Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 68

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 68
64 SVEITARSTJÓRNARMÁL Byggingarmál kaupstaðanna er því við- fangsefni, sem á næstunni verður að gefa miklu meiri gaum að en hingað til hefur verið gert, og mun því máli verða hreyft hér í ritinu innan skamms og þá hent á þær leiðir, sem beinast liggur við, að farnar verði til þess að ráða bót á hús- næðisvandræðum liinna stærri kaupstaða og kauptúna. „Sveitarstjórnarmál“. í formálanum fyrir riti þessu er lítil- lcga vikið að tilgangi þess, en hann er aðallega sá, að skapa hér á landi mál- gagn, er flutt geti greinar, skýrslur, fréttir og annan fróðleik, er þá menn varðar sérstaklega, er sveitarstjórnarmál hafa með höndum. Það torveldar mönn- um mjög að fylgjast vel með í þessum efnum, að hvergi er greiður aðgangur að opinherum skýrslum um málefni sveitarfélaganna, og þær fáu yfirlits- greinar, sem um þau kunna að birtast í dagblöðunum, hverfa og glatast með þeim. Hvergi er heldur til vettvangur, sem þeir menn, er nýmæli hafa fram að hera í sveitarstjórnarmálum, geti flutt mál sitt á, án þess pólitískt verði á það litið, og aðrir mætt þeim til andsvara og gagnrýni. Ef að er gætt, er það líka svo, að á undanförnum árum hafa aðeins birzt i hlöðum eða tímaritum sárfáar greinar um sveitarstjórnarmálefni og þær komið fyrir augu fárra manna af öllum þeim fjölda, er við þessi mál fæst. Nú er það að komast á hér, sem fyrir löngu er orðið víða erlendis, að hinar einstöku stéttir eða hagsmunasamtök hafa sin eigin málgögn,. sem eingöngu fjalla um málefni stéttarinnar eða sam- takanna. Er þetta vel farið. Mönnum l'innst kannske tæpast hægt að kalla sveitarstjórnarmenn sérstaka stétt, en þeir eru þó hópur ínanna, sem sameigin- leg áhugamál eignast þann tíma a. m. k., sem þeir gegna sveitarstjórnarstörfum. Ætlun mín með riti þessu, ef þvi verð- ur sæmilega tekið af sveitarstjórnar- mönnum landsins, er sú, að safna saman í því sem mestu af skýrslum og öðrum fróðleik um öll þau mál, er sveitarfé- lögin varðar, birta í því greinar um þau efni og leiðbeiningar, svo að ritið geti með tímanum orðið gagnleg bók þeim, sem við þessi mál fást. „Sveitarstjórnarmál“ munu koma út í 4 heftum árlega og verða minnst 200 blaðsíður árgangurinn. í ár verða þó heftin ekki nema tvö, vegna þess hve seint er byrjað. Kostar næsti árgangur 10 krónur, en þessi 5 krónur. Bið ég þá, sem gerast vilja kaupendur að ritinu, að senda áskriftarmiða þann, sem því fylgir, útfylltan með fullu nafni, heimilisfangi og þeirri póstafgreiðslu, sem kaupandinn vill fá ritið sent til. Sveitarstjórnarmenn á íslandi eru nú nokkuð á annað þúsund, en auk þeirra er fjöldi manna, sem starfa í ýmsum nefndum liæ.jar- og hreppsfélaga, svo og sýslunefndum, og má þyí gera ráð fyrir, að rit þetta eigi erindi til allt að tvö þús- und íslendinga, þótt engir kaupi það og lesi aðrir en þeir, sem beinlínis hafa málefni sveitarfélaganna með höndum. Fyrir mér vakir einnig, eins og vikið er nánar að á öðrum stað í riti þessu, að takast megi að koma á fót félagsskap með sveitarstjórnarmönnum í landinu, án tillits til pólitískra skoðana þeirra, er hafi það markmið að hafa áhrif á alla þá lög- gjöf, sem um sveitarmálefni er sett, og gæta á allan hátt hagsmuna sveitarfélag- anna. Mundi félag þetta þá væntanlega taka við ritinu og sjá um það framvegis. Vænti ég þess, meðan ég gef ritið út, að njóta sem beztrar samvinnu við alla, sem við mál þessi fást og eitthvað vilja til þeirra leggja opinberlega. Félagsmálaráðherra hefur veitt dálít- inn styrk til útkomu ritsins nú í ár, og þakka ég honum þá hjálp. Ritstjórinn. Ríldsprentsmiðjan Gutenberg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.