Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.2002, Blaðsíða 13

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2002, Blaðsíða 13
Verðlaunað fyrir gott starf að Staðardagskrá 21: Akureyrarkaupstaður og Borgarbyggð í fremstu röð Tvö sveitarfélög hlutu verðlaun fyrir sér- stakan árangur í umhverfismálum á fimmtu landsráðstefnunni um Staðardag- skrá 21, sem haldin var á Akureyri í febrú- ar. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra veitti Akureyrarkaupstað Staðardagskrár- verðlaunin 2002 fyrir vönduð og markviss vinnubrögð í umhverfismálum og Borgar- byggð hvatningarverðlaun Staðardagskrár 21 á íslandi fyrir vel skipulagt og mark- visst starf að þessum málum undanfarna mánuði. Margir komu til greina Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, afhenti þeim Cuðmundi Sigvaldasyni, verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 á Akureyri, ogSigurði J. Sigurðssyni, forseta bæjarstjórnar, Staðardagskrárverðlaunin 2002 fyrir vönduð og markviss vinnubrögð f umhverfismálum. Stýrihópur Staðardagskrár 21 á íslandi vann að undirbúningi verðlaunaveiting- anna. Stefán Gíslason verkefnisstjóri sagði í samtali við Sveitarstjórnarmál að hópn- um hafi verið mikill vandi á höndum við valið, þar sem mörg sveitarfélög hafi unn- ið mjög gott starf á síðustu mánuðum. Til þess að nálgast niðurstöður um hvaða sveitarfélög væru best komin að viður- kenningunum var unnin greining á nokkrum þáttum Staðardagskrár 21, auk þess sem kannað var hvernig gengið hefði að framfylgja framkvæmdaáætlunum í einstökum sveitarfélögum. Að lokinni þeirri úttekt var, að sögn Stefáns, nokkuð Ijóst hvaða fimm sveitarfélög ættu helst tilkall til þessara viðurkenninga. í þeim hópi voru meðal annars Mosfellsbær og Snæfellsbær, en bæði þessi sveitarfélög höfðu áður hlotið viðurkenningar af þessu tagi. Að mati stýrihópsins er æskilegt að þrjú til fimm ár líði á milli þess að sama sveitarfélag hljóti viðurkenningu, því að annars mætti líta svo á að tiltekin sveitar- félög yrðu áskrifendur að verðlaunum. Stefán segir að þótt Mosfellsbær og Snæ- fellsbær hafi ekkert slakað á í þessum efn- um hafi af framan- greindum ástæðum verið ákveðið að beina sjónum í aðrar áttir. Skýrsla Akureyr- inga eftirsótt Að sögn Stefáns Gísla- sonar hafa Akureyring- ar með markvissu starfi orðið fyrirmynd annarra sveitarfélaga í þessu efni og skýrsla þeirra um verkefnið sé orðin eftirsótt hjá þeim sem skemmra eru á veg komnir. Hann seg- ir að vandað hafi verið til allra verka á Akureyri. Fagmennska hafi hvarvetna verið í fyrirrúmi og allt kynn- ingarstarf til fyrirmyndar. Hvað Borgar- byggð varðar segir Stefán að gerð Staðar- dagskrár 21 hafi farið hægt af stað en fyrir rúmum þremur mánuðum réði sveitarfé- lagið sérstakan verkefnisstjóra í fullt starf til þess að koma málinu á rekspöl. Frá þeim tíma hefur verið unnið af fullum krafti og er nú stefnt að því að fyrsta út- gáfa Staðardagskrár 21 fyrir Borgarbyggð verði tilbúin til samþykktar á komandi hausti. Hveragerðisbær hlaut hvatningar- verðlaunin á síðasta ári, en þessum verð- launum er ætlað að vera hvatning til þeirra sveitarfélaga sem hvað ötullegast hafa unnið að gerð Staðardagskrár 21 mánuðina á undan án þess að vera endi- lega komin í hóp þeirra fremstu. Guðmundur Sigvaldason, verkefnis- stjóri Staðardagskrár 21 á Akureyri, Sig- urður J. Sigurðsson, fráfarandi forseti bæj- arstjórnar Akureyrarkaupstaðar, og Hólm- fríður Sveinsdóttir, verkefnisstjóri í Borgar- byggð, veittu verðlaununum viðtöku. Hólmfríður Sveinsdóttir, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 í Borgarbyggð, tók við hvatningarverðlaunum Staðardagskrár 21 fyrir vel skipulagt og markvisst starf að þessum málum undanfarna mánuði. 13

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.