Fjölnir


Fjölnir - 04.07.1997, Blaðsíða 40

Fjölnir - 04.07.1997, Blaðsíða 40
Eírmr Cuðmundsson Munchen — Þýskalandi Nútíminn er eins og sjaldgæfur flækingsfugl á íslandi Ágæti Fjölnir! Sá mæti maður, Jónas Hallgrímsson, blés og blés á sínum tíma í Danmörku til að hjálpa sunnanvindinum að ná til Islands með menningarstraumana. „Nú andar suðrið sæla vindum þýðum,“ orti Jónas og árum og öld síðar komu einhverjir Bjöggar og sungu þennan brag inn á plötu undir popplagi. Jónas hafði frönsku byltinguna að bakhjarlshuga og frelsisstrauma þá er henni íýlgdu. — Bjöggarnir voru í sykurpoppinu og sóttust bara eftir krónum í vasann. — Það sem millitíðin hcfxir skolað upp á fjörur samtímans í dag er náttúrlega algjört „shit“. Orðið kúltúr er flestum Islendingum framandi. Menning er flestum eitthvað óþægilegt sem kernur frá útlöndum þar sem hlutirnir eru sagðir verða fyrstir til. Ég les Moggann frá 31. maí síðastliðnum og þar stendur svart á hvítu: „Nútíminn er ekki að öllu leyti kominn til íslands.“ Fyrir nokkrum árum reyndi ég, persónulega, að færa íslendingum vissan hluta nútímans og skrifaði um hundrað greinar í Morgunblaðið, blað allra landsmanna, um toppana í samtímalist Evrópu. Varð að lokum að hætta þessum menningarskrifúm vegna þess að skilningur var allt í einu ekki lengur fyrir hendi á blaðinu á nauðsynin þess ao upplýsa myndlistarfánuna í landinu. Ég varð þess áskynja að ætti Mogginn val um gæði á annað borð var ffemur kosið það næstbezta í staðinn fyrir það bezta; og eins og á daginn er komið og dagurinn í dag sýnir er Mogginn hæstánægður með þriðja ldassa útkomu í menningarefnum. „Betra er að vita fatt en mikið,“ segir víst þjóðarsálin. Einu sinni er ég var túristi í Reykjavtk heyrði ég ungmenni segja þessa setningu í sjónvarpsviðtali: „Það er heilmikið í bígerð sem er að ske.“ — Þeir sem hafa átt þess kost á undanfbrnum árum að lesa fféttabréf R.S.Í (Rithöfúndasamband íslands) vita að íslenzkri málnotkun og kunnáttu í beitingu tungumálsins fer hrakandi. Steinar Sigurjónsson hikaði ekki við að setja á prent að íslendingar væru hænsn. „ísland ég hef gefið þér allt og nú á ég ekkert. ísland, 650 DM í vasanum 3. júní 1997.“ — „Mér óar við tilhugsuninni," þýðir Dagur Sigurðarson í ljóðinu Ameríka eftir Allen Ginsberg. Mér lízt alls ekki á blikuna, að fára að gefa fslendingum peningaupphæð, hvorki þessa né aðra, því íslendingar eru þekktir íyrir að kunna ekki með fjármuni að fára; krónan er verðlaus í údöndum. Enn mun ísland leynilega vera eitt af fylkjunum í Bandaríkjunum, datt mér í hug er ég las undir fyrirsögninni „Deilt um stækkun NATÓ á utanríkisráðherrafúndi í Portúgal: Níu aðildarríki gegn íslandi og Bandaríkjunum." f Lesbókinni er það til dæmis að lesa að kort af landinu eru gerð og prentuð með svonefúdum Nató-staðli. fsland, hvernig er hægt að semja helgisálm í þínum bjálfadúr? Steinar, Dagur, Allen, Jón Gunnar og Róska eru farin og ég veit ekki satt að segja hvað getur komið í staðinn fyrir þau. Allt þetta fólk er komið til fjölnishimna. — Laxness er á leiðinni til Þórbergs. Hverju á ég að biðja að heilsa? Hundahaldinu í Reykjavík? Nútíminn er eins og sjaldgæfúr flækingsfúgl á fslandi. Þegar ég var síðast á fslandi í borg Reykjavíkurinnar upplifði ég íslendinga sem útlendinga vegna langrar fjarveru. Að tala við fólkið í fbðurlandi mínu, það var eins og að ganga á vegg. Veggir fólksins voru íslenzkir, ímyndaðir varnar\’eggir einangrunarinnar... Ég hætti þessu hripi og fer bara að blása! Miinchen, 6. 6. '97 Einar Guðmundsson Fj 40 ölnir timarit handa islendingum sumnr '97 Hallgrímur Helgason Sjálfstraust íslendinga skömmustulegir til himins; tíu tonn af landsins frægu leiðindum höfðu fylgt skemmtiferð til landsins og héngu þar í lofti, biðu þess að hann skvetti úr sér. Um nóttina lágu 100.000 manns á bæn til himna um að ekki myndi nú rigna roki á Maxím Gorký. I morgunsárið var heil erlend stórborg dregin undir Esjuna af litlum lóðs. Heimurinn var kom- inn heim og íbúar höfúðstaðarins önduðu léttar er þeir sáu bláan himin fýlla eldhúsgluggann. Þar hittist nú aldeilis vel á. Údendingarnir voru heppnir með veður. Sjúff. Við vorum eins og hver önnur vandamáluð vanmetafjölskylda í torfkofa eða bæjarblokk sem átti von á fínum fjarskyldum gestum í kafFi og boðsgleðin byggðist öll á því að alkóhólíseraður heimilisfaðirinn myndi nú haldast þurr þar til gestirnir hyrfu á braut. Svo mátti hann þykkna upp í sínu brjálaða skapi, skvetta í sig og’úr sér, og ganga um stofúr og gólf með éljurn og skæt- ingi, ofbeldi og austan-kalsa. Skítt þó fjölskyldan byggi við eilífan skít allt árið, bara ef útlending- arnir fengu gott þessa fau daga sem þeir stöldr- uðu við. Þetta veðurstress sem í raun er skömm á landinu sjálfu er reyndar enn til í fólki hér, jafn- vel í þeiin stóru landkynningarforstjórum sem skipuleggja utandyra hanastél og himinbláar lóns- ferðir sem allar byggjast á því að guðirnir klikki ekki. Þetta er allt ein stór rúlletta, allt upp á von og óvon, samskipti okkar við umheiminn eru háð veðrinu á morgun. Við getum ekki gengið í Evrópusambandið vegna þess að hitasdgin hér verða alltaf langt undir Evrópustaðli. Þegar tekin verður upp sameiginleg vindátt verðum við útí kuldanum. Að morgni beinnar útsendingar hinn- ar amerísku ABC-stöðvar úr Bláa lóninu mátti sjá íslenska ferðafrömuði og jafnvel fréttamenn á vappi við bakkann með sjálfsmorðsglampa í aug- um. Ó nei! Hvernig gat þetta gerst? Hvernig get- um við selt útlendingum þetta guðsvolaða land sem býður Ameríku góðan daginn með ellefú vindsdgum og úrhelli? Siglingakeppnin á Smá- þjóðaleikunum var færð í Kópavogslaugina vegna þess að fýrsta daginn var þokumettað logn, annan daginn norðan-tíu-stiga-brjálæði og þriðja daginn voru tveir hvalir að þvælast í baujunum á siglingabrautinni. ísland er fýndnasta land í heimi og alltaf að djóka með okkur. Það eina sem við gemm gert er að kunna að taka djókinu. Það tekur greinilega lengri tíma en 1000 ár. í sumarbyrjun sat ég óvart í leðursófa í and- dyrinu á Hótel Reynihlíð og stúlkan góða með 17 ljóshærð ár frá Akureyri, sú sem var að servera á barnum kvöldið áður, var affur mætt í úniform og tilbúin í slaginn: « „Það er skip í dag“ sagði hún mér til útskýringar og var svo þotin inn í matsal að leggja á borð. Á meðan ég skimaði út á Mývatnið eftir skipi renndu sex langar rútur í hlað: 360 mis-aldraðir Þjóðverjar handlönguðu sig niður á plan ið og hjólbeinuðu sér svo inn í gegnum anddyr- ið, inní matsal. í tutmgu langar mínútur fýlgdist ég með heilum skipsfarmi af þýskum túristum streyma framhjá leðursófanum: Samansafn af ólögulegasta og ólukkulegasta fólki sem ég hef augum barið: Með auglýsingum í Bild og Bild am Sonntag hafði það verið vélað og dílað útúr kjarnorkuheldum svefnherbergjum sínum í pakkaðar ferðir um hin heljarbjörtu norðurhöf, — hafandi þegar ferðast um öll önnur höf heimsins; nú enn og aftur halað upp úr úthverfunum í Saarbriicken og Schendl, geirneglt í bak og fýrir með vestur-þýsku eðalstáli, kjagandi áfram á mjaðmakúlulegunum frá Krupp; á útfalli lífs síns kemur það inn í land okkar svo ámátlega fávíst á svip, eins og sauðfé, eins og siglt sauðfé, eins og rammkaþólskt sauðfé sem sent var eitt sinn út á fæti til að fá blessun páfa og birtist nú aftur forframað með bæverskan hreim í jarminu. Og fýrir þetta...fýrir þetta pakk höfðum við í dentíð og nútíð fórnað nætursvcfni; andvakað af ótta við að fulli frændi á himni myndi hella sér yfir það nteð skítkasti og skömmum. Erlendir ferðamenn sem koma til Islands eru annars vegar aflóga gamalmenni sem þegar hafa skoðað allar kirkjur heimsins og eiga bara Trölla- kirkju eftir, og hinsvegar einhverjir þeir stór- skrýtnustu menn sem finna má með hverri þjóð; ungir svartloðnir og skeggrætnir háskólamenn sem þrá það heitast að missa framan af vísinda- legum fingri á íslenskum jöldi eina hríðarbjarta sumarnótt: Koma kalsárir heim til Koblenz og Tours. Hér kemur upp í greinarhöfúndi önnur íslensk gömul kennd: Það gerist stundum að Islendingi hreinlega býður við útlendingum. Okkur ofbýður þessi massa-framleiðsla á andlits- og andlausum sauðum, allar þessar milljónir af fólki! sem manni virðast lifa til einskis. Og þá verður maður bara sæll með sitt fámenni: Hér framleiðum við aðeins það sem máli skiptir, sleppum moðinu. Frammi fýrir slíkri skrúðgöngu af sálarleysi, slíkri hópferð þýskra eðallíffera, fýllist maður sjálfstrausti. Sjálfúmglöðu sjálfs- trausti. Þetta er hinn eini sanni íslenski rasismi. Hann stingur annað slagið upp sínum mórauða kolli í kolli okkar, eins og selshöfúð úr mýri. Okkur sem erum svo flottir og snjallir og skemmtilegir finnst údendingar svo ómerkilegir, andlausir og asnalegir. Sem þeir eru. Þeir fatta ekki húmorinn okkar, þetta er svo streit lið... segja hressir gárungar sem gantast með fávísar stórþjóðir sem stóreygar hafa nýspurt um öll þessi einkennilegu tæki sem standa undir yfirbreiðslum úti á öllum svöl- um landsmanna og fengið svarið: Ljósritunarvélar. Þetta eru svoddan kelling- ar... kveður kátur landinn vel við skál þegar erlendir vilja í háttinn, gefast upp á partý- sumbli klukkan sex að morgni. Þeir ldikka alltaf á morgunmatnum á Hótel Loft- nema þeir séu einhverjir popp-millar sem ganga fýrir því rándýra rafmagni sem ræktað er í hlíðunum ofan við Escobar í Kóliumbíu. f eftirpartýunum er landinn með sjálfstraust- ið í lagi og fer alltaf með sigur af hólmi. Páll Óskar og co. héldu flottasta Júróvisjónpartýið í Dublin þó tuttugasta sætið yrði að duga daginn eftir. Eftir að næturlíf var lögleitt á íslandi þurf- um við ekki að stressa okkur lengur á veðri og vindum. Alltaf 17 gráðu stuð á Kaffibarnum. Og íslenska nóttin sú lengsta í Evrópu, frá miðjum nóvember og fram í mars. Nóttin hefúr leyst náttúruna af hólmi. Fyrir tuttugu árum var Reykjavík ekki bara leiðinlegasta borg í heimi heldur líka á landinu. Stemmningin var í Húna- veri og Atlavík og heilu sumrin voru líkt og „verslunarmannahelgi í bænum". Nú les maður í erlendum tískublöðum um „The New York of the North“. Party by the pole. Damon Albarn, söngvari í Blur, lýsir því fjálglega og fullur að- dáunar hvernig unglingarnir fýlla sjálfa sig og miðbæinn um helgar. Allt veðurstress heyrir veðr- inu til. Heimurinn er ekki kominn hingað til að njóta „Mallorca-veðurs á Egilsstöðum" heldur til leiðum -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.