Félagsbréf - 01.01.1958, Blaðsíða 54

Félagsbréf - 01.01.1958, Blaðsíða 54
HOWARD FAST Avarp til rússneskra rithöfunda Erindi, sem útvarpað var til Sovétríkjanna ARUM saman kölluðum við hver annan vini og; félaga, og á þeim árum vann ég í rikum mæli ástúð ykkar og traust. Ég geri ráð fyrir, að þetta hafi síður verið að þakka gæðum ritverka minna, heldur en þeirri sannfæringu ykkar, að ég væri ótrauður að fylgja rödd samvizku minnar. Þetta voru erfið ár fyrir vinstri sinnaða rithöfunda í Ameríku. Við vorum hrjáðir og ofsóttir, af því við vildum ekki dylja rödd okkar and- spænis því, sem við álitum óréttlæti. Og þegar mín eigin ríkisstjórn setti mig í fangelsi fyrir það að neita að segja, hverjir styddu hjálparstarf- semi meðal spænskra lýðveldissinna, þá hét ég á rithöfunda um allan heim, að þeir brýndu raust sína til mót- mæla gegn þessari óréttlátu fang- elsun minni og hinna hraustu vina minna. Ég þarf ekki að minna ykkur á þá mælsku er birtist í svörum ykkar, og engin svör voru skírari en ykkar, kæru rússnesku stéttarbræður. Það var sannarlega eðlilegt, því að mál- staður þess manns, sem er með órétti fangelsaður, málstaður rithöfundar- ins, er einn sá bezti, sem mannkynið þekkir. Þá sáuð þið greinilega, að ríki, sem fangelsar og þaggar niður í rithöfundum, getur ekki krafizt mannúðar og lýðræðis. Nýlega fengum við að vita það, að hópur hinna ágætustu og færustu rithöfunda meðal Ungverja hefðu verið dæmdir til fangelsisvistar af ungverskum dómstólum þann 13. nóv. 1957. Tibor Dery, 63 ára gamall og fram til þessa dags hollur meðlimur hins ungverska kommúnistaflokks, fékk 9 ára fangelsisdóm, sem jafn- gildir lífstíðar fangelsi. Guyla Hay, 56 ára gamall, var dæmdur í 6 ára fangelsi. Zoltan Zelk fékk þriggja ára dóm og Tibor Tardos eitt og hálft ár. Allir voru þessir dómar upp kveðn- ir af þeirri ástæðu, að ungversku rithöfundarnir, er að framan greinir, höfðu tekið þátt í baráttu fyrir frelsi þjóðar sinnar. Með þessari bar- áttu hafði allur heimurinn samúð og dáðist að henni. Jafnvel New York Daily Worker studdi þessa baráttu og lýsti því yfir, að málstaður ung- versku byltingarinnar væri sá rétti. Hvers konar rithöfundur er það, sem stendur fjarri, er um er að ræða frelsisbaráttu þjóðar hans. Væri hægt annað en hafa fyrirlitningu á slíkum rithöfundum. Þið sjálfir, mínir ágætu rússnesku stéttarbræður, munduð hafa fyrirlitið þann rússneska höf- und, sem staðið hefði álengdar, þegar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.