Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 13
HELGI HALLGRÍMSSON:
SKOLLABER
Dálítil, snotur jurt .. .segir Stefán í Flóru sinni, á undan hinni
hefðbundnu lýsingu skollabersins, Cornus suecica L.
Það er ekki oflof að skollabersplantan sé snotur, þar sem hún vex
upp úr lyngi eða grasi, venjulega í þéttum breiðum. Með sínum ljós-
grænu, reglulega krossstæðu, bogtauga, egglaga blöðum, og sótsvört-
um blómum, sem eru krýnd af snjóhvítum krónum, vekur þessi planta
óðar athygli þess, sem hana sér. Maður undrast þessa einföldu fegurð,
sem er meira fólgin í reglulegum formum, en dýrðlegri litasamsetn-
ingu.
En skollabersplantan er ekki öll þar sem hún er séð. Það sem í fljótu
bragði virðist vera blóm er raunar blómskipun. Þetta sjáum við strax,
ef við athugum „krónublöðin". Að lögun og gerð eru þau í engu frá-
brugðin venjulegum laufblöðum, nema hvað þau eru hvít. Út af því
getur þó bragðið, því stundum eru eitt eða fleiri af „krónublöðun-
um“ grænleit eða nokkur hluti þeirra er grænn, og komið getur fyrir
að þau séu alveg græn, og eru þá vart þekkjanleg frá venjulegum lauf-
blöðum. í þessu kemur fram hið rétta eðli þessara „krónublaða“, þetta
era raunar alls engin krónublöð, heldur háblöð eða reifablöð, sem liafa
tekið við hlutverki krónublaðanna, þ. e. að vekja athygli skordýra á
blóminu. Á milli þessara gervikrónublaða eru blómin, oftast 7—12,
þétt saman í eins konar kolli. Þau eru svört á litinn, og stinga því mjög
í stúf við hvít reifablöðin. Ef við gáum vel að sjáum við að hvert blóm
hefur fjögur lítil krónublöð, einnig svört.
Hvert blóm breytist við þroskann í rautt steinaldin, sem líkist mjög
venjulegu beri, t. d. hrútaberi. Þessi ásjálegu ber eru hins vegar alveg
þurr og harla bragðvond. Er það efalaust ástæða þess að plöntunni
hefur verið valið nafnið skollaber á íslenzka tungu. (Skolli merkir hér
refur.) Nágrannaþjóðir okkar hafa og nöfn í svipuðum dúr, t. d. heitir
skollaberið á færeysku royuber (rauðber), á norsku skrubbær eða troll-
bær og nöfnin bikkjebær og svinebær þekkjast þar einnig. Á sænsku
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFR/EÐI - FlÓm 1 1