Prentarinn - 01.09.1999, Blaðsíða 4

Prentarinn - 01.09.1999, Blaðsíða 4
Hvernig fannst þér námið og hvemig fannst þér mennt- unin að heiman gagnast þér? „Mér fannst skólinn góður, kennararnir margir mjög færir og miklir fræðimenn hver á sínu sviði. Það er mjög undir manni sjálfum komið hversu djúpt farið er eða hvaða áherslur maður vill setja sér. Mér fannst ég vera nokkuð vel undir þetta búinn fag- lega og ég held að íslenskir fag- menn standi framarlega og þurfi ekki að skammast sín fyrir sín störf. Það er til dæmis mjög óal- gengt hérna úti að prentari eða bókbindari geti gengið á milli véla og verið jafnfær á þær allar eins og algengt er heima Er hœgt að fara í fram- haldsnám til viðbótar þessu? „Eftir BA próf í prentrekstrar- fræði er ekki um að ræða beint framhald en prófið gefur mér rétt til að fara í almennt framhaldshá- skólanám. Eg hygg til dæmis á frekara nám í febrúar næstkom- andi. Ég ætla að skella mér í Mastersnám í Business Ad- ministration (MBA) með sérhæf- ingu í alþjóðaviðskiptum og stjórnun. Það er ekki neitt sérnám tengt prenti eða upplýsingamiðlun en óneitanlega er maður að horfa á þann iðnað sem framtíðarsvið, enda fer ég í þetta nám á vegum RR Donnelley. Prentrekstrarfræð- in eins og hún er kennd í LCP er meira viðskipta- og stjórnunar- tengt nám í upplýsingagreinum en tæknilegt og það hafa alls ekki allir sem í þetta fara einhvern bakgrunn úr sjálfum iðnaðinum. Þó að tæknihliðin sé gífurlega ít- arleg og taki mikið af námstíman- um þá er aðaláherslan á við- skiptahliðina. Þetta er því ekki rétta námið fyrir fólk sem hefur gaman af að vinna við sjálfa tæknina." Ertu búinn að fá einhverja vinnu? „Mér fannst það vera sjálfsagt mál að ég fengi vinnu um leið og náminu lyki og fór í gegnum síð- asta árið með því hugarfari. Um haustið fékk ég tækifæri til að vinna ráðgjafarverkefni fyrir eitt stærsta fjármálaprentfyrirtækið í Bretlandi og gat ég talið skólann á að láta það virka sem BA rit- gerðina mína. Ég vann með þeim allan veturinn við að koma með tillögur um hagræðingu og straumlínulögun á verkflæðinu þeirra og var það mjög áhugavert og gekk vonum framar. Þegar ég fór að sjá fyrir endann á þeim vinnu fór ég að hugsa um hvar ég myndi vilja vinna og setti mig í samband við nokkur fyrirtæki hérna úti, meðal annars fyrirtækið sem ég vann BA verkefnið mitt fyrir. Það komu nokkur tilboð út úr því en ekkert sem mér fannst vera sérstaklega áhugavert. Ég hafði sótt um hjá banda- rísku fyrirtæki sem heitir RR 4 ■ PRENTARINN Donnelley Financial fyrr um vet- urinn en átti ekki von á að fá svar frá þeim. Donnelley er stærsta prent- og miðlunarfyrirtækið í heiminum og er kannski hægt að líkja þeim við Microsoft í tölvu- bransanum, það sækja allir um hjá þeim sem útskrifast úr háskól- um í heiminum en færri fá ein- hver svör. Þessvegna var ég bara búinn að steingleyma að ég hefði sent þeim bréf. Þó hafði ég hitt nokkra af stjórnendum þeirra í ýmsum samkvæmum um veturinn en ekki rætt nein atvinnumál. En allt í einu hringdi síminn hjá mér og þeir báðu mig um að koma í viðtal og réðu mig síðan samdæg- urs. Þannig að ég var nokkuð sátt- ur við þau leikslok. RR Donnelley Financial er einn hluti af risastóru móðurfyrirtæki sem heitir RR Donnelley & Sons, fyrirtækið hefur um 30 þúsund starfsmenn og velti um 7 millj- örðum dollara á síðasta ári. Donn- elley Financial sérhæfir sig í miðlun upplýsinga tengdum hlutabréfamarkaðinum. Allt frá því að leigja út fundaraðstöðu til að klára samrunasamninga og hlutafjárútboð og skrá upplýsing- ar á markaðinum og til þess að gefa út og dreifa upplýsingum út um allan heim, hvort sem er í prentuðu formi eða á Netinu." Segðu okkur í hverju starfið felst. „Þegar ég byrjaði hjá RR Donnelley Financial var ég að vinna við ýmis sérverkefni tengd verðútreikningum og kostnaðar- greiningu ásamt því að koma að þróun á tölvukerfinu sem við not- um. Mér fannst það nokkuð

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.