á síðari hluta tuttugustu aldar, hugmyndalistamanna og þeirra sem litu á list
sem mögulegt tól á pólitískum vettvangi. Hugmyndir situationista koma upp
í hugann, eins t.d. samspilið og andstæðurnar í textum, myndum og hljóði í
kvikmyndum franska leikstjórans Jean-Luc Godard. Í samtímanum hefur list
þeirra verið tengd venslalist; list í tengslum við samfélagslegt umhverfi.
Libia og Ólafur vinna í ýmsa miðla og sækjast eftir því að ná til almennings
sem kemur t.d. fram í samvinnu þeirra við RÚV. Verk þeirra eru misjafnlega
opin til túlkunar, sum eru nokkuð flókin, önnur tærari og skýrari. Hljóðverkið
Niðurkvaðning fornra drauga býr yfir dirfsku og húmor en inntak þess skilar
sér ekki nema mátulega, erótísk áleitni verksins og samspil texta, stuna og
andvarpa eru spennandi út af fyrir sig en tengslin milli inntaks verksins og
útfærslu þess rofna svolítið fyrir vikið.
Samvinnan við tónskáldið Karólínu Eiríksdóttur er frjó og vel til fundin.
Landið þitt er ekki til er mjög vel heppnað í útfærslu þess í Feneyjum. Söngur
Ásgerðar Júníusdóttur er kraftmikill og glæsilegur þegar hann ómar um síki
Feneyja, hugmyndin um söngkonu í gondól sem myndlistarverk í almennings-
rými er afbragð, og myndbandið nær að sýna sérstakt götulíf Feneyja sem
áhugavert mótvægi við sunginn textann. Stjórnarskráin er líka skemmtileg
hugmynd, skýrt útfærð og vekur áhorfandann og hlustandann til umhugsunar
um grundvallargildi samfélagsins.
Í heildina er sýningin áhugaverð og vel unnin og áhugavert fyrir almenning
að sjá framlag Íslands til eins mikilvægrar sýningar og Tvíæringurinn í Feneyjum
er á alþjóðavettvangi. Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Libia og Ólafur voru fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum á síðasta ári. Áleitin
verk þeirra fjalla um menningu og málefni samtímans. Frábært framlag þeirra Karólínu Eiríks-
dóttur tónskálds og Ásgerðar Júníusdóttur söngkonu gera sýninguna sérstaklega skemmtilega
heim að sækja.
Rannsóknir sem sýna
slakan lesskilning ung-
menna urðu til þess að
hópur rithöfunda tók hönd-
um saman og skipulagði
ráðstefnu sem fram fer á
morgun. Vonir standa til
að hún verði upphaf að efl-
ingu lesturs á Íslandi.
„Kveikjan að ráðstefnunni voru
ógnvekjandi upplýsingar sem þjóð-
inni bárust á haustdögum, niður-
stöður Písakönnunar sem sýndu
meðal annars að þriðjungur 15 ára
drengja skilji varla skólabækur,“
segir Kristín Helga Gunnarsdóttir
rithöfundur sem er meðal aðstand-
enda ráðstefnunnar Alvara máls-
ins – Bókaþjóð í ólestri sem fram
fer í Norræna húsinu á morgun.
„Í ofanálag hafa borist fregnir
um niðurskurð á skólabókasöfn-
um og að fullorðnir, þar með talið
kennarar, fylgist lítt með því sem
er í boði til lestrar fyrir börn og
unglinga. Í framhaldi af þessum
fréttum hópuðum við okkur saman
nokkrir rithöfundar og veltum því
fyrir okkur hvað við gætum gert
til þess að sporna við þessu. Læsi
er grunnur að þroska samfélags-
ins og við erum sammála um að vel
læs þjóð sé betur búin undir fram-
tíðina en illa læs,“ segir Kristín
Helga.
Hún bætir við að fjölskyldur
gætu gert margt vitlausara en að
hefja húslestur til fyrri virðing-
ar. „Fjölskyldur gætu líka stofnað
leshring innan veggja heimilisins.
Það er fullorðinsmál að börn lesi
og við þurfum sannarlega að gera
meira en að biðja börnin bara að
slökkva á tölvunni og fara að lesa.
Ráðstefnan er ákall til þjóðar-
innar, við viljum að hver og einn
spyrji sig hvernig get ég lagt mitt
af mörkum?” sigridur@frettabladid.is
LÆSI ER GRUNNUR AÐ
ÞROSKA SAMFÉLAGSINS
VEL LÆS ÞJÓÐ BETUR BÚIN UNDIR FRAMTÍÐINA Það er fullorðinsmál að börn lesi
segir Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ráðstefnan í Norræna húsinu hefst á morgun klukkan tvö og stendur til
fjögur. Dagskráin hefst með söng Ljótakórsins, þá flytur Jón Kalman Stefáns-
son rithöfundur ávarp, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor og forstöðumað-
ur Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi við Menntavísindasvið Háskóla
Íslands, flytur erindið Lestur er málið. Læsi er skilningur er erindi Daníels
Andra Halldórssonar nema í 10. bekk í Giljaskóla á Akureyri. Þá heldur
Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og lektor við Háskólann á Akureyri,
erindið Lestrarhestamennska – heillandi fjölskyldusport og að lokum flytur
Guðmundur Engilbertsson, lektor við Háskólann á Akureyri, erindið Lestur er
bæði yndisleg og uppbyggileg iðja. Svavar Knútur syngur og leikur.
Dagskrárstjóri er Eva María Jónsdóttir.
Ráðstefnan er haldin í samvinnu rithöfundanna við Rithöfundasamband
Íslands, Reykjavík Bókmenntaborg Unesco, Rannsóknarstofu um þroska,
mál og læsi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og
Norræna húsið.
ALVARA MÁLSINS
Svörtu keilunni, minnisvarða
um borgaralega óhlýðni, verður
komið fyrir á Austurvelli í dag
klukkan 13. Verkið samanstendur
af nær tveggja metra háum stein-
dranga. Tæplega hálfs metra svört
stálkeila verður rekin í bjargið
og þannig framkölluð varanleg
sprunga í það.
Það er spænski listamaður-
inn Santiago Sierra sem stendur
að baki gjörningnum, en hann er
hluti af sýningu listamannsins
sem nú stendur yfir í Hafnarhúsi
Listasafns Reykjavíkur.
Með gjörningnum vill Sierra
minna á mikilvægi borgaralegra
réttinda í lýðræði og þar með talið
rétt þegna til að neita því að hlýðn-
ast óréttlátum lögum og kröfum
yfirvalda.
Dagsetning gjörningsins er
valin vegna sögulegra mótmæla
sem haldin voru á Austurvelli
fyrir þremur árum, 20. janúar
2009, þegar þúsundir einstak-
linga söfnuðust þar saman í tilefni
af setningu Alþingis. Tilgangur
gjörningsins er að minnist þeirra
mótmæla og bylgju mótmæla sem
hafa átt sér stað víða um heim á
síðustu árum, allt frá arabíska
vorinu til umsátursins um Wall
Street.
Sýning Sierra stendur til 15.
apríl. - hhs
Svarta keilan sett
upp á Austurvelli
NEI! Gjörningur Santiago Sierra hefur vakið athygli vegfarenda í Reykjavík undan-
farna daga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÚTGÁFU BÓKARINNAR EQUIVOCAL verður fagnað í húsakynnum Crymogeu á Barónsstíg 27 í dag klukkan 17.
Bókin inniheldur ljósmyndir Katrínar Elvarsdóttur sem sýndar voru í Galleríi Ágústi á sýningum árið 2008 og 2010.
TVÆR NÝJAR KILJUR
Táknmál blómanna
Tilfinningarík og átakamikil saga
Baldursbrár
Vægðarlaus spenna
frá byrjun til enda
Gildir til 25. janúar á meðan birgðir endast.
2.199,-
Kynningarverð
2.499,-
2.199,-
Kynningarverð
2.499,-