Fréttablaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 38
17. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR26
Gjöfin þín
Ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 6.200 krónur
eða meira, dagana 17. – 24. apríl í Lyfju Lágmúla,
Lyfju Smáratorgi og Lyfju Selfossi
Gjöfin inniheldur:
Splash Away Cleanser– andlitshreinsi, 30ml Fresh Balancing Exfoliator – kornakrem, 30ml
Idealist – sermi sem jafnar út litamisfellur, 7ml Daywear – háþróað andlitkrem, 15ml
Advance Night Repair Eye – augnkrem, 5ml Pure Color Lipstick – varalit, fulla stærð, lit Candy shimmer
Sumtuous Mascara – svartan maskara Sumarlega snyrtistösku
Verðgildi gjafarinnar er ca. 24.740.-
*meðan birgðir endast.
Brúðuleikritið „Númi með höfuð-
in sjö“ verður sýnt í Iðnó klukkan
17.30 á morgun. Sýningin er hluti
af barnamenningarhátíð sem
hefst sama dag.
Númi er mesti hrakfallabálkur
og lendir í ýmsum hrakningum
þar til hann fer að nota höfuðið og
hugsa um afleiðingar uppátækja
sinna. Bókin um Núma með höf-
uðin sjö er eftir Sjón en brúðu-
leikritið gerði Helga Steffensen.
Helga og Gígja Hólmgeirsdótt-
ir stjórna brúðunum. Sýningin
tekur rúma hálfa klukkustund.
Númi á
barnahátíð
NÚMI Leikritið um Núma byggir á bók
eftir rithöfundinn Sjón.
NOTA BENE Þótt vægi latínu hafi
minnkað gætir áhrifa hennar enn víða.
Nota Bene – latína á Íslandi nefnist
ný bók eftir Jón R. Hjálmarsson
sem Suðurlandsútgáfan gefur út.
Í bókinni er sagt frá latnesk-
um áhrifum hér á landi og nefnd
dæmi þar um svo sem í manna-
nöfnum, máli kirkju og skóla og
ýmsu fleira. Þá eru í bókinni lat-
neskar bænir, ljóð, sögur og sagnir
og ýmiss annar fróðleikur auk
latneskra orðtaka, spakmæla og
algengra skammstafana.
Jón R. Hjálmarsson er fyrr-
verandi skólastjóri í Skógum og
fræðslustjóri á Selfossi. Bókin var
gefin út í tilefni níræðisafmælis
höfundar í mars en eins og hann
segir í formála var latínan meðal
höfuðnámsgreina í máladeild
þegar hann var í menntaskóla
fyrir rúmum sextíu árum. Síðan
þá hefur dregið mjög úr vægi
latínunnar en þetta tungumál var
gríðarmikill áhrifavaldur um aldir
og áhrifa latínunnar gætir víða
í íslensku sem og í fjölmörgum
öðrum tungumálum.
Nýtt rit um
áhrif latínu
Að meðaltali fjórar íslenskar bíó-
myndir verða sýndar á dag í lista-
miðstöðinni Lincoln Center í New
York dagana 18. til 26. apríl. Það
voru Kvikmyndaklúbbur Lincoln
Center og Kvikmyndamiðstöð
Íslands sem skipulögðu dagskrána
sem ber yfirskriftina Myndir
frá jaðrinum: Sígildar og nýjar
íslenskar kvikmyndir.
Á annan veg, kvikmynd Haf-
steins Gunnars Sigurðarsonar frá
árinu 2011, verður opnunarmynd-
in á dagskránni í Lincoln Cen-
ter, en í heild verða þar sýndar
tuttugu kvikmyndir, sem spanna
rúmlega sex áratugi í kvikmynda-
sögu Íslands. Meðal annarra kvik-
mynda sem sýndar verða má nefna
Milli fjalls og fjöru í leikstjórn
Lofts Guðmundssonar, Rokk í
Reykjavík í leikstjórn Friðriks
Þórs Friðrikssonar, Nóa Albínóa í
leikstjórn Dags Kára Gunnarsson-
ar og Eldfjall í leikstjórn Rúnars
Rúnarssonar.
Sýning kvikmyndanna þykir
mikill heiður fyrir íslenska kvik-
myndagerð og gæti hæglega
orðið til að auka veg hennar, en á
hverju ári heimsækja um 5 millj-
ónir gesta hina ýmsu listviðburði
í Lincoln Center, sem hýsir meðal
annars Metropolitan-óperuna, Fíl-
harmóníusveit New York-borgar
og New York-ballettinn. - hhs
Íslenskt bíó í brennidepli í New York
Á ANNAN VEG Kvikmynd
Hafsteins Gunnars
Sigurðssonar frá árinu
2011 er opnunarmyndin
á dagskránni í Lincoln
Center.