Fjölnir - 30.10.1997, Blaðsíða 27

Fjölnir - 30.10.1997, Blaðsíða 27
Irmgqngw íslenska þjóðin skynjaði sig ekki í neinum mæli sem eina heild fyrr en á 20. öld, ekki frekar en fyrsm landnámsmennirnir sem hingað komu frá mismunandi stöðum í Noregi og á írlandi á 9. og 10. öld. Ef litið er á stærð landsins er ljóst að ísland hefur verið langstrjálbýlasta land Evrópu. Fram til loka 18. aldar vom engin þorp, hvað þá stærri bæir, á ísiandi. Næstum öll þjóðin (hún taldi u. þ. b. 70-80.000 manns í lok 11. aldar sem var hámark þar til á 20. öld) var bændur sem bjuggu á dreifðum býlum og rækmðu jarðir sínar upp á eigin spýtur. Fyrsta eiginlega þorpið, Reykjavík, sem síðar varð höfuðborg, hafði algjört dreifbýlisyfirbragð og var gjörsneytt öllum borgareinkennum þar til síðla á 3. áratugi þess- arar aldar, og helsm embættismenn og frammá- menn í samfélaginu sem þar bjuggu vom nógu miklir sveitamenn til að ala sinn eigin bústofn. Hin eiginlega höfúðborg landsins var Kaupmannahöfn. Þar var aðsetur stjómvalda, konungsins og ráðuneytanna, þar vom höfúð- stöðvar dönsku verslunarfélaganna sem drottn- uðu yfir verslun landsmanna og þar stunduðu fslendingar æðri menntun og kynntust megin- straumi evrópskrar siðmenningar. Að auki var Kaupmannahöfn miðstöð rannsókna á íslenskri sögu og íslendingasögunum og aðalvettvangur barátm fyrir auknu pólitísku ffelsi og réttindum þjóðarinnar sem náði hámarki með lýðveldis- stofnuninni 1944. Vegna þess hve læsi var út- breitt — meirihluti fúllorðinna á 18. öld kunni að lesa og skrifá — var pólitísk starfsemi tiltölu- lega auðveld þótt fjarlægðir væm miklar og sam- göngukerfi lélegt. Þrátt fyrir hina dreifðu byggð tókst þjóðernishreyfingunni á 19. og 20. öld því að gera sér mat úr þjóðernisvitund sem smddist við einstakt tungumál, sem h'tið hafði breyst í þúsund ár, og sjálfstæða bókmenntahefð. Þjóðernisstefnan sem einkenndi tímabilið eftir um 1830 (Danska einveldið) til 1918 (Sambandslögin) var drifkrafturinn í barátmnni fyrir heimastjórn (1904-1918) og gat af sér hugmyndina um þjóðlega endurreisn frá miðri 19. öld. Frá upphafi var litið svo á að þessi endurreisn ætti að byggjast á þeim hefðum og verðmæmm sem fyrir voru. Jónas HaucrImsson lýsti því t. d. yfir strax árið 1835 að miklu máli skipti að endurnýja íslenskar bókmenntir og hreinsa tunguna, berjast gegn lágkúm og smekk- leysu rímnakveðskaparins ásamt því að efla þjóð- Hannes Sigurðsson rekur hér þróun íslensku landslags- hefðarinnar í myndlist frá frumherjunum í upphafi aldarinnar að Stjórnmál, þjóðernishyggja og íslenska landslagshefðin abstrakttímabilinu um miðja öldina ernisanda og sjálfstæðisvitund landsmanna — m.ö.o. að endurvekja áhuga þeirra á hinu forna þjóðveldi, lýðræðislegum stofnunum þess, bók- menntum og tungu. Þjóðskáldin á síðari hluta 19. aldar undir- bjuggu ekki aðeins jarðveginn fyrir sjálfstæðið, heldur vökm áhuga á íslensku landslagi sem áður hafði ekki gætt mikið í íslenskri menningu. Rómantísk sýn þeirra á íslenskt umhverfi varð að ríkum þætti í þjóðerniskennd í lok 19. aldar og helsta einstaka orsökin fyrir upphafi sjónlista á fslandi um aldamódn. Þótt útsaumur og tré- skurður hefðu þrifist áfram eftir siðaskiptin, 1550, sem bundu enda á alla listræna fág- mennsku (þ. á m. lýsingar bóka), er óhætt að segja að List með stórum staf hafi haslað sér völl í „myndlistarlegu tómarúmi". Auk þess hafði sú krafa þjóðskáldanna að listin ætti eingöngu að byggjast á þjóðernislegum gmnni afdrifaríkar og langvinnar afleiðingar fyrir menningarþróun í landinu. Fram á þriðja áramginn var hægt að tengja þessa þróun vissri þjóðernishyggju, en með eflingu Reykjavíkur sem höfuðborgar og sjálf- stæðrar borgarmenningar var erfiðara að réttlæta þessar þröngu skorður. Tonryggni rómantísku skáldanna í garð alls sem talið var údenskt var í raun færð yfir á borgina. Hún var talin ala á ffamandi áhrifum og álitin deigla úrkynjunar og stærsta ógnin við ríkjandi gildismat. Sagnffæðing- urinn og stjómmálamaðurinn JóN Aoas ritaði t. d. í anda Jónasar Hallgrímssonar: íslenzka þjóðin hefur í allri sinni fátakt sannar- lega ekki efhi á að láta slíkan fjársjóð [bók- menntir íslendingasagnajónotaðan, slík lífsgildi liggja t órakt og hirðuleysi. Henni veeri sannar- lega ruzr að leita þangað í framtiðinni, í stað þess að sníkja og snapa út um víða veröld eftir and- legum uppbyggingarmeðulum, sem stundum þar á ofan reynast miður vel og hafa mjóg vafasamt gildi jyrir íslenzka þjóðmenningu. (Jón Aðils: íslensktþjóðemi, bls. 255). Strax ffá byrjun átmðu alþingismenn sig á því að málaralist gæti gegnt mikilvægu hlutverki við að sýna öðmm þjóðum, einkum þó Dönum, að ísland væri á engan hátt menningarlega van- þróað. Hlutverk málaralistar var því skilgreint „opinberlega“ sem tvíþætt: Að þjappa þjóðinni enn betur saman með því að sýna þau kennileiti sem þjóðskáldin höfðu dásamað, og til að sýna umheiminum að íslendingar væm nú fúllfærir um að hasla sér völl í öllum listgreinum. >• og leiðir í ljós hversu nátengdir listamennirnir voru þjóðernis- legum áherslum valdsmanna í íslenskri menn- ingu og stjórn- málum. Fjölnir houst '97 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.