Prentarinn - 01.10.2000, Blaðsíða 22
Enn og aftur
Greinarhöfundar:
Jakob Vibar
Gubmundsson,
Þorkell S. Hilmarsson
og Bragi Gubmundsson
Eins og áður hefur komið fram
fórum við félagarnir Bragi Guð-
mundsson, Jakob Viðar Guð-
mundsson og Þorkell Hilmarsson
á Drupu, stærstu og mestu prent-
sýningu sem haldin er. Við hittum
m.a. marga íslenska umboðsmenn
og þykir mér rétt að fram komi í
stórum dráttum hvað þeir höfðu
fram að færa.
Fyrstan hittum við fyrir Guðjón
Sigurðsson í Hvítlist en hann er
umboðsmaður Indigo á íslandi.
Bás Indigo á Drupa vakti mikla
og verðskuldaða athygli og var
þvílíkur ys og þys á svæðinu að
mörgum þótti nóg um. Sýningin
„Spennið beltin“ var fjölsótt og
stóð fólk í biðröð til að skrá sig
til sætis, en sýnt var fjórum sinn-
um dag hvern. Fáir voru þeir sem
ekki voru furðu lostnir að lokinni
þessari frábæru sýningu. A tutt-
ugu mínútum var útbúin taska
sem innihélt fjölbreytta prent-
gripi, alla persónugerða fyrir
hvern einstakan sýningargest.
Efni sýningarinnar var ofið um
framkvæmdina þannig að gestum
gafst kostur á að fylgjast með
ferlinu við prentun verkanna og í
lok hverrar sýningar ávarpaði for-
stjóri Indigo, Benny Landa, sýn-
ingargesti og þakkaði komuna. A
sýningarstandi Indigo voru allar
þær gerðir prentvéla sem Indigo
framleiðir nú þegar kynntar í
vinnslu, allt frá E Print Pro, sem
er mjög hentug „byijendavél“ í
stafrænni veröld, upp í framtíðar-
tröll, sem skilar 8.000 eintökum í
fjórlit beggja vegna á klukku-
stund og er sérstaklega sniðið að
þörfum tímaritaútgáfu. Þá var
sýnd „ljósmyndaprentvél“, sem
hugsuð er fyrir ljósmynda- og
framköllunarfyrirtæki. Það sem
einkum virtist skilja Indigo prent-
vélar frá öðrum vélum til sam-
bærilegra nota, var undirstrikað á
Drupa: 1) Gæði sömu og í offset,
byggist m.a. á fljótandi farfa,
blanketi og plötu. 2) 7 lita Panto-
ne litakerfi og blöndunarstöð fá-
anleg. 3) Enginn hiti í pappír eftir
prentun og eftirvinnsla því tafar-
laus. 4) Fjölbreyttir möguleikar í
vali efnis, þ.e. pappírs, plasts,
o.þ.h. Fjölmargir íslenskir prent-
smiðir kynntu sér Indigo vélar í
keyrslu og nutu góðrar leiðsagnar
starfsmanna Indigo, sem keppa
um að fá að koma til íslands til
að setja upp vélar. Ef marka má
undirtektir er líklegt að það geti
orðið á næstu misserum. Næstan
hittum við Bjama Jónsson sölu-
mann lijá Gunnari Eggertssyni en
Gunnar Eggertsson er meðal ann-
ars með umboð fyrir Fuji og
leiddi Bjami okkur í allan sann-
leika um hvað þeir höfðu nýtt
fram að færa. Það vom nokkrir
eftirtektarverðir hlutir sem vöktu
22 ■ PRENTARINN
Hjá plötuskrifaranum frá Fuiji
með Bjarna Jónssyni.
Það var ekki bara það nýjasta
heldur lika endurbœtur á þessu
gamla góða. Tvœr yngismeyjar
útskýra fyrir Kela viðbœtur við
dígulinn.
mikla athygli á bás Fujifilm á
Dmpa 2000.
a) CTP tækni. Mesta athygli
vakti P-9600 sem er hraðvirkasti
plötuskrifarinn, fyrir hefðbundna
prentun, á markaðinum í dag.
Hægt er að velja með 1 eða 2
lasera og þegar notaðir eru 2
laserar við 2400 dpi er hægt að
skrifa á 27 plötur á klukkutíma.
Fyrir utan mikil afköst er liægt að
hlaða vélina, í svokölluðum
Multi-Auto Loader, með 5 mis-
munandi plötustærðum samtímis
þar sem hægt er að hlaða samtals
300 plötum og er stærð þeirra frá
GTO 56 stærð 500x410 mm upp í
1160x960 mm, eða B-1 stærð (8
síður A-4). Jafnvel ef valinn er 1
laser í byrjun eru afköstin eins og