Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1988, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 15.11.1988, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 385-7 385 Ásmundur Brekkan, Jón G. Stefánsson, Kristján Erlendsson STOFNANIR í BANDARÍSKA HEILBRIGÐISKERFINU VILJA AUÐVELDA ÚTLENDINGUM AÐGANG AÐ FRAMHALDSNÁMI Frá ráðstefnu um nýmæli í alþjóðlegri læknakennslu á vegum Educational Commission for Foreign Medical Students Eftirfarandi er skýrsla frá ofangreindri ráðstefnu sem haldin var í New York í júlí sl. Höfundarnir eru Ásmundur Brekkan forseti læknadeildar H.Í., Jón G. Stefánsson dósent og Kristján Erlendsson læknir. INNGANGUR Tilgangur fundarins var að gefa forystumönnum og kennurum í læknadeildum um allan heim tækifæri til þess að hittast, skiptast á skoðunum og hugmyndum. Jafnframt var tilgangur Bandaríkjamanna að kynna hvað bandaríska heilbrigðiskerfið hefur upp á að bjóða til að miðla þekkingu og reynslu. Einkanlega voru kynnt þrjú atriði sem eru ný, eða endurbætt skipulag á eldra fyrirkomulagi. Þar er um að ræða: International Medical Scholar Programme (IMSP); Foreign Faculty Fellowship Programme in the Basic Medical Sciences; og 1988 Directory of International Programs and Projects. Hluttaka erlendra lækna hefur verið mjög mikil í bandaríska heilbrigðiskerfinu og á tímabili fylltu kandídatar frá öðrum löndum um það bil 30% af öllum unglæknastöðum. Miklar sveiflur hafa þó verið í þessu og á síðustu árum hefur þeim stórlega fækkað. Á sama tíma hefur einnig hægt á fjölgun bandarískra læknastúdenta og því sums staðar farið að bera á skorti á unglæknum. Það er því óneitanlega athyglisvert að þessi fundur skuli vera haldinn á þessum tíma þegar þörf Bandaríkjamanna fyrir erlendan starfskraft er hvað mest. Þess ber þó að geta, að eins og þær nýjungar, sem áður er getið, eru kynntar, er ekki réttlætanlegt að ásaka þá um að skara eld að sinni köku á þennan hátt. Þátttakendur á fundinum voru um 200, þar af um helmingur utan Bandaríkjanna. Þarna voru kennarar eða fulltrúar læknadeilda og háskóla, einnig fulltrúar ríkisstjórna, ráðuneyta og ýmissa samtaka er tengjast læknakennslu og heilbrigðisþjónustu. Hlutverk - ábyrgð - menntun - rannsóknir Fundurinn var haldinn í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna og skiptist í þrjá hluta. í hverjum voru þrjú til fjögur inngangserindi og síðan voru umræðuhópar er ræddu fyrirfram ákveðin þemu. í fyrstu atrennu voru þrjú erindi: »Roles and Responsibilities of United States Medical Schools in International Medical Education«, »Defining Medical Education Worldwide« og »Resources and Limitations of Medical Centers in the United States«. í framhaldi ræddu umræðuhópar þessi þrjú atriði. í þeim hópum var mest rætt um hversu mikinn, ef einhvern, áhuga þátttökulöndin hefðu á að senda fólk til þjálfunar í Bandaríkjunum og var sá áhugi almennur. Þar kom einnig fram að þarfir þjóðanna eru mjög mismunandi og áberandi var hversu margir höfðu áhyggjur af þvi, að þeir sem færu til Bandaríkjanna kæmu ekki aftur. Þá var einnig rætt um það, að margt það sem menn kynntust í Bandaríkunum væri óþarft fyrir hinar þjóðirnar og kostaði oft á tíðum mikil útlát í formi nýrra tækja og búnaðar þegar hámenntaðir sérfræðingar á þröngum sérsviðum kæmu aftur heim. Því sjónarmiði var aftur mótmælt á þann hátt, að mjög erfitt væri að kenna einungis það sem hefði staðbundna og hagnýta þýðingu í meðferð sjúklinga og slíkt væri beinlínis »and-akademískt«. Þá var rætt um á hvern hátt slík menntunartengsl væru best skipulögð, hvort um væri að ræða formleg tengsl milli ríkisstjórna, ráðuneyta, læknaskóla eða fagfélaga og sýndist sitt hverjum. Flestir virtust þó á því að hingað til hefðu persónuleg sambönd verið megin hvati að slíkum samskiptum og vildu menn greinilega ekki sleppa þeim möguleika. Þeir sem stjórna bandarískum stofnunum virðast vera mjög opnir fyrir slíku og þurfi jafnvel ekki kunningsskap til. Þó var talið nauðsynlegt að einhverjum formlegum tengslum yrði komið á eða að minnsta kosti væru til samhæfingaraðilar eða úrlausnaraðilar, sem

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.