Sagnir - 01.06.2001, Blaðsíða 126

Sagnir - 01.06.2001, Blaðsíða 126
Guðmundur Jónsson er dósent í sagnfræði við Háskóla Islands. Að miðla sögulegu efni Umsögn um 21. árgang Sagna í íslensku hefóinni Ef ég ætti að nefna einhverja sérstaka færni sem sagn- fræðin við Háskóla íslands leggur upp úr á síðustu árum þá væri það miðlun sagnfræðilegrar þekkingar. Kennarar leggja sig vissulega fram við að koma þekk- ingu á fortíðinni til nemenda og þjálfa þá í að nota sagnfræðilegar aðferðir við öflun og úrvinnslu heim- ilda. En færni í miðlun sögulegs efnis er einn snarasti þátturinn í náminu, þar er vel sögð saga meira metin en flókin og fræðileg greining. í námskeiðum skipa skrifleg verkefni og ritgerðir háan sess og umræðu- tímar, þar sem nemendur þjálfast í framsögn og um- ræðu um sögulegt efni, eru óvíða jafnstór hluti af kennslustundum. í inngangnámskeiðinu Aðferðum hefur miðlun fengið nokkurt rúm og með breytingum á námskrá sem taka gildi á næsta skólaári bætast við Aðferðir II þar sem þessi þáttur verður enn aukinn. Enn má nefna að sérstök valnámskeið um miðlun sögu með ólíkum hætti hafa verið í boði á BA-stigi mörg undanfarin ár. Og svo eru það Sagnir, enn einn vettvangurinn fyrir sagnfræðinema til að spreyta sig í miðlun sögu- legs efnis. í þessu ágæta riti reyna sagnfræðinemar að sameina „aðgengilegan texta handa fróðleiksfús- um almenningi“, eins og það er stundum kallað, og aðlaðandi útlit, hvattir af kennurum sínum og umsagnarmönnum Sagna á umliðnum árum. Sagn- fræðin er ekki bara fyrir fagfólkið heldur á erindi til almennings. Þegar á heildina er litið leysa nemendur þetta verkefni vel af hendi í þeim ellefu ritgerðum sem er að finna í 21. árgangi Sagna. Alúð hefur verið lögð við textagerðina, ritgerðirnar eru jafnan læsilegar og skýrar, ásláttar- og málvillur eru fáar og framsetning víða áhugavekjandi. Auk nemendarit- gerða er viðtal við Margréti Jónasdóttur sagnfræðing um gerð sögulegra heimildamynda og Sigurjón Baldur Hafsteinsson skrifar pistil um sagnfræði og kvikmyndir, hvorttveggja efni sem varðar miðlun sögulegs efnis. Þess utan er að finna hugleiðingar um heimilda- gildi tölvupósts og viðtal við þrjár fræðikonur frá Balkanskaga um hlutverk menntamanna þar fyrir og eftir Balkanstríð. Þetta er vel til fundið efni og minnir okkur á hve iðkun sagnfræði er nátengd aðstæðum líðandi stundar. Áherslan á miðlun sögulegs efnis sýnir að sagnfræðin við Háskóla íslands heldur enn í gamla hefð þar sem frásagnarlistin er talin með æðstu dyggðum. í Evrópu og víðar hefur um langt skeið verið gagnrýnt að félagsvísindaleg aðferð hafi rutt frá- sagnarsagnfræði úr vegi. Greining, rannsóknarspurningar, til- gátuprófanir og kenningalopi komi í stað atburðarásar og atvikslýsinga. Þessi gagnrýni á þó að litlu leyti við á íslandi vegna þess að félagsvísindalega aðferðafræðin hefur ekki náð al- mennilega tökum á íslenskum sagnfræðingum nema í undan- tekningatilvikum. f Sögnum segir íslenska hefðin sterkt til sín því aðeins í þrem tilvikum hefja greinar sig af frásagnarstigi og leita svara við ákveðnum spurningum eða kryfja sagnfræðileg vandamál. Það eru greinar Tryggva Más Ingvarssonar um þjóð- leiðir um Vesturland á Sturlungaöld, grein Adams Wagners um þjóðarhugtakið í danskri miðaldasögu og grein Jósefs Gunnars Sigþórssonar um sagnritun um kristnitökuna. Varla efast nokkur um að hæfileikinn til að segja góða sögu er kostur í sagnfræði, þar sem sagan í sínum fjölbreytilegu myndum fær að njóta sín. En það á ekki að verða til þess að greinandi sagnfræði sem leitar orsakaskýringa eða hærra alhæf- ingastigi sé vanrækt. Hana þarf að þjálfa ekki síður en heim- ildarýni, textameðferð og framsetningu. Menningarsagan í sókn Á síðasta áratug varð athyglisverð breyting á viðfangsefnum í lokaritgerðum nemenda í sagnfræði. f stórum dráttum birtist hún í því að vegur menningarsögu fór jafnt og þétt vaxandi, jafnvel svo að upp undir þriðjungur ritgerða taldist til þessa flokks á árabilinu 1991-2000 samkvæmt athugun minni. Fjöl- breytilegasta efni fellur undir menningarsöguna: ritmenning, listir, skólamál, húsakostur, kristni, afþreying o.s.frv. Að sama skapi hefur vægi stjórnmálasögu og enn frekar hagsögu minnk- að - því miður verð ég að segja. Hvernig kemur efnisval 21. árgangs Sagna heim og saman við þessa þróun mála? Góð samsvörun er þarna á milli því af 11 nemendaritgerðum í heftinu falla fjórar undir menningarsögu. Nú ber að vísu hafa í huga að minnihluti greina í Sögnum eru samdar upp úr lokaritgerðum, meirihlutinn eru námskeiðsrit- gerðir og endurspegla því allt eins áhuga og rannsóknarsvið kennara í sagnfræði eins og áhuga nemenda. 124
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.