Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 18
18 fréttir vikunnar Helgin 5.-7. október 2012 H ún hefur farið ansi hátt undan-farin misseri, hugmyndin um að femínistar vilji snúa við sönnun- arbyrðinni í nauðgunarmálum; þannig að það sé sakleysi en ekki sekt sem þurfi að sanna. Hugmyndin er fáránleg og ég hef ekki hitt þann femínista sem þykir hún sniðug. Jafnvel ekki þótt þeir segi að núverandi kerfi sé gallað. En önnur fáránleg hugmynd er að réttarreglan „saklaus uns sekt er sönnuð“ sé eða skuli vera einhverskonar algild heim- speki fyrir samfélag manna. Réttarregl- an er góð sem slík en hún er ekki nokk- urskonar sannleikur. Brjóti menn lög eru þeir lögbrjótar. Glæpurinn er ekki framinn þegar hann er sannaður, hann er framinn löngu áður og stundum tekst að sanna hann og stundum ekki. Stund- um kemst hann ekki upp en það þýðir ekki að sá sem hann framdi sé saklaus af honum. Hitt er annað mál að meðal femínista og margra annarra er krafan um þyngri refsingar í kynferðisbrotamálum býsna hávær. Ég er ekki lögfræðingur og ekki sérstakur talsmaður refsinga. Ég held að kerfi sem býður upp á betrun, meðferðir, menntun og uppbyggilegt starf með af- brotafólki, sé manneskjulegra, fallegra og líklegra til árangurs en kerfi sem vill refsa og hefna. Þess vegna langar mig ekki að tala um réttarkerfið, ég hef einfaldlega ekki sérstaklega mikinn áhuga á því. Mig langar hinsvegar að tala um nauðgunar- menningu; samfélag sem samþykkir kyn- ferðisofbeldi. Þann 26. september sl. hlóð stúlka inn myndbandi á Youtube. Í því talar hún illa um fótboltastráka í eina og hálfa mínútu. Hún segist hafa heyrt að fótboltastrákar kvarti undan því að finna sér ekki kær- ustur. Hún segir svo að ástæðan fyrir því að stelpur vilji ekki vera með fótboltast- rákum sé að þeir séu persónuleikalausir, vanþroska og hrokafullir, kalli stelpur ílát og komi illa fram við þær. Athugasemd- irnar við myndbandið eru til dæmis svona: og vinsælasta athugasemdin þegar þetta er skrifað er svohljóðandi: Og fólk heldur að Egill Einarsson hafi ekki haft nein áhrif með öllu hressa nauðgunargríninu sínu. Samfélag sem umber þetta, lækar þessar athugasemdir og elur upp drengi sem tala svona við konur, er samfélag sem samþykkir kyn- ferðisofbeldi. Hugmyndin um að femínistar vilji berj- ast fyrir öfugri sönnunarbyrði kviknar út frá ákveðinni endurskilgreiningu á nauðgunum sem hefur verið að eiga sér stað, kannski sérstaklega meðal femín- ista en er vonandi hægt og bítandi að skila sér út í almenna umræðu. Þessari endurskilgreiningu má sjá stað í mál- flutningi Nei-hópsins, í druslugöngunni og hjá Samþykkishópnum og gengur út á þá einföldu hugmynd að sá sem fær ekki samþykki en ríður samt telst hafa nauðg- að. Sá sem nýtir sér valdamisræmi eða aflsmun til að koma fram kynferðisleg- um vilja sínum telst vera ofbeldismaður og skilgreiningin veltur á gjörðum hans eins og þolandi upplifir þær en ekki á við- brögðum þolandans. Krafan um að manneskja afþakki kynferðismök skýrt og greinilega sam- ræmist ekki öðrum hugmyndum okkar um samskipti fólks. Ef ég stel einhverju, þá hreinlega hef ég stolið því. Alveg sama hvernig sá eða sú sem ég stel frá bregst við. Ef leiðinlegur strákur býður mér í bíó gerir samfélagið ekki þá kröfu til mín að ég segi honum að mér finn- ist hann leiðinlegur og ég vilji ekki fara með honum í bíó. Það þykir alveg ásætt- anleg hegðun að ljúga því að maður sé upptekinn. Vinur minn minntist á þessa endur- skilgreiningu við mig á dögunum og var helvíti reiður yfir henni. Hann sagði að miðað við það sem hann hefði heyrt fólk segja um þessi mál, væru skilgreiningar á kynferðisofbeldi orðnar þannig að ætl- aði hann sér að kvitta undir þær þyrfti HANN raunverulega að skoða sína sögu, fara yfir mörg ár af samblöndu af laus- læti og drykkjuskap með tilliti til þess hvort eitthvað í þeirri sögu mætti túlka sem kynferðisofbeldi. Ég reyndi að segja honum að slík endurskoðun væri full- komlega eðlileg en ég talaði fyrir dauf- um eyrum. En þetta er það sem ég vil að við ger- um. Ég vil að við áttum okkur á því að það er ekki eðlilegt að vera ekki viss um að upplýst og fúst samþykki liggi fyrir þegar við ákveðum að gera það með einhverjum. Ég vil að við hugsum um það hvort við höfum beitt fólk þrýstingi, hvort við höfum alltaf og allsstaðar getað verið viss um að fólkið sem við höfum sofið hjá hafi langað til þess. Ég vil að samfélagið mitt hætti að tala um hvernig stelpa hagaði sér áður en henni var nauðgað eða á meðan eða eftir á. Ég vil að fólkið í samfélaginu mínu sammæl- ist um að það sé eðlileg krafa til fólks að hafa ekki samfarir við manneskju án þess að vera þess fullviss að hana langi til þess. Að berjast fyrir því að mega ríða öðrum án þess að hafa leyfi til þess er ógeðslegt. 41 prósent ungra íslenskra karla borðar fisk einu sinni í viku, sjaldnar eða aldrei. Vikan í tölum 4 stig hefur Cercle Brugge, nýtt lið Eiðs Smára Guðjohnsen, náð sér í í fyrstu níu leikjum tímabilsins. Liðið er í neðsta sæti belgísku deildarinnar. Glæpurinn er ekki framinn þegar hann er sannaður V i ð h o r f h i l d a r l i l l i e n d a h l 40 ár eru síðan Fellaskóli var vígður. Afmælinu er fagnað í dag, föstudag. Seðlabankinn sýknaður Héraðsdómur hefur sýknað Seðla- bankann af kröfum Más Guðmundssonar seðlabankastjóra um að ákvörðun um launalækkun Más verði ógilt. Rekstur skólans á Tálknafirði ólöglegur Hjallastefnan má ekki, samkvæmt lögum, reka eina grunnskóla Tálknafjarðar- hrepps. Þetta kemur fram í bréfi sem menntamálaráðuneytið sendi hreppnum í september. Skora á ráðamenn að leysa makríldeiluna Nokkur umhverfisverndarsamtök í Evrópu skora á ráðamenn í ESB, á Íslandi, í Noregi og Færeyjum að leysa makríldeiluna sem fyrst. Núverandi ástand og veiðar stefni makrílstofninum í hættu. Jarðskjálfti í Kötlu – 3,2 að styrkleika Jarðskjálfti, 3,2 að styrkleika, varð í Kötlu á miðvikudagsmorgun. Upptök hans voru á 100 metra dýpi norðarlega í Kötluöskjunni. Skjálti um 1 að stærð var á sama stað litlu fyrr. Enginn frekari órói hefur mælst. Vöruskiptin hagstæð um 5,5 milljarða Vöruskiptin í septem- ber voru hagstæð um 5,5 milljarða samkvæmt tölum Hagstofunnar. Útflutningur var 48,5 milljarðar króna og innflutningur tæpir 43 milljarðar króna. Förgun á kindahræjum til skoðunar Verið er að skoða hvort grípa þurfi til sérstakra aðgerða vegna hreinsunar og förgunar á kindahræjum í Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi. Að sögn sveitar- stjóra beggja sveitarfélaganna kemur til greina að setja upp sérstaka gáma þar sem tekið verður á móti hræjum. Óbreyttir stýrivextir Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað á miðvikudaginn að halda vöxtum óbreyttum. Stýrivextir, veð til 7 daga, verða því áfram 5,75%, daglánavextir verða 6,75%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum verða 5,5% og innláns- vextir 4,75%. 125 milljarða króna á kínverski fjárfestirinn Huang Nubo í hreinni eign. Hann er í 129. sæti á lista Forbes yfir 400 ríkustu Kínverjana. 600 þúsund krónur fær hinn 26 ára gamli Dagur Hjartarson í vasann eftir að honum voru veitt Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmunds- sonar fyrir ljóðahand- ritið Þar sem vind- arnir hvílast og fleiri einlæg ljóð. Bók með verðlaunaljóðunum er komin út hjá Bjarti. 821 eintak seldist af plötu Ásgeirs Trausta Einarssonar, Dýrð í dauðaþögn, í síðustu viku samkvæmt Tónlistanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.