Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 14

Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 14
2. Heimsþing UNI leggur línur um skípulagningu á heimsvísu Þátttakendur dreymir um betri heim með öflugum samtakamætti Georg Páll Skúlason og Sæmundur Arnason Imagine! Framtíðarsýn var mótuð á annarri heimsráðstefnu Union Network International (UNI) og fyrir ligg- ur að vilji er til að þróa samtökin í alþjóðasamtök. Þrjár áætlanir voru samþykktar á þinginu sem fjalla um mannsæmandi vinnu, (decent work), skipulagningu alþjóðasamtaka og fjölþjóðafyrir- tæki. Aætlunum verður fylgt næstu fimm ár eða til næstu heimsráðstefnu sem fyrirhuguð er í Nagasaki árið 2010. Ráðstefnan sem skoraði á at- vinnurekendur 21. aldarinnar að enda kapphlaupið á botninn og tryggja að réttindi launþega séu virt um ailan heim dró að sér 1335 þátttakendur (704 með atkvæðisrétt, 376 áhorfendur og 256 gesti) frá 422 verkalýðs- félögum í 122 löndum, að með- töldum 14 aðildarfélögum UNI, í Chicago frá 22. - 25. ágúst 2005. Þátttakendur frá Islandi voru: Ingibjörg R. Guðmundsdóttir og Stefanía Magnúsdóttir frá Lands- sambandi íslenskra verslunar- manna, Sæmundur Arnason og Georg Páll Skúlason frá Félagi bókagerðarmanna, Helga Jóns- dóttir og Anna Karen Hauksdóttir frá Sambandi íslenskra bankamanna og Þór Ottesen frá Rafiðnaðarsambandi íslands. En auk þessara samtaka á Póstmannafélag Islands aðild að UNI. UNI heiðrar fórnarlömb Haymarket-átakanna Chicago á langa sögu sem verka- lýðsborg. 1. maí varð til þar til heiðurs þeim sem létu lífið í Haymarket-viðburðunum 1886. Kröfiiganga verkalýðsins á Hay- market-torgi i Chicago breyttist í óeirðir og röð atburða sem leiddi til þess að 1. maí var gerður að alþjóðlegum frídegi verkalýðsins. Nei við Wal-Mart-væðingu - seljið hlutabréfin! Wal-Mart sem er með stærstu fjölþjóðafyrirtækjum í heimi og með gríðarlega mikla starfsemi í USA hefur lagt línuna í því að greiða léleg laun, neita fólki um að vera í verkalýðsfélagi, brjóta rétt á verkafólki og verið í farar- broddi fyrirtækja sem fara illa með starfsfólk. Fjöldi lagamála er í gangi gegn fyrirtækinu t.d. vegna mismununar í launa- greiðslum til kvenna. Þingið hvatti verkalýðsfélög til að beita sér fyrir því að selja öll hlutabréf sem lífeyrissjóðir eða önnur fjár- festingarfélög eiga í Wal-Mart. Hvatt er til þess að aðilar sem hafi með fjárfestingar að gera axli þá ábyrgð að ljárfestingar séu í ábyrgum félögum og íyrir- tækjum sem virða rétt verkafólks og sjái til þess að mynda þrýsting á fyrirtæki sem ekki sinna þeirri skyldu, með því að selja hluta- bréf í slíkum fyrirtækjum. Amerískur vinnumarkaður ekki til útflutnings! ítarleg skoðun UNI á stefnu og aðferðum á amerískum vinnu- markaði og skýrsla þar að lútandi kemst að þeirri niðurstöðu að tímabært sé að hætta við stefn- una. Líklegast er besti dómurinn á stefnuna að fátækt hefúr aukist í USA á síðustu 30 árum ffá 11,2% árið 1973 í 12,5% árið 2003 þrátt fyrir að þjóðartekjur hafi aukist um næstum 70%. Það að 35 milljónir Bandaríkjamanna lifi við fátæktarmörk og 44 mill- jónir ráði ekki við að kaupa sjúkratryggingar sýnir að vinnu- markaðurinn hefúr brugðist í því að skipta hagnaði á sanngjaman og jafnan hátt í samfélaginu. Stefnan í USA er engin stefna fyrir aðra í heiminum og heimur- inn og Amerika geta gert mun betur. UNI: Virðisauki fyrir félagsmenn - heimurinn vakni gagnvart „mann- sæmandi vinnu" Fyrsti ráðstefnudagurinn var tileinkaður skýrslu UNI um verk- efni sem unnin eru í hinum ýmsu greinum sem eiga aðild að sam- tökunum, ársreikningum og um- fjöllun um þemað „mannsæm- andi vinna“ sem þýðir m.a. að laun, aðstæður, aðbúnaður og réttindi séu í samræmi við grund- vallarsamþykktir ILO. Fram kom í ræðu Philip Jenn- ings aðalritara UNI, „Leiðin til árangurs“, að launafólk í 133 löndum væri undir lögum sem eru fjandsamleg verkalýðsfélög- um og réttindum launafólks. Víða væri ekki réttur til að skipuleggja sig i félögum, dregið væri úr tækifærum launafólks, öryggi og mannréttindum. Þingið hét því að unnið yrði í því áfram að aðstoða launafólk til að skipuleggja sig í verkalýðsfé- lögum og öðlast virðingu i vinn- unni hjá fyrirtækjum s.s. DHL, Quebecor, Verizon og Wal-Mart sem komu ítrekað fram í umræð- um sem erfið fyrirtæki í sam- skiptum við verkalýðshreyfing- una. Frá Kólumbíu til Nepal til Burma hefur UNI brugðist við verkalýðsátökum hratt og örugg- lega og oft brugðist við með að- gerðum innan 24 tíma sem var loforð UNI á 1. heimsþingi í Berlín árið 2001. Eitt af aðalverkefnum samtak- anna á næstu árum verður að koma réttindum verkafólks á í Kína. Við þurfúm að finna leiðir til að vinna í Kína, ekki aðeins með verkalýðsfélögum heldur einnig ffjálsum félagasamtökum. Þátttakendur samþykktu tillögu þess efnis að aðstoða við að byggja upp virk stéttarfélög í Kína og enda misnotkun fjöl- þjóðafyrirtækja á kínversku launafólki. Fram kom í umræðu að mikil- vægt væri að umbreyta greina- skiptingu starfsgreina innan UNI í alþjóðleg stéttarfélög. Þingið samþykkti samhljóða skýrslu um verkefni UNI og í framhaldi af því voru ársreikn- ingar afgreiddir og tillaga um aðildargjöld samþykkt. Breyting á birtingarmynd alþjóðavæðingar Fram kom mikil gagnrýni á IMF og WTO og birtingarmynd alþjóðavæðingar. Setja þyrfti fólk í fýrsta sæti. Þingið samþykkti ályktun sem kallar eftir hærri viðmiðunum félagslegra réttinda fyrir alla. UNl heitir að starfa með öðrurn aðilum innanlands og á alþjóð- legum vettvangi við að kynna og þróa félagslegt öryggi og bæta 14 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.