Morgunblaðið - 04.11.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.11.2011, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2011 íþróttir Handbolti Landsliðið mætir Pressuliði í Laugardalshöllinni í kvöld. Endapunkturinn á æfingabúðum landsliðsins sem hefur æft af krafti og býr sig undir EM í Serbíu. 2 Íþróttir mbl.is Ekki liggur enn ljóst fyrir hvar knattspyrnumað- urinn Guðjón Árni Anton- íusson, varn- armaðurinn öfl- ugi úr Keflavík, kemur til með að spila á næstu leiktíð. Samningur Guðjóns Árna við Keflavík er út- runninn og hafa nokkur lið úr Pepsi-deildinni óskað eftir kröft- um hans. Guðjón hefur mest verið orðaður við FH en bæði Breiðablik og Keflavík, sem hann hefur leikið með allan sinn feril, vilja gera við hann samning. Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að Guðjón spili á er- lendri grundu á næstu leiktíð en samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins fer hann á næstu dög- um til reynslu hjá norsku félagi og þar með hefur hann ekki tekið neinu tilboði frá íslensku liði. Hans mál eru einfaldlega í bið- stöðu. Guðjón Árni er 28 ára gamall sem hefur verið einn besti leik- maður Keflvíkinga undanfarin ár. gummih@mbl.is Guðjón Árni á leið til Nor- egs til reynslu Guðjón Árni Antoníusson KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is ÍR-ingar urðu fyrir mikilli blóðtöku á þriðjudaginn þegar í ljós kom að leikstjórnandinn snjalli, Sveinbjörn Claessen, hafði slitið krossband í annað sinn á tveimur árum. Hann verður ekki meira með ÍR á þessari leiktíð í körfuboltanum en hann missti einnig af tímabilinu 2009- 2010. „Áfall er ekki nógu sterkt orð til að lýsa þeirri líðan sem þessu fylgir. Þetta er bara ömurlegt og ekkert annað um það að segja. Það hlýtur bara eitthvað gott að eiga eftir að koma út úr þessu, það getur ekki annað verið,“ sagði Sveinbjörn þeg- ar Morgunblaðið náði tali af honum í gær en ekki er um sama hné að ræða og fyrir tveimur árum. Sveinbirni er vel kunnugt um þá endurhæfingu sem bíður hans að aðgerð lokinni en hann mun þó ekki fara undir hnífinn alveg á næstunni. Þegar Sveinbjörn sneri aftur á völlinn fyrir ári varð óhófleg vökvamyndun í hnénu og það seinkaði batanum um tvo mán- uði. Að þessu sinni verður þess freistað að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Mar í hnénu seinkar aðgerð „Læknirinn sér ástæðu til þess að flýta sér ekki í aðgerðina. Í hnénu er einhvers konar bein- og brjóskmar fyrir utan skaðann í krossbandinu. Þetta mar gerir það að verkum að ekki er æskilegt að gera aðgerðina að svo stöddu. Þetta tímabil er farið hjá mér og það skiptir ekki máli þó ég bíði í mánuð eða tvo eftir aðgerð- ina. Ég þekki endurhæfingarferlið upp á hár. Það var ekki skemmtilegt en svo sannarlega lærdómsríkt. Sjúkraþjálfarinn sem meðhöndlar mig, Róbert Magnússon, er mikill fagmaður og hann mun stýra end- urhæfingunni og koma mér aftur á rétta braut,“ sagði Sveinbjörn enn- fremur. Í ljósi þessara tíðinda mun hann geta einbeitt sér að lög- fræðinámi sínu í vetur en útskrift er fyrirhuguð hjá honum næsta vor. „Sárvorkenni Svenna“ Morgunblaðið hafði einnig sam- band við Gunnar Sverrisson, þjálf- ara ÍR, en Sveinbjörn hefur verið lykilmaður í hans liði. „Hugur minn er hjá Svenna því ég sárvorkenni honum en ekki hvort ég eigi að ná í annan leikmann. Svenni á sér draum um ákveðinn árangur í körfubolta og að þetta skuli gerast aftur er gríð- arleg vonbrigði fyrir hans hönd. Eins og menn vita er hann gríð- arlega duglegur og ákveðinn í því að gera vel. Þetta er alveg hræðilegt.“ „Áfall ekki nógu sterkt orð“  Sveinbjörn Claessen sleit krossband í hné í annað sinn á tveimur árum  Mun ekki fara í aðgerð á næstunni  Útskrifast sem lögfræðingur í vor Morgunblaðið/Kristinn Óheppinn Sveinbjörn hefur ekki haft heppnina með sér. Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er í viðræðum við bandaríska fé- lagið Phila- delphia Indep- endence um að leika áfram með því á næsta keppnistímabili. „Það eru líkur á að ég spili með þeim áfram. Ég er í viðræðum við forráðamenn félagsins en það er ekkert frágengið enn sem komið er,“ sagði Hólmfríður við Morg- unblaðið í gær og kvaðst ekki hafa rætt við nein önnur félög. Hólmfríður hefur leikið með Philadelphia undanfarin tvö ár en liðið endaði í bæði skiptin í öðru sæti bandarísku atvinnudeild- arinnar eftir ósigra í úrslita- leikjum. Hún var reyndar ekki með lið- inu á lokasprettinum í ár en Hólmfríður ákvað þá að lengja hjá sér tímabilið með því að ganga til liðs við Val í lok júlí. Hún spilaði því síðustu átta um- ferðirnar með Hlíðarendaliðinu, ásamt Evrópuleikjunum. vs@mbl.is Hólmfríður áfram hjá Philadelphia? Hólmfríður Magnúsdóttir Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ úthlut- aði í gær fjórum íþróttakonum og tveimur sér- samböndum samtals 3,5 milljónum króna. Mark- mið og tilgangur sjóðsins, sem var stofnaður 2007, er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda íþrótt sína og ná árangri. Um 50 umsóknir bárust en stjórn sjóðsins valdi úr þær Hönnu Rún Óladóttur og Söru Rós Jakobsdóttur danskonur, sem fengu 250 þúsund krónur hvor, og þær Ásdísi Hjálmsdóttur frjáls- íþróttakonu og Rögnu Björgu Ingólfsdóttur bad- mintonkonu sem fengu 500 þúsund krónur hvor. Þá fékk Sundsamband Íslands eina milljón króna vegna verkefna afrekskvennahóps síns, og Handknattleikssamband Íslands eina milljón króna vegna úrslitakeppni heimsmeistaramóts kvenna sem fram fer í Brasilíu í desember. Á myndinni eru Hanna, Sara og Ásdís ásamt fulltrúa Rögnu sem var upptekin við keppni í Þýskalandi í gær. vs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir S. Afrekskonur styrktar um 3,5 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.