Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ 1987; 73: 9-10 9 Baldur Johnsen ÆXLI í NÝFÆDDUM BÖRNUM Á ÍSLANDI ÁRIN 1955-1972 INNGANGUR Grein þessi um illkynja æxli í nýburum hér á landi er liður í greinaflokki um dánarorsakir nýfæddra barna hér á landi, (sér í lagi burðarmálsdauða), sem byggja á meinafræðilegum rannsóknum höfundar og annarra starfsmanna á Rannsóknastofu Háskólans (RH). Greinin er meðal annars byggð á erindi, sem höfundur flutti um þetta efni á ráðstefnu »Nordisk Forening for pediatrisk patologi« í Tromsö 1974. Farið var að hugsa um þetta viðfangsefni á ný þegar til stóð að halda hér norræna meinafræðingaráðstefnu 1985, sem ekki varð þó af, og átti aðalefnið að vera barnaæxli. Þá vantaði í fyrrnefndan greinaflokk um burðarmálsdauða þátt um þetta efni, þ.e. æxlin. Fyrsta greinin um burðarmálsdauða birtist í Acta Pathologica Microbiologica Immunologica Scandinavica 1968, en þrjár þær síðustu í Læknablaðinu. Um ginklofann 1982 (1), yfirlitsgrein 1983 (2), um meðfætt lungnaleysi 1984 (3) og um þyngd skjöldungs í íslendingum 1986 (4). Þessi grein er hin tíunda í röðinni í greinaflokknum og eru þá aðeins tvær eftir. Lítið hefur verið fjallað um æxli í börnum hér á landi til þessa og síst um ungbarnaæxli sérstaklega. í erindaflokki Krabbameinsfélagsins á Kjarvalsstöðum fyrir almenning fyrr á þessu ári var þó flutt erindi um æxli í börnum 0-15 ára (5). EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Farið var yfir krufningsskýrslur RH ásamt tilheyrandi smásjársýnum áranna 1955-1972 þessu efni viðkomandi svo og krabbameinsskráningu frá sama tíma. Þá var farið yfir dagbækur St. Jósefsspítala Landakoti, sjúkrahúss Hvítabandsins (nú að finna i skjalasafni Borgarspítalans), fæðingadeildar og barnadeildar Landspítalans (með góðfúslegu samþykki viðkomandi stofnana, sem hér með er Frá Rannsóknastofu Háskólans. Barst 09/10/1986. þakkað). Við skoðun nefndra gagna var sérstaklega lögð áhersla á aldur er fyrstu einkenna varð vart. NIÐURSTÖÐUR Á töflu I er að finna lista yfir skrásett æxli í nýfæddum börnum á íslandi á tímabilinu 1955-1972 þar sem þau ein æxli eru tekin með í úrtakið, sem þegar voru komin í ljós við fæðingu eða snemma á fyrsta ári. Þannig eru af þessum 13 æxlum þrjú greind í andvana fæddum börnum, þar af tvö fjölkímsæxli, annað talið góðkynja. Eitt tilfelli með fjölkímsæxli (teratoma) lifði í 11 mánuði. í úrtakinu koma fyrir sex tilfelli af hvítblæði (leucemia), fjögur sveinbörn og tvö meybörn, þar af eitt andvana fætt barn. Oftast var um að ræða bráð eitilfrumuhvítblæði tilfelli. Bæði illkynja fjölkímsæxlin, (teratoma chorioid presacralis og teratoma malignum c. carcinoma papilliferum) voru í meybörnum. Tvisvar komu illkynja æxli fyrir í augum, augnkímsæxli (retinoblastoma) og taugakímsæxli (neuroblastoma) og lifði hið síðartalda barnið af eftir skurðaðgerð, en hið fyrra lést eftir aðgerð. Heilaæxli komu tvisvar fyrir, medulloblastoma, sem lifði af eftir aðgerð (meybarn), en hitt, sveinbarn með pinealoma, sem leitt hafði til stíflunar á hjarnasmugu (aqueductus mesencephali eða aqueductus cerebri) með þar af leiðandi vatnshaus (hydrocephalus) varð fárra lífdaga auðið. UMRÆÐA Það er vert að gefa því gaum, hve mörg tilfelli af illkynja æxlum einkum hvítblæði koma fyrir í nýfæddum börnum á árunum 1955-1972. Þetta er margfalt meiri tíðni en þekkt er á seinni árum, 0,2 af þúsundi allra fæðinga á tímabilinu. Flest hvítblæðitilfellin koma á fá ár 1955-1958, eða þegar hæst stóðu kjarnorkuvopnatilraunir í andrúmslofti. Hér á iandi mældist einnig mikið geislavirkt úrfelli árið 1958 fyrsta mælingaárið hér (6). Hin mikla tíðni hvítblæðis á þessum árum er því varla tilviljun, heldur í fullu samræmi við

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.