Fjölnir - 30.10.1997, Blaðsíða 84

Fjölnir - 30.10.1997, Blaðsíða 84
Thomas Huber kom á Seminar on Artí sumar og hélt þar fyrirlestur sem hann byggir á málverki sínu, Sýningunni. í honum ferðaðist hann með áhorfendur um verkið, listaheiminn og heimili sitt. Lesendum Fjölnis er hér með boðið í þessa kynnisferð. „ Við sjáum vatníð sem yfirborð. Við getum horjt í gegn- um það. Við sjáum heilt riki sem lýtur allt öðrum lögmál- um. Er það aðeins Herrar mínir og frúr, þessari mynd var lokið fyrir fáeinum dögum. Nú er hún strax til sýnis. Hún er sýnd á trönunum. Þar var hún líka mál- uð. Þar var hún stöðugt metin og könnuð á með- an á gerð hennar stóð. Hvar hefði líka átt að hengja hana upp hérna? Veggirnir em allir þaktir þessum andlitum. Þeir henta ekki til að sýna mynd. Myndin ber titilinn „Sýningin“. Hún felur í sér eigin sýningu, sýnir hvernig hún sjálf er sýnd. Hún fer fram úr sjálffi sér, langt á undan samtíð sinni, útmálar það sem hún verður einhvern t(m- 1 \\ Cjr % ^ % \ - ■'íft- í \ I 1 8 w &&&'■ r ' P W, 'i ' Ijlf j s \ . f ■ \. F I þetta yfirborð sem skilur okkurfrá þessu ríki? Hvað skyldi fiskurinn hugsa þegar hann syndir að yfirborð- inu til að ná sér í flugu? Hlýtur þetta sindrandi þakyfir honum ekki að vera neðra borð loftsins frá hans sjónar- hóli séð?“ Ég átta mig á því mér til skelfingar, kasru sýn ingargestir, að þið emð komnir. Við erum alls ekki tilbúin að opna sýninguna. Þið komið of snemma. Fuli eftirvæntingar hafið þið safnast saman ffammi fýrir myndinni. Augu ykkar bein- ast að myndinni. Nærvera ykkar er svo sterk að það er engu líkara en augnaráð ykkar hafi verið málað á veggi sýningarsalarins. Það er augljóst að ég hef ruglast í tímasetn- ingunni. Ég var búinn að segja að myndin væri tilbúin. En undirbúningnum fýrir opnun sýningar hennar er ekki lokið. Á hinn bóginn er myndin, eins og titill hennar segir, „Sýningin". Ég hlýt að hafa gengið út ffá því að um leið og myndin væri endanleg væri líka öllum undirbún- ingi fýrir sýninguna aflokið. En við erum enn að þrífa hérna. Ég kann alls ekki við þetta. Þið komuð of snemma. Á sýningu ætti að vera búið að fjarlægja öll verksummerki uppsetningar hennar. Ekkert ætti að trufla áhrif mynd- arinnar. En ruslapokarnir em hér ennþá. Og börnin okkar enn að leika sér. Eldri börnin kunna ágædega að leika sér. En þau verða smndum óþolinmóð á opnunum. Þetta gæti endað með ósköpum. Minnsm börnin sofá. En rúmið þar sem þeim er gefið brjóst er ennþá hér inni. Og síðast en ekki síst: konan , \ : mín er ekki búin að klæða sig. Henni :' finnst það ömgglega óþægilegt. Fj 84 íolnir tímarit handa islendinqum hnust ‘97 Nú tek ég effir því að þessi hlægi- legi dvergur með gulu dúkkuna sína er hérna ennþá. Allan tímann á með- an ég var að mála myndina vék hann ekki ffá. Þótt ég færi ítrekað ffam á það vildi hann ekki fára. Hann stóð bara þarna með brúðuna, skipti stundum um stöðu svo að hann gætí fýlgst nákvæmlega með ffamgangi myndarinnar og missti ekki af neinu. Dvergurinn sagði aldrei neitt. Ég ávarpaði hann margsinnis. Hann svaraði engu. Sjáiði hvernig hann horfir á myndina? Hefðuð þið getað unnið við svona kringumstæð- ur? Ég sagði honum líka að hann tmflaði heildar- áhrif myndarinnar. Hann lét sig það engu skipta. Hann er alveg fáránlegur útíits. Finnst ykkur það ekki líka? Ég kann ekki við þessar gulu og dökku rendur í rauða litnum á kjólnum hans; og þessi brennisteinsgula í ofánálag! Tilhugsunin um að gestir sýningarinnar sæju hann þarna fýllti mig óróleika. „Farðu burt!“ sagði ég. Ég sagði honum að hann gæti leikið sér úti með krökkunum, leyff þeim að hafá brúðuna svolida stund. Þá þrýsti hann brúðunni fástar upp að trélíkama sínum og horfði. Og horfði. Konan mln sagði að hann væri óheppilegur leikfélagi fýrir börnin. Ég held að það sé rétt hjá henni. Það er síður en svo ein- fált að einbeita sér við vinnu við þessar aðstæður. Dvergurinn var þó rólegur en ró hans var uppá- þrengjandi og ásakandi. Börnin em líka stöðugt á vappi. Þau taka alltaf virkan þátt í gerð myndanna minna. Ég held að þau geri engan greinarmun á myndheimi og raunheimi. En off vilja þau að ég leiki við sig eða gefi sér eitthvað að borða. Þá verð ég að gera hlé á vinnu minni og sinna þeim. Fyrir smtm ól konan mín tvíbura. Við vorum ákaflega ham- ingjusöm með þá en þeir ollu okkur líka áhyggj- um. Vegna þess að strákurinn — þetta em strák- ur og stelpa — strákurinn er veikur. Konan mín er önnum kafin við að sinna hvítvoðungunum. Hún er með þá báða á brjósti. Þess vegna hefúr hún ekki mikinn tlma aflögu til að sinna öðrum í fjölskyldunni. Ég kvarta oft yfir því við konuna mína að hún styðji mig ekki nægilega í því sem ég er að gera. Það er óréttíátt af mér. Hún situr með bæði börnin inni hjá mér. Hún segir sjaldan nokkuð. Hún segir: „Húðin er of ljós“, eða hún segir: „Ég er of feit eins og þú málar mig“. Svo setur hún annað barnið á handlegginn á mér svo að ég get ekki haldið áffam að mála. Þegar hún verður hrifin af ákveðnum hluta mynd- arinnar minnar strýkur hún með fingrinum yfir staðinn. Þegar ég kvarta yfir ónógum stuðningi segist hún styðja mig andlega við gerð mynd- arinnar. Hún hugsi alltaf hlýlega til myndarinnar. Ég verð að viðurkenna að þetta er rétt hjá henni. Ef hún dregur úr góð- vild sinni gagnvart myndinni verður ekkert úr henni. Hún er ekki alltaf viðstödd þegar ég er að mála. Stundum gefúr hún smábörnunum brjóst uppi á lofti í húsinu okkar. Ég heyri í eldri böm- unum langt að við leiki sína í garðinum. Og ég finn fýrir góðum hugsunum í garð myndarinnar minnar og hún eflist. Ég er ekki einmana listamaður. Það em alltaf margir í kringum mig. Sérstaklega börn. Og líka vinir. Bara að dvergurinn væri ekki þarna! Þessi andlit í yfirstærð á veggjunum vekja auðvitað líka óróa. Andlit á vegg. Þögul effirvæntingin í augnaráði skoðendanna gerir mig taugaóstyrkan. Mér finnst ég beinlínis umkringdur. Fjölskylda mín er sama sinnis. Sonur minn heldur því ffam að það sé ekki hægt að átta sig á því hvort augna- ráð þeirra sé vingjarnlegt eða reiðilegt. Hvað skyldu þeir hugsa þegar þeir horfa á myndina? Finnst þeim hún góð? Eða finnst þeim hún ömurleg? Ef þeir myndu segja mér núna að þeim fýndist hún góð yrði ég ekkert ánægðari. Mér finnast myndir mínar sjaldan góðar. Ef mér finnst eitthvað þá finnast mér þær ná- kvæmar, þá á ég við efúislega. Að mála felur í sér ákvarðanir: Hvaða lit, hvar, hversu mikið? Til dæmis. Þegar efnis- legar ákvarðanir em teknar í myndun- um er ég ánægður. Gott að ég skttíi hafa málað skoð- endurna með þessi opnu andlit sín. Það er skýr og opinn svipur á þessum and- litum. Þá á ég ekki við að þau séu bara vingjarnleg. En dómurinn sem þeir munu fella að skoðun sinni lokinni verður líka dómur um eigin andlit. Ég hefði líka getað málað þá affan ffá, hnakkann á þeim, hefði getað málað hárið sem fellur yfir húð baksins eða yfir kragann. Ég hefði getað málað þöglan baksvipinn. Þannig sé ég oftast skoðanda mynda minna þegar hann kemur á vinnustofúna. Hann stendur frammi fýrir myndinni og horfir á málverkið. Ég sé ekki andlit hans. Ég stend bak við hann. Ég horfi öðrum þræði á myndina sem ég þekki svo vel en líka á bak gestsins, á útlínur eyrna hans, hárið á honum. Hann horfir á myndina. Hann horfir nokkrar sekúndur á það sem ég þurfti daga, vikur til að gera. Ég finn hvernig hann reynir að setja reynslu sína, í rauninni sjálfan sig, í samband við nýju myndina. Ég skynja að hann ber saman, leitar, verst og vandræðast. Ég finn líka að eftir því sem hann stendur lengur ffammi fýrir mynd- inni og augnaráð mitt brennur heitar á bakinu á honum undirbýr hann viðbrögð sín. Bakið á honum er í mikilli hætm. Hann horfir á mynd- ina. Myndin horfir á hann og ég stend á bak við hann og miða á orðlaust bakið á honum. „Góð,“ segir hann svo, „mjög góð ... áhugaverð.“ Ég var búinn að leggja svo mikið í þetta bak. „Góð,“ segir röddin ffaman við bakið. Sumir segja líka: „Einmitt, já.“ Þá get ég reitt mig á að viðkom- andi nær engu sambandi við myndina. Þau bök, ímynda ég mér, eru alltaf íklædd gráum jökkum og vefnaður efúisins kemur skýrt í ljós. Þess vegna finnst mér ég alltaf einn og yfirgefinn ffammi fýrir gráum vefnaði. I rauninni voru skoðendurnir þarna ffá upp- hafi. Þeir uxu með myndinni. Eftir því sem vinn- unni miðaði áffam og myndin varð greinilegri urðu líka augnaráð skoðendanna skarpari. Mér tókst aldrei að mála ótruflaður. Ef þeir hefðu að minnsta kosti tyllt sér niður. Ég málaði sérstak- lega bekki handa þeim. Þeir urðu næstum því eins og kirkjubekkir. Það er ekki hægt að ásaka mig fýrir að hafa ekki látið mig vellíðan gesta minna neinu skipta. Þessi sæti taka svo mikið pláss í myndinni. Ekki mikið rými eftir fýrir mig að vinna í. Og svo er það fjölskyldan sem alltaf er í kringum mig. Að ekki sé minnst á rúmið sem konan mín vildi endilega hafa með. Ég skil alveg að hún skuli vilja taka þátt í því sem gerist og með smábörnin og brjóstagjöfina er rúmið hið besta mál. En ég skil ekki af hverju það stendur þarna ennþá, einmitt í dag. Við vorum búin að ákveða að það yrði tekið burt fýrir opnunina. Ég get heldur ekki skilið hvers vegna fjölskyldan er ekki búin að klæða sig, og — eins og ég sagði: dvergurinn ... Kannski hef ég ruglast á dögum eða þau hafá ruglast. Eitt og annað hefúr skolast til hjá mér. Þessi mynd hefúr hvílt þungt á mér. Það er svo margt sem hefúr lent í henni sem venjulega má ganga út ffá að komi hvað á effir öðm og skuli vera skipulega aðskilið. Þarna er myndin. Hún stendur ennþá á trön- unum og í ofanálag em sýningargestirnir þegar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.