Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Blaðsíða 57

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Blaðsíða 57
Vel þykir mér höfundi hafa lánazt að velja efni til bókar sinnar, svo að hún veiti sem mestan allsherjar fróðleik um íslenzk handrit. Hann greinir frá upphafi bókagerðar á Islandi og þróun hennar fram til 16. aldar, er pappírs- bækur leysa skinnbækur af hólmi; frá aldri handrita og aðferðum við að tímasetja þau; frá gerð skinnbóka og útliti; frá meðferð þeirra og tortímingu; frá nokkurum hinna merkustu skinnbóka; frá söfnun handritanna, einkum starfi Arna Magnússonar; frá aðferðum við að lcsa handritin og gefa þau út á prent; frá Ijós- prentun handrita, og loks frá prentuðum hand- ritaskrám. Nána þekkingu á fornum handritum öðlast sá einn sem handleikur þau sjálf að staðaldri, les þau og hagnýtir. En næst því að sjá þau og handfjalla gcngur að skoða eftirmyndir þeirra. Og í Handritaspjalli eru 25 ljósmyndir af blaðsíðum eða blaðsíðupörtum úr handrit- um. Sum þessara sýnishorna eru úr mynd- skreyttum bókum, og eru þá eftirmyndirnar prentaðar í sömu litum sem frumritin. Flestar þessara litmynda cru teknar eftir pappírshand- ritum og heldur bernsklegar að gerð. Hefði vissulega mátt fá miklu listilegri myndir úr fornum skinnbókum, svo sem marka má af Stjórnarmynd þeirri sem birt er andspænis bls. 52. Ég hygg að höfundur hagi vali sínu þannig ril þess að erta þá menn sem hafa, upptendr- aðir af þjóðarmetnaði, jafnað saman myndum í íslenzkum skinnhandritum og sjálfum þeim hókmenntum sem á skinnið eru skráðar. ís- lenzk fornrit eru merkustu bókmenntir verald- ar frá þeirri tíð; en þótt íslenzkar skinnbóka- myndir séu að jafnaði meiri listaverk en skrípi þau frá síðari öldum sem Jón Helgason birtir í bók sinni, þá virðast þær þó heldur lítilmót- legar ef litið er á erlendar „skrúðbækur", þar sem bókfellið er „mjallahvítt og prýtt hinum fegurstu myndum". — Á blaðsíðunni and- spænis hverri mynd í Handritaspjalli er prent- uð greinargerð um það sem myndin sýnir, og eru þá jafnan prentaðar klausur úr texta hand- ritanna til að koma mönnum á Iag við að lesa þau. Ég hefði kunnað betur við að prentmál það sem myndunum fylgir hefði náð niður í gegn á síðunum, en ráðizt hversu hátt það teygðist upp á við. Þá hefði þegar í stað verið ljóst að um innskot er að ræða, en ekki fram- hald meginmáls bókarinnar. Jónas Kristjánsson. Skilur eftir óm Jóhann Hjálmarsson: Undarlegir fiskar. Heimskringla, Reykjavík, 1958. Fyrsta Ijóðabók Jóhanns Hjálmarssonar, Aungull í tímann, vakti hrifningu margra og ekki að ástæðulausu. Hún var fersk, Ijóðræn, ekki ýkja frumleg, en furðu þroskuð um form og um meðferð máls af unglingsverki að vera. Hér var auðsæilega ljóðskáld á ferð, en það verður ekki sagt um einn af tíu, sem gefa út ljóðabók í þessu landi og kallast skáld á eftir. Það hvarflar stundum að manni, að ekki veitti af að lögvernda heitið skáld. Ekki get ég fullyrt, að önnur ljóðabók Jó- hanns, Undarlegir fiskar, hafi að öllu uppfyllt þær vonir, sem fyrsta bók hans vakti. Skáld- ið slær að mestu á sömu strengi, bregður upp svipuðum myndum, kemur lesandanum sjald- an á óvart. Honum hættir nokkuð við end- urtekningtim og mátti raunar sjá þess merki þegar í fyrstu bókinni. Ég nefni hér notkun hans á lýsingarorðum, sem tákna Iit. Fram- arlega í fyrstu bókinni talar skáldið um gula og bláa fugla á rauðri tjörn. Þessir þrír litir, gulur, blár og rauður, eru síðan endurteknir í hverju Ijóðinu eftir annað. Það er talað um rauðar nætur, bláa fjöru og gula hörpudiska, rauða sól, blá fjöll og gula strönd o.s.frv., og í síðari bókinni er þetta endurtekið í tveimur Ijóðum, en litirnir rauður, gulur og svartur koma fyrir í þremur. Jóhann skáld hefur sýnt það, ekki sízt í þessari nýju ljóðabók, að hann kann vel þá kúnst að endurtaka orð og setn- ingar til áherzlu svo að vel fari — gengur jafnvel svo langt að tvískrifa eitt Ijóðanna, og hann um það — en þessar lita endurtekning- ar virðast mér af því tagi, sem frekar er að vænta af þeim, sem gengnir eru í barndóm en af þeim, sem nýgengnir eru úr barndómi. Um mörg Ijóðanna í þessari nýju Ijóðabók virðist mér mega segja það, sem skáldið segir um þytinn í einu þessara ljóða: . . . þyturinn ungi lifir aðeins einn dag eins og gleðin eins og sorgin en hann skilur eftir óm í hjörtum skóganna. DAGSKRÁ 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.