Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 44

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 44
 MYNDLIST k.3 ■'» <* "* CS ^ ‘ $ S | i^S^SKS^SS EFTIR KJARVALS- og Ásgrímssýningarnar í vetur, sem meiri hluti bæjarbúa sótti og margir aftur og aftur, hefir verið fremur lítið um að vera á listasöfnum bæjarins, eða að- eins tvær sýningar, þeirra Valtýs Péturssonar og Veturliða Gunnarssonar, auk sýningar á danskri myndlist í Listasafninu í sambandi við komu konungshjónanna. Sýningar þeirra Valtýs og Veturliða vöktu athygli, einkum sýning Veturliða, en þar seldust tugir mynda. Myndir Valtýs voru að vanda allar óhlutlægar, en sýningin var mjög fjölbreytt og skemmtileg. Valtýr Pét- ursson er gáfaður og alvarlegur listamaður, en mjög leitandi og óráðinn enn. Svipað má að því leyti segja um Veturliða, að hann hefir ekki fundið form, sem svara til hinnar furðulegu sköpunargleði og ríku þarfar til mikilla átaka, sem þessi sérkennlegi maður virðist hlaðinn. Frá útlöndum bárust fréttir af ísl. lista- mönnum, sem getið hafa sér góðan orðstír. Guðm. Guðmundsson, ungur málari, hlaut mikla viðurkenningu í Róm fyrir verk sín, og ung listakona, Ásgerður Ester Búadóttir, hlaut gullpening fyrir ofið veggteppi og fleiri verk. Er það mikill heiður, þar sem þarna voru sýnd verk eftir mörg þúsund listamenn frá flestum löndum Evrópu. R. J. Rabb við Gunnlaug Scheving Ég lagði að gamni mínu nokkrar spurninaar fyrir Gunnlaug Scheving einn daginn, þegar við sátum yfir kaffibolla, og fara þrjár þeirra hér á eftir ásamt svörum hans. Eins og spumingarnar bera með sér, var engan veginn til þess ætlazt, að þetta yrði formlegt eða sam- fellt viðtal, og því hefir Gunnlaugur ekki heldur svarað þeim a!ls staðar orði til orðs. En svörin eru svo blátt áfram, að ég tel víst, að lesendum muni þykja fengur i að heyra þau, jafnvel fremur en margar bóklegar kennisetningar um list. R. J. I. SPURNING. — Þér finnst eflaust dálítið barnalegt, að leggja þá spurningu fyrir list- málara, hvort hann hafi gert sér grein fyrir því, hvemig ákveðið tímabil markast í list- sögunni, og ástæðum fyrir því að list virðist stundum allt í einu verða að meira eða minna leyti áhrifalaus, og hættir að gleðja fólk eða koma við hjartað í því cg gera líf þess rík- ara og fyllra? SVAR. — Sumir listamenn gera sér eflaust grein fyrir hvemig slík tímamót markast, aðrir gera það Ííklega ekkert sérstaklega. Hvað viðkemur áhrifaríkum eða áhrifalaus- um köflum í menningar- og listsögu þjóðanna yfirleitt, álít ég að það sé ekki listin ein, sem ræður úrslitum í þeim efnum, heldur líka smekkur hverrar einstakrar kynslóðar. Verk listamannsins breytist ekki með tíð og tíma, en smekkur fólksins, sem svo er kallað, breytist sífellt. Sú list, sem þótti leið- inleg fyrir hundrað árum, er skemmtileg í dag. Það, sem er áhrifalaust í dag, getur orðið hrífandi á morgun. II. SPURNING. — Verður ekki öll list fyrr eða síðar úrelt og dauð eins og önnur mann- anna verk. SVAR. — Hvað er móðins núna þessi árin í myndlist? Auðvitað svo margt, og þar á meðal eru myndir sem sagt er, að séu þær elztu er fundizt hafa, málverk gerð af frum- stæðu fólki sem bjó í hellum og þekkti ekki hús. Ef til vill verða þessar myndir gamal- dags á næstunni — heltast úr lestinni, líkt og á sér stað nú um ýmsa listamenn, sem

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.