Kópavogur - 24.05.2013, Blaðsíða 2
2 24. maí 2013
Hvalasafnið á Húsavík hefur
löngum verið eitt af vinsælustu
söfnum landsins. Frá því safnið
var stofnað árið 1997 hafa um
250 þúsund manns notið þess
að skoða sig þar um. Í ár var
nýtt sýningarrými tekið í notkun
fyrir Hvalaskólann sem safnið
rekur.
Einar Gíslason, framkvæmda-
stjóri Hvalasafnsins á Húsavík,
segir að á safninu gefist gestum
gott færi á að skyggnast inn í
veröld hvalanna, þessara risa
hafsins. Áhersla hefur ævinlega
verið lögð á að vanda framsetn-
ingu efnis og kunna gestir vel
að meta það, en skýringarmynd-
ir á safninu og náttúrulegir sýn-
ingagripir hafa vakið verðskuld-
aða athygli gesta og komið
ímyndunaraflinu á flug.
Margt forvitnilegt að sjá og
skoða
Sýning safnsins samanstendur
meðal annars af vistkerfi sjávar,
líffræði hvala, hvalveiðisögunni
og hvalrekum fyrr á öldum. Sýn-
ingarrýmið er um 1600 fermetrar
að stærð en Hvalasafnið er stað-
sett í gamla sláturhúsi Kaup-
félags Þingeyinga sem byggt var
árið 1931. „Við erum með margt
forvitnilegt sem fólki þykir gam-
an að sjá og skoða,“ segir Einar
og nefnir m.a. að á sýningunni
séu 10 beinagrindur af hinum
ýmsu hvalategundum, sú stærsta
er 13 metra löng af búrhval sem
rak á land í Steingrímsfirði árið
1997. Meðal beinagrinda má
nefna norðsnjáldra, hrefnu, búr-
hval, hnúfubak, háhyrning, and-
arnefju, grindhval og náhval.
Nafn Húsavíkur er nátengt
hvalaskoðunarferðum en þar á
bæ hafa menn verið í farar-
broddi í yfir 20 ár hvað varðar
hvalaskoðun hér á landi og þótt
víðar væri leitað. „Það er upp-
lagt fyrir þá sem hyggjast fara í
hvalaskoðun í sumar að koma
fyrst við á safninu og fræðast
um hvalina og það gera mjög
margir,“ segir Einar.
Nýtt sýningarrými fyrir Hvala-
skólann
Hvalasafnið gegnir lykilhlutverki
í fræðslu og upplýsingamiðlun
um hvali og lífríki þeirra hér við
land og má á safninu finna
margvíslegan fróðleik um hvali,
samskipti manna og hvala og
þróun tegundarinnar svo eitt-
hvað sé nefnt. „Í ár tókum við í
notkun nýtt sýningarrými fyrir
Hvalaskólann, sem við rekum í
tengslum við safnið og þar má
meðal annars sjá verkefni sem
nemendur í leik- grunn- fram-
halds- og háskólanámi hafa unn-
ið,“ segir Einar, en í fyrirlestrar-
sal eru sýndir vandaðir þættir
um hnúfubaka og búrhvali.
Frá upphafi hefur Hvalasafnið
tekið við sjálfboðaliðum, m.a.
erlendum háskólanemum í líf-
fræði eða skyldum greinum og
hafa þeir verið daglegri starfsemi
safnsins ómetanlegir. Þeir taka
að sögn Einars m.a. þátt í að
vinna að sýningunni sem stöð-
ugt er verið að þróa áfram, bæta
og breyta auk þess að taka þátt í
rannsóknarverkefnum á vegum
safnsins.
„Við teljum að þetta safn sé á
heimsmælikvarða, það er tilval-
inn staður fyrir alla fjölskylduna
að heimsækja,“ segir Einar.
whalemuseum.is
N O R Ð U R L A N D N O R Ð U R L A N D
Safnið verður opnað 20. maí og
verður opið út september, alla daga
frá 10 fyrir hádegi og til 8 á kvöldin.
Aðgangseyrir er 700 krónur
og frítt fyrir yngri en 12 ára.
Samgönguminjasafnið Ystafelli
Ystafelli 3 - 641 Húsavík
Sími 464 3133 og 861 1213
sverrir@islandia.is - www.ystafell.is
Samgöngu-
minjasafnið
Ystafelli
Safn á heimsmælikvarða
Með Útivist út í náttúruna
Yfir 250 þúsund gestir hafa sótt Hvalasafnið á Húsavík frá upphafi.
Ferðamannastraumur í Fjalla-
byggð hefur aukist umtalsvert
eftir að Héðinsfjarðargöng voru
opnuð en með tilkomu þeirra
varð aðeins fáeinna mínútna
akstur milli miðbæja Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar. Annar ávinning-
ur ganganna er aðgengi að Héð-
insfirði en áningarstaðir með
upplýsingaskiltum eru á vegs-
pottanum milli gangamunnanna
tveggja. Ferðafólki er bent á að
nota þar tækifærið á ferð sinni
og hafa þar viðdvöl, njóta nátt-
úrunnar og fræðast um þennan
fjörð, hvort heldur er komið frá
Akureyri eða úr Skagafirði. Það
er margt að sjá og njóta í Fjalla-
byggð.
Þétt dagskrá viðburða
Viðburðadagskráin í Fjallabyggð
er þétt á sumrin og sumir þeirra
eiga sér mjög langa sögu. Hæst
ber auðvitað að nefna Síldaræv-
intýrið á Siglufirði um verslunar-
mannahelgina, sem er í raun
orðin fimm daga samfelld hátíð
sem nú mun standa dagana 1.-5.
ágúst. Með þeirri hátíð er haldið
á lofti sögu síldaráranna á þess-
um fornfræga söltunarstað en ár-
ið um kring má einnig fræðast
um þá sögu í Síldarminjasafninu
á Siglufirði sem stöðugt er í
framþróun. Hróður þess safns
hefur borist víða á undanförnum
árum. Af öðrum rótgrónum við-
burðum má nefna fjölsótt knatt-
spyrnumót; annars vegar Niku-
lásarmótið í Ólafsfirði 12.-14. júlí
fyrir yngstu aldursflokkana og á
Siglufirði er síðan haldið Pæju-
mót dagana 9.-11. ágúst þar
sem, líkt og nafnið bendir til,
þreyta kappi yngstu stúlkurnar í
knattspyrnunni. Raunar má segja
að fyrsti viðburður sumarsins
verðir sjómannahátíðin á Ólafs-
firði 31. maí til 2. júní en þar í
bæ er rík hefð fyrir því að halda
sjómannadaginn hátíðlegan.
Jónsmessuhátíð verður á Siglu-
firði 22. júní og síðan taka við
þrjár tónlistarhátíðir í röð; fyrst
Blue North Music Festival í
Ólafsfirði 27.-29. júní en þá daga
ræður blúsinn ríkjum. Í kjölfar
hennar kemur svo Þjóðlagahátíð
á Siglufirði dagana 3.-8. júlí en á
sama tíma, þ.e. 4.-7. júlí er ný
hátíð á dagskránni í Ólafsfirði
sem ber það skemmtilega nafn
Ólæti. Þar er á ferðinni tónlistar-
og menningarhátíð ungs fólks.
Dagna 5.-14. júlí verður síðan
efnt í annað sinn til dagskrár
sem ber heitið Reitir og er al-
þjóðlegt samstarfsverkefni skap-
andi greina. Þessi dagskrá verð-
ur á Siglufirði. Síðsumars verða
síðan tvær hátíðir í Fjallabyggð.
Fyrst hin gamalgróna tónlist-
arhátíð Berjadagar í Ólafsfirði en
þar er berjatíðinni fagnað með
klassískum tónlistarviðburðum.
Að þessu sinni verður sú hátíð
dagana 16.-18. ágúst. Síðasta há-
tíð sumarsins verður síðan
Ljóðahátíð á Siglufirði sem hald-
in verður í septembermánuði.
Þar taka þátt landsþekkt ljóskáld
og aðrir aðkomnir heimamenn,
auk listfenginna heimamanna,
yngri sem eldri.
Golf, gönguleiðir og veitingar
En það eru ekki aðeins viðburð-
ir sem fanga athygli og áhuga
ferðafólks. Golfáhugamönnum
skal bent á golfvelli bæði í
Burstabrekku í Ólafsfirði og á
Hóli í Siglufirði. Hótel Brimnes
er starfrækt í Ólafsfirði og á
Siglufirði hafa opnað tvö ný
gistiheimili; annars vegar Gisti-
heimilið Siglunes og hins vegar
The Herring House. Vert er
einnig að gefa sér tíma við höfn-
ina á Siglufirði þar sem byggð
hefur verið upp öflug veitinga-
starfsemi á vegum fyrirtækisins
Rauðku. Þar er að finna veit-
ingahúsið Hannes Boy og kaffi-
húsið Kaffi Rauðku en fyrirtækið
hefur einnig hafið framkvæmdir
við byggingu Hótels Sunnu þar
skammt frá.
Göngugarpar hafa einnig úr
fjölmörgum gönguleiðum að
velja í Fjallabyggð enda Trölla-
skaginn ein besta uppspretta
fjölbreyttra gönguleiða á land-
inu.
fjallabyggd.is
Síldarævintýrið á Siglufirði er ein
af þekktustu bæjarhátíðunum hér
á landi og jafnan fjölsótt.
Viðburðaríkt sum-
ar í Fjallabyggð
Gönguleiðir eru fjölmargar um Tröllaskagann og víðsýnt af fjallatind-
um. Hér eru tveir ungir göngugarpar með Siglufjörð í baksýn.
Velkomin til Hríseyjar!
Allar nánari upplýsingar á hrisey@hrisey.net
og í síma 695-0077 - Heimasíða www.hrisey.net
Hús Hákarla Jörundar
Opið alla daga 1. júní – 31. ágúst frá kl. 13:00-17:00
Í þessu elsta húsi
Hríseyjar er búið að
koma upp vísi að
sýningu sem tengist
hákarlaveiðum
og sögu eyjarinnar
Þar er einnig hægt
að nálgast upplýs-
ingar um eyjuna
og hvað hún hefur
upp á að bjóða.
36 | ÆVINTÝRALANDIÐ 2013
Kópavogsbæ
færður
hvíldarbekkur
Systkinin Petrína Rós, Jóhannes og
Pétur Karlsbörn færðu Kópavogsbæ
bekk til minningar um foreldra sína,
þau Ólöfu P. Hraunfjörð, bókavörð,
og Karl Árnason, forstjóra Strætis-
vagna Kópavogs, á afmælisdegi bæj-
arins 11. maí. Þau voru bæði virk í
félagsmálum í bænum.
Margrét Björnsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, tók við bekknum
fyrir hönd bæjarins. Bekkurinn er
á göngustígnum við Kópavogstún
og á honum er áletrun til minningar
um Ólöfu og Karl sem létust fyrir
örfáum árum.
Kópavogur
sigraði Garðbæ
í boccia
Lið Kópavogs j r lagði lið Garð-
bæinga í boccia-keppni sem haldin
var í tilefni af 20 ára afmæli Gjá-
bakka, félagsmiðstöðvar eldri
borgara í Kópavogi. Fyrir Kópavog
kepptu voru Ármann Kr. Ólafsson
bæjarstjóri, Rannveig Ásgeirsdóttir
formaður bæjarráðs, Pétur Ólafs-
son bæjarfulltrúi og Ólafur Þór
Gunnarsson bæjarfulltrúi.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, leiddi lið Garðbæinganna
en með honum voru þau Sturla Þor-
steinsson, Kári Jónsson og Margrét
Björk Svavarsdóttir.
Liðin tókust á af fullri hörku og
hafði Kópavogur betur eins og áður
sagði. Allt var þetta þó t l ga ans
gerst og fóru allir sáttir heim að
leikslokum.
Stofnun
Wilhelms
Beckmann í
Kópavogi
Stofnun Wilhelms Beckmann lista-
manns hefur nú verið komið á fót af
hálfu Kópavogsbæjar og afkomenda
listamannsins. Hlutverk stofnunar-
innar er að varðveita sögu, list-
sköpun og listaverk hans og kynna
þau og sýna almenningi á Íslandi
og erlendis.
Wilhelm Beckmann var fjölhæfur
listamaður og skar út í tré, hjó í stein,
málaði myndir og gerði skartgripi.
Hann fæddist í Hamborg í Þýska-
l ndi árið 1909 og lærði útskurð og
myndhöggvaralist. Hann flutti til Ís-
lands árið 1935 og kvæntist Valdísi
Einarsdóttur fimm árum síðar og
eignuðust þau tvö börn. Hann gaf
Kópavogskirkju fyrstu altaristöflu
kirkjunnar árið 1954. Wilhelm lést
árið 1965.
Stutt og laggott
Fjórir g unnskólar fá viðurkenningu
fy r nýbreytni í skóla tarfi
Verkefni frá Kópavogsskóla, Kárnesskóla, Álfhólsskóla og Lindaskóla fengu í vikunni
viðurkenningu skólanefndar Kópavogs
fyrir að stuðla að nýbreytni og fram-
þróun í grunnskólum Kópavogs.. Verk-
efnin eru fjölbreytt og snúast m.a. um að
grunnskólabörn kenni eldri borgurum
á ýmis tölvuforrit, vettvangsferðir út í
náttúruna, listasýningar í skólum og
greiningu á lestrarvanda nemenda.
Skólanefnd Kópavogs auglýsti eftir
tilnefningum frá Kópavogsbúum fyrr
í vetur og bárust ellefu tilnefningar.
Skólanefnd lagði síðan mat á þær í sam-
ráði við stjórn Samkóp, samtök for-
eldrafélaga og foreldraráða í Kópavogi.
Verkefni Kópavogsskóla bar heitið
Náttúrufræðitíðindi og gengur út á
að nemendur kynnist umhverfi sínu
á skemmtilegan hátt, með vettvangs-
ferðum út í náttúruna eða með heim-
sóknum heim í skólastofu.
Verkefni Kársnesskóla var sam-
vinnuverkefni milli nemenda í 8. og
9. bekk og eldri borgara í bænum þar
sem þeir yngri tóku að sér að kenna
þeim eldri allt um tölvur og tækni.
Verkefni Álfhólsskóla gekk út á að
bæta lestur og lestrarfærni nemenda
í yngstu bekkjunum og mæla árangur
þeirra með markvissum hætti og nota
til þess lestrargreiningartækið Logos.
Að lokum má nefna verkefni Linda-
skóla sem gengur út á það að fá lista-
menn til að vera með sýningar í skól-
anum á menningardögum í desember.
Með því læra nemendur að njóta fjöl-
breytileika listarinnar.
Bragi Thoroddsen, formaður
skólanefndar Kópavogs, afhenti full-
trúum skólanna viðurkenningarskjöl
og blóm.
Gunnar I Birgisson Sjálfstæðisflokki:
Breytingarnar á aðalskipulaginu geta
mögulega bakað bænum bótaábyrgð
Þetta mál snýst í raun og veru um það að það er búið að vera að vinna að þessu aðalskipulagi
í fjögur ár og á lokastigum þess á að
breyta svæðum sem ætluð voru undir
byggð í opin svæði. Samkvæmt eignar-
námssamningi sem gerður var 2007
skal landeigandi fá um 11% af söluverð-
mæti hverrar lóðar og ef við skerðum
möguleika hans getur bærinn verið að
baka sér skaðabótaábyrgð. Þetta viljum
við að sé skoðað betur, flóknara er það
ekki“ segir segir Gunnar I. Birgisson
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í bæjar-
stjórn Kópavogs og bætir við: „Það eru
engin óheilindi í því falin auk þess sem
að það liggur ekkert lífið á að afgreiða
þetta og koma í kynningu meðan þessir
þættir eru óljósir. Þetta er búið að vera í
vinnslu í fjögur ár“ segir Gunnar.
„Við þessa breytingu, að fækka landi
undir fasteignir í opið svæði, minnkar
eignastaða Kópavogsbæjar og hitt að
Vatnsendabóndinn kann að eiga ein-
hvern rétt vegna þessa“ segir Gunnar.
Hann segir að þetta sé engin smá-
breyting. Þetta þýði fækkun um 106
lítil fjölbýlishús, um 50 einbýlishús auk
iðnarhúsnæðis. Hann segir að fulltrúi
Samfylkingarinnar Guðríður Arnar-
dóttir hafi óskað eftir lögfræðiáliti
vegna málsins og að hann sjálfur hafi
einnig gert það.
„Að fenginni reynslu er ekki verra
að hafa tvö lögfræðiálit þegar við af-
greiðum þetta mál, raunar nauðsyn-
legt“ segir Gunnar. Málinu var fre-
stað á síðasta bæjarstjórnarfundi
og verður tekið fyrir á fundi næsta
þriðjudag en þá ættu þessi lögfræðiá-
lit að liggja fyrir. „En umfram allt að
þá leysa yfirlýsingar í fjölmiðlum um
meint óheilindi ekkert og málin verða
yfir höfuð ekki leyst í fjölmiðlum
heldur á fundum bæjarstjórnar og
það er von mín að menn átti sig á
því“ segir Gunnar að lokum í samtali
við blaðið.
Gunnar I Birgisson. aðalsteinn Jónsson.
Nýr skólastjóri í Lindaskóla
Guðrún G. Halldórsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Lindaskóla.
Ráðningin var einróma samþykkt á
fundi bæjarráðs Kópavogs á dögunum.
Guðrún tekur við stöðu skólastjóra
þann 1. ágúst af Gunnsteini Sigurðs-
syni.
Guðrún hefur lokið M.Ed. gráðu í
stjórnun menntastofnana. Síðastliðin 3
ár hefur hún gegnt starfi aðstoðarskóla-
stjóra Lindaskóla.Hún gegndi stöðu
skólastjóra í grunnskólanum í Búðardal
frá 2002-2009 og stöðu aðstoðarskóla-
stjóra við sama skóla frá 1999-2002.
Á árunum 1988-1998 starfaði hún
sem umsjónarkennari í Víðistaðaskóla
í Hafnarfirði. Samhliða aðstoðarskóla-
stjórastöðu í Lindaskóla hefur Guðrún
verið deildarstjóri yngsta stigs.
Guðrún G. Halldórsdóttir.
Um 1700
ungmenni starfa
hjá Kópavogsbæ
í sumar
Hátt á annað þúsund ung-menni frá fjórtán ára aldri
fá sumarvinnu hjá Kópavogsbæ í
sumar. Yfir 900 unglingar á aldr-
inum 14 til 17 ára sóttu um hjá
Vinnuskóla Kópavogs og fá þau
öll vinnu. Um 800 ungmenni 18
ára og eldri sóttu um önnur sum-
arstörf hjá bænum og er vonast
til að hægt verði að bjóða þeim
öllum störf hjá bænum í sumar.
Verið er að fara yfir umsóknir
þessa dagana.
Flest störfin eru hjá áhaldahúsi
bæjarins sem sér m.a. um viðhald
og umhirðu opinna svæða og gatna
og fegrun bæjarins. Einnig verður
ráðið í störf á íþróttavöllum, við
sundlaugar Kópavogs, á leikjanám-
skeiðum og í störf leiðbeinenda hjá
vinnuskóla og skólagörðum.
Frá verðlaun afhendingunni í vikunni.
Auglýsingasíminn er 578 1190 - Netfang: auglysingar@fotspor.is