Prentarinn - 01.03.2004, Blaðsíða 7

Prentarinn - 01.03.2004, Blaðsíða 7
Félagsleg Msla b Félagsmálaskóli alþýðu Markmið MFA er að efla talsmenn stéttarféiaga til að takast á við þau mörgu verkefni sem þeir sinna, með því að standa fyrir fræðslu og láta gera námsefni sem uppfyllir þarfir þeirra og gerir þá betur í stakk búna að sinna félagsmönnum sínum. í þessu skyni rekur MFA Félagsmálaskóla alþýðu. Þjónusta Félagsmálaskóla alþýðu Stéttarfélög fá ráðgjöf og þjónustu varðandi uppbyggingu fræðslu og hvemig þau geta nýtt sér hana til að efla og móta starfið. Skólastjóri Félagsmálaskólans veitir félögum fræðsluráðgjöf, þróar fræðslu og býr til námskeið miðað við hvemig félögin vilja byggja upp sitt innra og ytra starf. Hlutverk skólastjórans er að vera í stöð- ugum samskiptum við félögin, fylgjast með því sem er að gerast á vinnumarkaðnum og í samfélaginu til að geta boðið upp á fræðslu í samræmi við það. Hluti af starfi skólans er stöðug þarfagreining, því allt er breytingum háð. Námskeið fyrir starfs- og stjórnarmenn I dag em námskeiðin styttri og fleiri en áður var. Með þessu er verið að koma til móts við þarfir talsmanna, því það getur verið erfitt að fara frá í lengri tíma. Lögð er áhersla á að innihald, lengd og staðsetning námskeið- anna sé eins sveigjanleg og kostur er. Þau miðast alltaf að einhveiju leyti við aðstæður og verkefni stéttarfélaga hverju sinni, t.d. samningagerð, hagfræði og kjara- samninga, réttindi erlendra starfs- manna og skráningu og meðferð persónuupplýsinga. Námskeiðin miða að því að styrkja jafnt innra sem ytra starf félaganna. I fyrra var byrjað að bjóða upp á fræðslu sem miðaði að því að efla starfs- menn með námskeiðum m.a. í skjalastjómun, samskiptum við félagsmenn í vanda og þjónustu- stjómun. Einnig verða námskeið í boði á hverju ári fyrir fulltrúa stétt- arfélaga í lífeyrissjóðum, en það er nýjung. Verið er að athuga mögu- leikann á samstarfi við háskóla um nám til að efla núverandi og verð- andi lykiltalsmenn og þar með um leið að efla verkalýðshreyfinguna. Markmiðið er jafnffamt að styrkja talsmenn sem starfsmenn á al- mennum vinnumarkaði. Til stendur að gera handbók fyrir starfs- og stjórnarmenn í rafrænu formi. Verður meðal annars gefið út efni um þau fjöl- mörgu mál sem starfsmenn fást við og einnig verða gerðar leið- beinandi reglur og vinnuferlar. Trúnaðarmannafræðsla Trúnaðarmannafræðslan hefúr ver- ið efld síðasta árið. Búið er að gera námskrá fyrir trúnaðarmenn og er henni skipt í fimm flokka, þ.e. grundvallarþekkingu, samskipti og miðlun, hagfræði trúnaðarmanns- ins, vinnumarkaðsmál og lögfræði trúnaðarmannsins. Gerð hefúr verið handbók fyrir trúnaðarmenn með nýju námsefni. Meðal náms- efnis eru tékk- og gátlistar um rétt- indi launafólks, bæklingar um vinnuvemd, einelti á vinnustað, hagfræði og launafólk og trúnað- armaður - starf hans og staða. Vefnám Á vef Alþýðusambandsins hefur verið opnað námskeiðið Einelti á vinnustað sem er opið öllum. Þetta er nýjung og hafa mjög margir farið inn á námskeiðið. Ætlunin er að bæta við nám- skeiðum sem gagnast öllum félagsmönnum ASÍ, svo hægt sé að bæta starfsumhverfi þeirra. Á árinu verður opnað vefnám- skeiðið Trúnaðarmaður - starf hans og staða og geta nýir trún- aðarmenn sem ekki komast strax á námskeið nýtt sér það, en aðrir geta nýtt sér það til upprifjunar. í bígerð eru fleiri vefnámskeið fyrir trúnaðarmenn. Aðsókn og þátttaka Síðastliðið ár var metaðsókn að skólanum og sóttu rúmlega 800 talsmenn námskeiðin. Það er því hægt að draga þá ályktun, að þær breytingar sem gerðar voru á skólanum hafi fallið í góðan jarð- veg. PRENTARINN ■ 7

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.