Fréttatíminn - 03.12.2010, Blaðsíða 56
Bókardómur Hreinsun eftir sofi oksanen
n okkuð er liðið síðan Hreinsun, skáldsaga Sofi Oksanen, kom út í þýðingu Sigurðar Karlssonar.
Verkið fór að safna verðlaunum strax eftir
útgáfuna 2008, hafði raunar litið dagsins
ljós sem leikrit árinu áður og kemur vænt-
anlega upp hér á landi næsta vetur. Þótt
sagan hafi borist mér fyrir allnokkru lenti
hún strax í lestri hjá öðrum; hún skelfir
menn og hrærir í þeim. Fæstir hafa nokk-
urn skilning á hvað hernám Sovétmanna
á Eystrasaltslöndunum hafði í för með
sér, rétt eins og hernám Kirjálabotns fyrir
þjóðirnar sem þar bjuggu. Harðstjórnin,
rússavæðingin og örlög þeirra sem flúðu;
Eistarnir yfir hafið þar sem þeir urðu Sví-
ar eða Finnar, eða inn í skógana þar sem
menn voru hundeltir árum saman uns
yfir lauk. Oksanen gerir sér mat úr þess-
ari sögu, byggir skáldverkið á ást tveggja
systra á sama manninum, þjóðernissinn-
uðum bónda, og er örlagasaga þeirra rakin
í upprifjun á meðan yngri systirin tekur
1992 á móti ungri stúlku sem er að flýja
kynlífsþrælkun í Berlín. Þar hafði hún verið
fangi Rússa sem tengjast leyniþjónustunni
gömlu. Saman er því stillt kúgun fólks á
Stalíntímanum og mansali okkar daga.
Hreinsun er líklega merkilegasta skáld-
verkið sem kemur á markað í ár. Ekki bara
fyrir söguefnið sem opnar nýjan heim les-
endum hér, bæði um harðræði Stalíntímans
og okkar klámaldar; hér er persónusköpun
unnin af mikilli innsýn í mannlega náttúru,
frásögnin ryðst áfram í rykkjum og sögu-
konan hefur makalaust vald á því að teygja
verund og vitund persónanna á ystu nöf í
ofurnæmri skynjun. Þessu skilar þýðing
Sigurðar Karlssonar alla vega; hin fjórða,
Saga af systrum
Hreinsun er líklega merkilegasta skáldverkið sem kemur á markað í ár. Ekki bara fyrir sögu-
efnið heldur líka fyrir makalaust vald og skynjun höfundar.
okkurgulur sandur
Magnús Sigurðsson ritstýrir.
125 bls. Uppheimar
Fínt fyrir
fan-klúbbinn
Safn tíu ritsmíða um
skáldskap Gyrðis Elías-
sonar, tekið saman af
Magnúsi Sigurðssyni,
gerir ekki nema að
snerta nokkra fleti á
löngum og víðum ferli
Gyrðis en er samt fínt
að fá. Sumar greinar
býsna þröngar (Hall-
dór, Helgi Þorgils),
aðrar vel unnar frá víðu
sjónarhorni (Sveinn
Yngvi, Guðmundur
Andri). Sigurbjörg
Þrastardóttir skemmti-
legust. Fín leiðsögn
fyrir fan-klúbbinn -pbb
Ég man þig
Yrsa Sigurðardóttir
317 bls. Veröld
Óþarfa
málalengingar
Ég man þig er tilraun
Yrsu Sigurðardóttur
til að segja langa
draugasögu.
Efnið kallar á nóvellu
og Yrsu til gagns
mætti setja henni fyrir
blaðsíðufjölda svo að
hún leggist ekki í
málalengingar eins og
hér gerist.
Hún nær spennu á
köflum en þess á milli
er alltof langt. -pbb
Önnur líf
Ævar Örn Jósepsson
361 bls. Uppheimar
Kötta
kjaftæðið
Ævar Örn Jósepsson
heldur áfram sögum
af löggum í Reykjavík.
Hann er eins og Yrsa,
allur á lengdina.
Lesandinn er langeygur
orðinn eftir einhverjum
tíðindum en áfram vind-
ur sögunni 361 blaðsíðu
og lesandinn að sálast.
Kötta kjaftæðið. -pbb
„Stenst samanburð við það sem best gerist í glæpasögum samtímans,
hvar sem er í heiminum.“ Times Literary Supplement um Ösku
YRSA SIGURÐARDÓTTIR
ÉG MAN ÞIG
s
p
e
n
n
u
s
a
g
a
|
v
e
r
ö
l
d
Hreinsun
Sofi Oksanen
Sigurður Karlsson þýðir.
355 bls. Mál og menning
56 bækur Helgin 3.-5. desember 2010
Bókadómar
Bókin er ...
hvalreki öllum
sem vilja
næra sig með
mikilvægri
og brýnni
sögusmíð.
Hreinsun
verða allir
að lesa sér til
gagns.
Þorgrímur
seigur
Þorgrímur Þráinsson
á tvær bækur á topp
5 barna- og unglinga-
bókalista Eymundsson:
Þokuna og Ertu guð,
afi?
ef ég tel rétt, á fáum árum. Hann hefur
reynst smekkvís á viðfangsefni og skilar
íslenskum texta sem virðist nákvæmur á
blæbrigðaríku máli. Sókn hans inn á lend-
ur finnskra bókmennta er mikill fengur
íslenskum lesendum.
Saga Oksanen er ekki fyrir teprur:
ofbeldisfullar lýsingar hennar á aðstæð-
um ungra kvenna í kynlífsþrælkun eru
hroðalegar. Þá sýnir hún sitt eðli sem
meistari frásagnar í úthugsaðri lýsingu
á Aliide, gömlu konunni sem er burðarás-
inn í sögunni, bjástri hennar í eldhúsinu
þar sem hún undirbýr sig fyrir veturinn,
sýður og sultar, á meðan hún rifjar upp
fyrir sjálfri sér og okkur hvernig hún
komst yfir býli systur sinnar og mágs.
Hreinsun fellir ekki dóma yfir þeim
sem sviku sína nánustu í hendur lögreglu
svo að þeir enduðu sína daga norðurfrá
á freranum ef þeir komust svo langt.
Þeir sem lifðu það af. Hún er afdráttar-
laus í skörpum lýsingum á illsku böðla
og meðreiðarsveina en greinir jafnframt
sérgæsku þeirra sem láta undan. Bókin
er ekki auðveld aflestrar vegna efnisins,
en hvalreki öllum sem vilja næra sig með
mikilvægri og brýnni sögusmíð. Hreins-
un verða allir að lesa sér til gagns.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Sigurgeir Sigurjónsson hefur
um árabil verið afkastamikill við
útgáfu ljósmyndabóka sem flest-
ar eru hugsaðar fyrir erlenda
ferðamenn. Á upphafsárum
sínum var hann viðloðandi jafn-
aldra sína í tísku- og skemmti-
bransanum og því var vel til
fundið að draga fram myndir
hans frá árunum upp úr 1965
og setja saman á bók. Popp-
korn kallar hann ritið, 224 síður,
flestar myndirnar eru svarthvít-
ar, nokkrar í lit. Hér gefur að líta
myndir frá árdögum poppsins,
af erlendum hljómsveitum sem
hingað komu, böndum á borð
við Tóna, Pops, 5 pence, Hljóm-
ana og seinni bönd, Flowers og
Trúbrot. Í bland fljóta portrett
af listafólki á öllum aldri, vinum
og vinkonum. Bókin ber þess
merki að safnið hefur ekki dug-
að til að halda konsepti, yngstu
myndirnar eru af öðrum toga,
öðrum myndefnum.
Stærsti galli bókarinnar er
textasmíð Einars Kárasonar.
Hann er af annarri kynslóð,
öðrum hópi og sækir sér fyrir-
mynd í Ég man-texta Þórarins
Eldjárns og Perecs en nær aldrei
almennilegum tengslum við
myndefnið, hann er á rölti utan
við það. Í hans stað hefði mátt
fá skríbenta úr hópi samferða-
manna Sigurgeirs: í hugann
koma Ómar Valdimarsson,
Gísli Rúnar, jafnvel Stefán Hall-
dórsson. Sambandsleysi Einars
við myndefnið verður æpandi,
hann kastar til höndunum. Gott
dæmi er af landgöngu tveggja
kynslóða úr Gullfossi 1970, en
þær ferðir voru stór hluti af lífs-
reynslu margra kynslóða. Um
það hefur Einar fátt að segja
nema gamlan brandara um
Glistrup.
Útgáfu ljósmyndabóka á að
vanda. Þessar myndir verða ekki
prentaðar á bók í náinni fram-
tíð. Útgefandi hefur því misst
af góðu tækifæri til að koma frá
sér vænum prentgrip. Hér mátti
gera vel við brot úr aldarspegli
þótt myndvalið hefði líkast til
heimtað að sótt væri í verk fleiri
ljósmyndara til að gera tíma-
bilinu 65 til 70 verðug skil. -pbb
Myndir af poppurum og fleira fólki
Poppkorn
Sigurgeir Sigurjónsson
Einar Kárason
224 bls. Forlagið
Bókardómur PoPPkorn sigurgeir sigurjónsson
Sofi Oksanen Ofbeldisfullar lýsingar hennar á aðstæðum ungra kvenna í kynlífsþrælkun eru hroðalegar.
Hópferðir fyrir alla í desember
Teitur hópferðabílar 9 - 69 manna 5152700 info@teitur.is
Fyrirtækjaferðir, jólaglögg, jólaböll, kaffihús, kirkjuferðir
eða saman í sveitina að höggva jólatré.