Sagnir - 01.04.1980, Blaðsíða 66

Sagnir - 01.04.1980, Blaðsíða 66
mannréttindum og frelsi, eins og þær þóttust gera í síðustu styrjöld og þykjast enn gera í þessari styrjöld, heldur miða þessar stjórnir utanríkis- pólitík sína við hagsmuni yfirstéttarinnar í löndum sínum, stéttarhagsmuni hennar, stórveldahagsmuni hennar ... . En þegar sósíalistar taka upp á því að gera hið sósíal- istíska stórveldi tortryggi- legt án þess að hafa gildar ástæður, þá er það léttúðar- full og ábyrgðarlaus iðja. Því vonir verkalýðsins um sigur sósíalismans í þeim átökum, sem nú fara fram í heiminum eru tengdar við það að til er sósíalístiskt stórveldi, sem ræður yfir sjötta hlutanum af þurrlendi jarðarinnar og hefur enga aðra hagsmuni en heildar- hagsmuni alþýðunnar í öllum löndum. Ef verkalýðurinn glat- aði Sovétlýðveldunum sem banda- manni þá væri það stærsta á- fallið, sem verkalýðshreyfing nútímans hefur orðið fyrir og í augum alls fjöldans mundi baráttan fyrir sigri sósíal- ismans í þeirri úrslitahríð, sem nú er háð, ekki lengur vera raunhæf pólitík... .8 Síðar í greininni rekur Brynjólfur gang mála og orsakir styrjaldar- innar og koma þar fram skýringar, sem áður hafa birst hér á síðunum. í niðurlagi greinarinnar segir Brynjólfur m.a.: Hvað kemur næst spyrja menn? Hver verða endalok og úrslit þessa stríðs? Það sem við fyrst og fremst vonum og þráum er að Hitlerfasisminn líði undir lok. Það er óvarlegt að spá nokkru um rás viðburðanna. En svo framarlega sem stríðið dregst á langinn, er ekki hægt að hugsa sér önnur úr- slit, en ósigur Þýskalands og hrun Hitlerfasismans ... . Þjóðir Sovétríkjanna treysta því og við treystum því að alþýðan í Þýskalandi verði þess megnug að taka völdin, þegar Hitler er að þrotum kominn. En Chamberlain þykist líka hafa sín tromp á hendinni. Hann treystir á þýskar her- foringjaklíkur, er ryðji Hitler úr vegi og bindi trúss sitt við Bretland. Hann treystir því að honum takist með að- stoð slíkra bandamanna að skapa Þýskaland, er verði eins konar fjárhagsleg nýlenda Bretlands, í enn ríkara mæli en Weimarlýðveldið var, Þýska- land, er hægt yrði að nota gegn Sovétríkjunum ... . Ef bragð Chamberlains skyldi takast, er gott fyrir Sovét- lýðveldin að hafa haldið áfram hinni sósíalistisku uppbygg- ingu og styrkt herstöðu sína og hervarnir, meðan andstæð- ingarnir veiktu sig í inn- byrðis styrjöld. En ef alþýðan í Þýskalandi sigrar, þá verður væntanlega gert hernaðarbanda- lag miili Þýskalands og Sovét- ríkjanna. Þá á hið nýja Þýska- land á hættu vopnaða innrás breska og franska auðvaldsins, eins og Rússland áður. Og vissu- lega er þá gott fyrir Þýskaland og alþýðu allra landa, að Sovétríkin hafi atvinnulíf sitt og hervarnir í fullu lagi meðan Bretar og Frakkar hafa þreytt sig á stríði ... . ÞÓ að þýski fasisminn sé erkióvinurinn á núverandi tímabili, þá má ekki gleyma hinu að breska auðvaldið er sterkasti óvinurinn.9 Við þessa löngu klausu er ekki vert að hnýta mörgum orðum. Þó má benda á, að byltingarvæntingin er söm við sig, og einnig þá fullvissu, að það er sama, hvernig allt veltist, Bretar eru og verða höfuðfjandi allrar alþýðu. í grein Gunnars Benediktssonar, sem að framan er nefnd, er enn fjallað um málið og koma þar fram flest hinna sömu sjónarmiða og hjá Brynjólfi. En Gunnar leggur á það áherslu, að sósíalistar megi alls ekki ánetjast múgæsing- um auðvaldspressunnar, sem með griðasáttmálanum hafi "fengið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.