Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Blaðsíða 21

Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Blaðsíða 21
LlFSSKOÐVN MÍN 1. Formáli eða eftirmáli eftir BERTRAND RUSSELL Maðurinn er nýkominn á stjörnu sína, ef miða skal við tímatal jarðfræðinnar og þró- unarsögu lífsins. 1 milljónir ára voru ein- ungis tii mjög óbreytt dýr. Á milljónum ára þróaðist síðan smám saman ný gerð dýra: fiskar, skriðdýr, fuglar og loks spendýr. Mað- urinn, sú dýrategund, sem vér teljumst til, hefir verið við lýði í milljón ár í mesta lagi en þá heilaorku, sem hann býr yfir nú, hefir hann haft til að bera í einungis hálfa milljón ára eða þar um bil. Maðurinn kemur seint á vettvang í sögu heimsins og jafnvel í sögu jarð- lífsins, að kalla má, og þó er miklu skemmra síðan, að hann tók að beita ofurvaldi sínu, sem er í senu svo glæsilegt og skelfilegt. Það eru ekki nema sex þúsund ár, síðan maður- inn uppgötvaði hæfileika sína til mannlegra athafna, þeirra sem aðgreina hann frá öðrum dýrum. Segja má, að upphaf þessara athafna sé ritlistin og myndun stjórnskij)ulags. Frá byrjun ritaðrar sögu hefir framþróun mann- kynsins engan veginn verið jöfn og órofin, heldur hefur henni miðað áfram í stökkum. Eftir öld pýramídanna skilaði manninum ekki áfram að ráði, fyrr cn á dögum Grikkja, en síðan var ekki um sambærilega framför að ræða, fyrr en um það bil fyrir fimm hundruð árum. En undanfarin fimm hundruð ar hafa breytingar gerzt æ tíðari og hafa að lokum orðið svo örar, að gamall maður getur varla vænzt þess að skilja þann heim, sem hann byggir nú. Það virðist óhugsandi, að þetta ástand, sem nú ríkir og er svo gjör- samlega frábrugðið öllu, sem maðurinn hefir búið við frá því að lífverur urðu fyrst til, ' 7D Með þessari grein er svo ráð jyrir gert, að hejjist jlokkur lcajla úr verkum nokkurra merkra hugsuða nútímans, er nejnast mun „lijsskoðun mín“. Sú grein, sem hér hirtist, svo og að líkindum jlest- ar hinna, er sótt í bókina, This Is My Philosophy, sem tekin var saman aj Whit Burnett í samráði við höjundana sjálja. Er hér um mjög vel gert úrval að ræ.ða, og er þess að vœnta, að lesend- um IIELGAFELLS muni þykja jróð- lcgt að kynnast líjsskoðun þessara manna, eins og hún kemur jram í verlc- um þeirra. Sá þáttur, sem hér er birtur ejtir hinn jræga heimspeking og Nobels- verðlaunahöjund, Bertrand Russell, er síðasti kafli bókarinnar, lluman Society in Ethics and Politics. L__________________________________________> geti haldizt án þess að valda einhvers konar sundli, einhverjum voveiflegum svima, sem bindi endi á hinn sívaxandi æsihraða, sem æ meiri lýir hjarta manns og heila. Slíkur ótti er engan veginn ástæðulaus, ástandið í heiminuin kyndir undir honum, og hinn íhuguli sagnfræðingur fer ekki varhluta af honum, þegar hann hugleiðir, hve hraðfleyg samtíð- in er miðað við seinagang fortíðarinnar. En ef vér leiðum hugann frá því, sem trufl- ar oss á líðandi stund og lítum á heiminn frá sjónarmiði stjörnufræðingsins, þá virðist framtíðin jafnvel ennþá lengri en allar þær aldir samanlagðar, sem jarðfræðin greinir frá.

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.