Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Blaðsíða 27

Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Blaðsíða 27
BRÉF TIL HELGAFELLS 73 Reykjavík 23. júní 1958 Herra ritstjóri. Eg hefi ekki komizt hjá að lesa nokkrar af <)llum þeim tillögum, sem birtzt hafa um framtíð Skálholts. Ég hefi engan þátt tekið • þessum umræðum og ætla mér ekki að gera Framtíð framvegis, þótt ég leggi nú Skálholts ^ils h&ttar orð í belg. Astæðan til þessarar framhleypni minnar nú er sú, að mig langar til að bera upp við yður athyglisverða tillögu, sem ég heyrði greinda og virðulega frú skjóta fram í vet- þurraband og sögðu hver við annan: „Hvern hefði dreymt um, að við kæmum þessu frá í dag. Við höfum svei mér látið hendur standa fram úr ermum“. Þegar konungur guðanna kom heim í kvöld- matinn á Olympstindi, var hann ákveðinn í að segja þreytulega við konuna, ef hún spyrði, hvers vegna hann kæmi svona seint í mat- iun: „0, sama bölvað púlið eins og vant er“. En Júnó var hvergi sýnileg. Konungur guð- anna sá það samt fljótt á svipnnm á þjón- unum, að húsfreyjan væri svo sem búin að frétta sitt af hverju. ,Til livers er svo allt þetta bölvað um- stang,“ sagði hann mæðulega. „Af hverju er eg að ergja mig á öllum þessum hamskipt- um. ITver hefur yfir mér að segja?“ Samt sem áður. Hann ákvað að fara gæti- legar næst. Það var annars bezt að sleppa því að gefa hinni glóeyga Júnó gjöfina, sem hann hafði komið með handa henni: drifahvíta nautshúð undir fæturna fyrir framan rúm- stokkinn. S. G. þýddi. ur. Með því að frúin kvaðst ekki sjálf mundu ráðast í að koma þessari tillögu sinni á framfæri, fékk ég leyfi hennar til þess. Þær tillögur um framtíð Skálholts, sem mér hefir orðið einna starsýnast á, eru þrjár: 1) að guðfræðideild Háskólans verði flutt aust- ur þangað, 2) að Menntaskólanum á Laugar- vatni verði ætlaður þar staður, 3) að biskupi Iandsins verði ætluð þar búseta. Það fer vart fram hjá nokkrum, að miklir annmarkar eru á öllum þessum tillögum. Guðfræðideildarstúdentum og prófessorum er vitanlega höfnðnauðsyn á að njóta safna og annarra menningarverðmæta, sem fráleitt er að gera ráð fyrir, að Skálholt nútímans geti haft npp á að bjóða. Menntaskólinn á Laug- arvatni virðist vel í sveit settur. Hann nýtur þess, að hann er vaxinn npp úr öðrum skóla. Það er ávallt varhugarvert — ekki sízt ef vel gengur — að rífa stofnanir upp úr því umhverfi, sem þær hafa gróið í. Auk þess sýnist það að ýmsu leyti hagfelldara að hafa nokkra skóla á sama stað. Þá hlýtur það að reynast þjóðkirkjunni til niðurdreps að flytja biskupsembættið langar leiðir frá stjórnar- völdum landsins. Biskup á vitaskuld auðveld- ara með að koma fram málum kirkjunnar, ef hann er nálægur þeim vettvangi, þar sem málefnum hennar er að síðustu að verulegu leyti ráðið, þ. e. á Alþingi og stjórnarskrifstof- um. Tillaga sú, er ég vil biðja yður, herra rit- stjóri, að koma á framfæri við lesendur tíma- rits vðar, er sú, að kaþólska söfnuðinum á tslandi verði gefið Skálholt. Til þess að girða fvrir allan misskilning leyfi ég mér að taka skýrt fram, að ég ber þetta ekki fram af trúarlegum hvötum. En ég hygg, að þetta verði að flestu leyti heppileg lausn. A þenn- an hátt mundi íslenzka ríkið losna við mik- inn kostnað, sem frekari endurreisn staðar- ins hlyti að hafa í för með sér, enda efa ég ekki, að kaþólska kirkjan hefir fjárhagslegt bolmagn og menningarvilja til þess að húsa staðinn vel og hefja hann til nýrrar virðing- ar. A það mætti benda í þessu sambandi, að Skálholt var um margar aldir kaþólskt menntasetur. Og vel megum vér íslendingar leiða hugann að |>ví, að kaþólskir klerkar kenndu oss fvrst þær listir, sem vér höfum náð einna beztum tökum á: að lesa og skrifa.

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.