Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Blaðsíða 7

Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Blaðsíða 7
HANNES PÉTURSSON: Hj á þ ér v ildi ég hvílast Hjá þér vildi ég hvílast, heiðin mín, á sumartíð, reika og hvílast, hlýða um hljóða dagsstund á ferðasögur fuglanna sem fara svo langt og víða. Hjá þér vildi ég hvílast og hlusta á þýðlynt morgunregn hníga hóglega, strjúka um hreina tjaldsúð, heyra svigna í svalanum sefið vota og mjúka. Hjá þér vildi ég hvílast og heyra að kvöldi væran svefn vitja mín vængjuðum skrefum yfir votan lyngmó, gleyma, gleyma í þögninni þjóðanna steyttu hnefum. Af þessu er Ijóst, að íslendingum er ekki nóg að sýna festu og þrautseigju. Þeir munu engu síður þurfa á hyggindum og samningslipurð að halda. Það er því óvit- urlegt að lýsa því yfir, eins og margir hafa gert, að samningar um landhelgismálið komi ekki til greina. í samningum þarf hvorki að felast uppgjöf eða undansláttur, og þær aðstæður geta auðveldlega skap- azt, að samningaleiðin verði líklegust til árangurs. Ef Islendingar eiga að fá öllum sínum óskum fullnægt, hljóta þeir að treysta á, að viðurkennd verði sérstaða þeirra í þessum efnum sem þjóðar, sem byggir alla afkomu sína á fiskveiðum. Ekki er ólíklegt, að sú sérstaða fáist frekar við- urkennd með samningum við fáein ríki, sem lilut eiga að máli, en með almennri samþykkt á alþjóðaþingum. Á þetta verð- ur enginn dómur lagður nú, en mestu skiptir, að menn bindi sig ekki um of við ákveðnar kreddur eða fordóma. í hita deilunnar við Breta mega íslend- ingar ekki heldur gleyma því, að land- helgismálið er ekki eina hagsmunamál þjóðarinnar. Ekki aðeins Bretar, heldur flestar þær þjóðir aðrar, sem andsnúnar hafa verið í þessu máli, eru bandamenn íslendinga og vinaþjóðir. Svo miklu máli

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.