Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 46
TónlisT HljómsveiTin HjalTalin Heldur Tónleika
Hjaltalínplötur í bílveltu
Stórsveitin Hjaltalín heldur óvænta tónleika á Rósenberg í kvöld. Platan þeirra, Enter 4, seldist upp fyrir jól.
Það er skammt stórra
högga á milli hjá hljóm-
sveitinni Hjaltalín. Söngvari
sveitarinnar Högni Egilsson
greindist með geðhvörf í
sumar. Í kjölfar þess gaf
sveitin út óvænta plötu,
Enter 4, meðal annars sem
uppgjör við veikindi Högna.
Platan hefur hlotið mikið
lof gagnrýnenda og seldist
svo upp fyrir jólin. Annað
upplag var væntanlegt
hingað til lands á mið-
vikudaginn fyrir jól en það
fór ekki líkt og ætlað var
vegna bílveltu í Austurríki.
P lata stórsveitarinnar Hjaltalín, Enter 4 seldist upp í vikunni fyrir jól eða alls í um þrjú þúsund eintökum. Von var á nýju upplagi
hingað til lands á miðvikudeginum en það fór ekki
eins og ætlað var þar sem flutningabíll sem flytja
átti eintökin valt í Austurríki. Að sögn Steinþórs
Helga Arnsteinssonar, umboðsmanns sveitarinnar,
slasaðist bílstjórinn blessunarlega ekki alvarlega en
slysið varð til þess að sendingin tafðist um nokkra
daga og allar verslanir voru Enter 4 lausar rétt fyrir
jólin. Þrátt fyrir óhappið seldist plata sveitarinnar
þó í um þrjú þúsund eintökum og er ofarlega á lista
yfir bestu plötur ársins.
Útgáfa plötunnar kom flatt upp á marga og kom
jafnvel einhverjum aðdáendum sveitarinnar í opna
skjöldu þar sem hana bar óvænt að. Platan var, líkt
og síðar kom í ljós, á meðal annars gefin út sem
uppgjör við sálræn veikindi söngvarans Högna
Egilssonar. Hann greindist með geðhvörf í sumar.
Sveitin er, að sögn Steinþórs Helga, hvergi nærri
hætt að koma aðdáendum sínum á óvart og mun slá
upp óvæntum tónleikum í kvöld, föstudagskvöld á
Rósenberg. „Við ákváðum að halda bara upp áður
uppteknum hætti og koma aðdáendum að óvörum,“
segir Steinþór Helgi kíminn. Hjaltalín treður upp á
svokölluðum JólaGÓ tónleikunum sem haldnir hafa
verið um nokkurra ára skeið að frumkvæði Guð-
mundar Óskars tónlistarmanns. En hann er einnig
meðlimur Hjaltalín.
Fullt var út úr dyrum á útgáfutónleikum Hjalta-
lín um síðustu helgi og komust færri að en vildu.
„Þetta er ákveðin svörun við því,“ útskýrir Stein-
þór. Sveitin mun síðan koma til með að flytja tónlist
sína á landsbyggðinni, en þau verða meðal annars
á Akureyri þann þrítugasta desember. Miðasala
fer fram við innganginn og mælir Steinþór með því
að fólk mæti tímanlega, vilji það tryggja sér sæti.
Húsið opnar klukkan 20 og tónleikar Hjaltalín hefj-
ast klukkan 22.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
myndlisT sTór sýning á verkum kjarval
Óvænt samhengi nær 200 verka
Nú stendur yfir svokölluð salon-sýning á hátt í 200 af
verkum Jóhannesar Kjarval á Kjarvalsstöðum. Veggir
safnsins eru þá þaktir með verkum listamannsins, ekki
eftir neinni sérstakri reglu eða röð. Með sýningunni
er leitast við að fanga óvænt samhengi verkanna þrátt
fyrir að vera unnin á ýmsum tímabilum. Þannig getur
áhorfandinn nálgast verk meistarans á sínum eigin for-
sendum.
Jóhannes Kjarval er einn ástsælasti listamaður Ís-
lendinga en hann skipar veigamikinn sess í menn-
ingarsögu þjóðarinnar. Hann var til að mynda sæmdur
stórkrossi hinnar íslensku Fálkaorðu, en afþakkaði. Að
sögn aðstandenda Listasafns Reykjavíkur hefur safnið
löngum leitað leiða við að gera verk Kjarvals aðgengi-
leg almenningi og því sett upp sýningar á mismunandi
máta.
Kjarval ánafnaði borginni stóran hluta listaverka
sinna árið 1973. Nokkrar deilur hafi orðið um þá gjöf
hans, að hálfu ættingja. Safnið er hið veigamesta og
spannar hátt í 5400 listaverk af ýmsum toga, landslags-
myndir, teikningar og táknræn málverk.
Sýningin verður opin fram í apríl á næsta ári.
Yfir 200 verk
Jóhannesar
Kjarval eru
nú til sýnis á
Kjarvalsstöðum.
Sýningin er
svokölluð Salon
sýning, þar sem
engin regla er
á meðal upp-
hengdra verka.
Hátíðarhljómar við áramót
Hátíðartónlist fyrir 3 trompeta, orgel
og pákur eftir Gabrieli, Zelenka,
Charpentier, Händel, Widor og Albinoni.
Trompetar: Ásgeir H. Steingrímsson,
Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson
Orgel: Björn Steinar Sólbergsson
Pákur: Frank Aarnink
JÓLATÓNLISTARHÁTÍÐ
HALLGRÍMSKIRKJU 2012
Miðasala í Hallgrímskirkju, s. 510 1000
opið alla daga kl. 9 - 17
listvinafelag.is - hallgrimskirkja.is
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 31. STARFSÁR
31. desember, gamlársdagur kl. 17
Takk
fyrir frábærar móttökur á árinu sem er að líða.
Nýtt og spennandi ár er fram undan.
Gleðilegt ár.
HELGARBLAÐ
Dreifing inni í Fréttatímanum
er leið til að koma bæklingnum
þínu í hendur viðskiptavina.
Hikaðu ekki við að leita tilboða.
Verðið kemur á óvart.
Þarftu að dreifa bæklingi?
auglysingar@frettatiminn.is
Sími 531 3310
46 menning Helgin 28.-30. desember 2012