Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 64
Helgin 5.-7. október 201248 tíska Úfnar rokkaðar greiðslur Þrátt fyrir ofvirkni mína og ærslagang gef ég mér tíma til að líta í kring um mig og forvitnast um tísku. Karl- mannatíska er í skugga kventískunnar og því er enn mikilvægara fyrir mig og mína líka, gagnkynheigðu meðal(l)jónin, að fylgjast vandlega með spjörum kyn- bræðranna. En það eru ekki aðeins spjarirnar sem skipta máli! Hárgreiðslan hefur einnig mikið að segja. Hvað vitum við týndu gagnkynhneigðu ljónin um hártísku karlmanna? Spjarir okkar fá almennt minna vægi en kvenna, hvað þá hárið! Eitt sinn sá ég afar vel klæddan en viðurstyggilega luralegan bróður, lykillinn að ósmekklegu útliti hans var akkúrat hárið. Þá fór ég að fylgjast með. Eftir óvísindalegar rannsóknir hef ég komist að nið- urstöðu, sem að ég vil nú ólmur deila með kynbræðrum mínum til að sporna við smart klæddum illa klipptum leppalúðum. Það sem er ríkjandi í hártískunni eru rokk- aðar greiðslur sem draga innblástur frá „dúi“ James Dean og Elvis Presley frá árunum 1950- 1960, stutt og aftursleikt eða rakaðar hliðar með lubba á toppnum. Það besta við þessa tísku er að úfið, nývaknað hár rokkar líka! Konur tala um að skórnir séu það sem þær sjái fyrst á karlmönnum. Við vitum að þetta er kjaftæði. Vel skóaður karlmaður með tuttugu ára klippingu gengur ekki. Það er andlitið sem skvísurnar horfa á og flott hár er ramminn í kringum fésið. Þú verður að vera með töff ramma á þinni mynd. Gestapistla- höfundur vikunnar er Stefán Pálsson  Stígur upp úr hverSdagSleikanum í SparidreSSið með Sömu flíkinni Rándýr leðurjakkinn heillaði Hversdagsdressið Sparidressið Halldór Óskarsson, 31 árs tæknimaður hjá Securitas, hefur einstakt dálæti á svarta leðurjakkanum sínum sem hann keypti í Kúltur menn fyrir um fjórum árum. Jakkann keypti hann á 120 þúsund og hefur hann notað hann vel, í samræmi við það. „Þetta var eini jakkinn sem kom í verslunina og ég vissi að ég þurfti að eignast hann, þrátt fyrir hátt verð. Ég veit hvað ég vil þegar ég sé það og þetta var bara eitt af því. Þetta er flottur jakki, sem ég get notað við hvað sem er, nema kannski ekki í brúðkaup eða jarðarfarir, en allt þar á milli.“ Stíll Halldórs er gríðarlega fjölbreyttur og segist hann sækja tískuinnblástur allstaðar frá. „Það má segja að tískublogg á tumblr og götutíska hafi mest áhrif á fatastílinn minn. Það er lang skemmtilegast að fylgjast með götutísku vegna þess hversu hratt hún breytist og maður er fljótur að spotta hvað er inni. Fótboltakappinn David Beckham hefur einnig verið í miklu uppáhaldi hjá mér, alveg síðan að ég man eftir mér.“ Þurrkar naglalakkið á undraskömmum tíma Drip Dry varan frá naglalakksframleið- andum OPI er að gera allt vitlaust hér á landi. Hún gerir það að verkum að naglalakkið þornar á mjög skömmum tíma. Varan fæst bæði sem sprey og í vökvaformi og er þetta notað á lakkið um 40 sekúndum eftir að það hefur verið sett á. Lakkið þornar á undraverðum tíma, sem er vel hentugt fyrir okkur sem alltaf erum að flýta okkur. Drip Dry varan fæst í öllum verslunum Hagkaups og apótekum víðs vegar um landið og kostar um 2.990 krónur. Marilyn Monroe förðunarlína frá MAC Í ár voru fimmtíu ár frá dauða goð- sagnarinnar Marilyn Monroe og ákvað snyrtivörufyrirtækið MAC því að heiðra minningu hennar og framleiða splunkunýja förðunar- línu undir hennar nafni. Línan er mjög sérstök að sögn Maríu Guðvarðardóttur, vörumerkj- astjóra snyrtivörfyrirtækisins á Íslandi, og mun hún samanstanda af þrjátíu ólíkum snyrtivörum, eins og varalitum, augnskuggum, kolablýöntum og naglalökkum í anda gamla Hollywood glam- úrsins. Línan er komin á markað í Bandaríkjunum og mun seinna í mánuðinum koma í verslanir MAC í Kringlunni og Smáralind. Sautján Kúltúr Matenik J. Linderberg Tiger of Sweden Hugo Boss, gamalt frá afa Riberland Topshop River Island J. Linderberg Kormákur og Skjöldur Innblástur nútíma hártísku er oft sóttur til James Dean. Ha rð pa rke t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.