Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Blaðsíða 29

Sagnir - 01.10.1983, Blaðsíða 29
Halldór Bjarnason: Er sagnfræði nytsamleg? Menn hafa réttlætt tilvist og iðkun sagn- fræði á ýmsan hátt, öðrum hefur þótt það óþarft. En það er ekki óeðlilegt að iðkend- ur og unnendur sagnfræði reyni að réttlæta tilvist hennar þegar sífellt eru gerðar meiri kröfur til þess nú á tímum að öll iðja manna sé arðberandi eða hafi ótvírætt hagnýtt (praktískt) gildi. Ætlunin er að drepa á nokkur atriði sem menn telja gjarnan sagnfræði til gildis nú. Fleiri mætti telja upp, en það verður ekki gert hér. Naumast þarf að taka fram að lítil heimildakönnun liggur að baki þessu grein- arkorni. Það er vaxið upp úr einni spurn- ingu sögukennsluhópsins og annar efni- viður takmarkast af kunnugleika mínum. Af hverju? Mig langar fyrst að grípa niður í svar Gísla Gunnarssonar varðandi réttlætingu sagnfræðinnar, þar sem hann kemur einmitt inn á það af hverju sagnfræðin þurfi að rétt- læta tilvist sína: Skýringin á því að sagnfræðingar þurfa að réttlæta notagildi vísindagreinar sinnar liggur í því að ákveðnir skoðana- og hagsmunahópar hafa á reiðu kenningar um lausn samfélags- vandamála sem eru óháðar tíma og rúmi og skortir þá afstæðni, sem einkennir góða sagn- fræði. Sumar félagsvísindagreinar eru á ýmsan hátt andsögulegar í aðferðafræði og viður- kenna lítið gildi breytileika eða afstæðni í tíma og rúmi. Má hér nefna bæði sálfræði og hag- fræði, en gagnrýni á báðar þessar greinar felst í því að í þeim séu málin einfölduð um of og síðan séu viðamiklar og oft flóknar kenningar byggðar á einfölduðum grunni. Ýmsir aðilar hafa þannig haldið því fram að mestöll sú hagfræði, sem kennd er við vestræna háskóla, sé lítils virði sem raunhæf skilgreiningaraðferð á efnahagslífinu en þjóni hins vegar eigendum kapítalsins álíka vel og miðaldaguðfræðin þjónaði lénsherrunum. Afstaðan gagnvart sagnfræðinni ræðst því oft mjög af því hve mikið menn treysta á til- vist algildra, óhjákvæmilegra lögmála til lausnar á vandamálum samfélagsins; einnig af því hvort þeir telja að fjölbreytileiki og breytingar á ríkjandi samfélagsháttum séu æskileg fyrirbæri.1 Ingi Sigurðsson rekur þetta til uppgangs raunvísinda á þessari öld: Þá hefur tækniþróunin átt mikinn hlut í þeim umbyltingum á 20. öldinni, sem eiga sinn þátt í kreppu þeirri, sem ríkt hefur í hugvísindagreinum og í sagnfræðinni. A slíkum tímum er ekki eins auðvelt og áður var að leggja áherzlu á samhengið í sögunni, heimsmyndin hefur breytzt og hugmynda- fræði þar með; á miklum breytingatímum er gömlu gildismati varpað fyrir róða. Einnig hefur sú glæsta þróun, sem óneitanlega hefur orðið innan raungreina - hvað sem mönnum annars finnst um þær afleiðingar, sem þessi þróun hefur haft - ýtt undir það viðhorf, að leggja skuli strangan hagnýtingarmælikvarða á hugvísindagreinar og átt þátt í því að hrekja hugvísindin í varnaraðstöðu um sinn.2 Að mínu áliti er þessi spurning um „nyt- 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.