Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1997, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 15.02.1997, Blaðsíða 46
118 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Umræða og fréttír „Nýjungar“ í sjúkrahúsrekstri Landlæknir ritar grein í Læknablaðið í janúar 1997 undir fyrirsögninni: Hvers vegna er brugðist seint við nýjungum í sjúkrahúsrekstri? Hann furðar sig á því hvers vegna við höfum ekki tekið upp ýmis rekstrar- form í þjónustu við sjúklinga sem eru ódýrari og aðrar þjóðir hafa í ríkum mæli tekið upp. Hér er um að ræða sjúkrahótel, hjúkrunarhótel, aðhlynningar- stofnanir og dagdeildarstarf- semi. Greining landlæknis á ástandinu er hárrétt. Við erum langt á eftir öðrum þjóðum hvað þetta varðar og þá einkum og sér í lagi Bandaríkjamönnum eins og hann tekur réttilega fram. En Skandínavar hafa einnig tekið sig mjög á og stór- aukið þessa starfsemi á undan- förnum árum. Lækningin sem landlæknir telur að til þurfi, það er að fjölga fagfólki í stjórnum heilbrigðis- stofnana, er að mínu mati röng og sýnir að hann skortir skilning á grundvallarorsök vandans. Vandamálið er nefnilega röng fjármögnun sjúkrastofnana. Fjármögnun sjúkra- stofnana Til þess að ná fram hagræð- ingu og nýta það fjármagn sem lagt er til heilbrigðisþjónust- unnar þannig að sem mest náist út úr því þarf að breyta núver- andi hugsunarhætti. Pað er kominn tími til að við förum að átta okkur á því að núverandi fjármögnunarkerfi, það er föst fjárlög, er löngu gengið sér til húðar og er beinlínis skaðlegt fyrir eðlilega þróun þjónustunn- ar í samræmi við breyttar að- stæður. Til þess að hagkvæmni ofan- greindra breytinga, sem land- læknir nefnir, komi í ljós þarf að gera allan kostnað við heil- brigðisþjónustuna sýnilegan. Það verður ekki gert með öðru móti en því að færa kostnaðinn niður á sjúkling. Þannig verður mögulegt að tengja kostnaðinn sjúkdómsgreiningu og aðgerð og á þann hátt bera saman hag- kvæmni hinna ýmsu meðferðar- forma. Hagkvæmni þess að þjóna sjúklingi á dagdeild á móti því að leggja hann inn til sólarhringsdvalar kemur ekki í ljós nema kostnaðurinn í báðum tilfellum sé sýnilegur og saman- burðarhæfur. Það sama gildir að sjálfsögðu um önnur form þjónustunnar svo sem sjúk- lingahótel og fleira. Gæði í heilbrigðisþjónustu hafa verið endurskilgreind á þann hátt að þau merki þjón- ustu sem er veitt þannig að sjúklingurinn fái það sem hann þarfnast með sem minnstum til- kostnaði. Við þær aðstæður að fjármagn til heilbrigðisþjónustu er af skornum skammti, þýðir sóun einfaldlega að ekki geta jafnmargir notið þjónustunnar eins og ef allrar hagkvæmni hefði verið gætt. Þannig er hægt að halda því fram að stofnun sem leggur sjúkling inn til sólar- hringsdvalar sem hægt væri að sinna jafnvel á dagdeild fari ekki vel með það fjármagn sem henni er ætlað til reksturs og gæði þjónustunnar verði þar af leiðandi í lágmarki. Skilningur fagaðila Lausnin á vandanum sem landlæknir minnist á, það er að fjölga fagaðilum í stjórn sjúkra- stofnana, gengur ekki vegna þess að því miður hefur mér sýnst að skilningur ýmissa fag- aðila á eðli málsins sé takmark- aður og því engin trygging fyrir lausn á þann hátt. Það eina sem tryggir bestu nýtingu fjármagns er að venjulegum viðskiptaað- ferðum í rekstri sjúkrastofnana sé beitt. Ólafur Örn Arnarson læknir, framkvæmdastjóri við Sjúkrahús Reykjavíkur Iðgjald til Lífeyrissjóðs lækna Eitt stig fyrir árið 1996 er kr. 204.000,- þannig að lágmarksiðgjald til að viðhalda réttindum, það er 1/3 úr stigi, er kr. 68.000.- Þau sem borga iðgjaldið beint til sjóðsins, eru beðin að inna það af hendi sem fyrst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.