Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Framkvæmdir við nýja stúdentagarða Félags-
stofnunar stúdenta á lóð Vísindagarða Háskóla
Íslands hófust í gær. Páll Hjaltason, formaður
skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, og Lilja Dögg
Jónsdóttir, formaður stúdentaráðs Háskóla Ís-
lands, hófu framkvæmdirnar með formlegum
hætti um þrjúleytið í gær. Byggingafram-
kvæmdin er sú stærsta á höfuðborgarsvæðinu
síðan haustið 2008.
Framkvæmdir hafnar við nýja stúdentagarða
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Verði leigutími orkuauðlinda styttur
kemur það óhjákvæmilega niður á arð-
semi virkjana, að sögn Daða Más
Kristóferssonar, dósents í auðlinda-
hagfræði við Háskóla Íslands. Ef tím-
inn verður styttur niður í 20-25 ár
munu mjög fáir virkjanakostir hér á
landi standast arðsemiskröfur.
Daði flutti erindi í gær á aðalfundi
Samorku, samtaka veitu- og orkufyr-
irtækja á Íslandi, og fjallaði um gjald-
töku, leigutíma og arðsemi orkunýting-
ar. Daði segir að arðsemi virkjana hér á landi sé lítil þar
sem lögð hafi verið megináhersla á lágt raforkuverð frekar
en arðsemi orkufyrirtækjanna. Virkjanir hér á landi séu
lengi að borga sig, sérstaklega jarðvarmavirkjanir. Leigu-
tíminn þurfi að ná yfir endurgreiðslutímabil fjárfestingar.
Mikil stytting á leigutímanum spilli því arðsemi virkjan-
anna.
Skammtímahagsmunir og langtímahagsmunir
Í umræðunni hafa sumir talað um að rétt sé að fara með
leigutímann niður í 20-25 ár. Daði segir í samtali við mbl.is
að fáir virkjanakostir hér á landi þoli svo stuttan tíma.
Daði segir mjög hæpið að ætla sér að stytta leigutímann
og taka upp auðlindagjöld fyrir nýtingu á raforku á sama
tíma. Stuttur leigutími geri orkufyrirtækjunum enn erf-
iðara að greiða auðlindagjöld.
Of stuttur leigutími hindri arðbærar framkvæmdir auk
þess sem langur leigutími vinni gegn svokölluðum leigj-
endavanda, þar sem skammtímahagsmunir leigutaka séu
aðrir en langtímahagsmunir leigusala.
Stytting drægi úr arðsemi
Hagfræðingur segir að fáir virkjanakostir hér á landi
stæðust arðsemiskröfur færi leigutíminn niður í 20-25 ár
Daði Már
Kristófersson
Þjóðkirkjunni hefur ekki tekist að selja eða leigja Kap-
ellu ljóssins á Ásbrú. Kapellan var auglýst í vikunni
með ýmsum eignum Þróunarfélags Keflavíkurflug-
vallar, svo sem kvikmyndaveri Atlantic Studios, And-
rews-leikhúsinu og skotheldri samskiptamiðstöð.
Varnarliðið byggði Kapellu ljóssins 1985 og kom þar
upp aðstöðu fyrir mörg og ólík trúarbrögð. Kirkjumun-
ir voru fjarlægðir þegar varnarliðið fór og kapellan
mun hafa verið afhelguð.
Þjóðkirkjan keypti húsið af Þróunarfélagi Keflavík-
urflugvallar á árinu 2007. Hugmyndin var að nota að-
stöðuna til að þjóna ört vaxandi byggð á gamla varn-
arsvæðinu en fyrst og fremst fyrir Stofnun dr.
Sigurbjörns Einarssonar biskups. Hlutverk hennar átti
að vera að vinna að rannsóknum og fræðslu í trúar-
bragðafræði og guðfræði, ekki síst til að auka þekkingu
og skilning á mismunandi trúarbrögðum heimsins.
Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri
kirkjuráðs, segir að þessum áformum hafi verið frestað
vegna þrengri fjárhags kirkjunnar. Nú er ekki lengur
gert ráð fyrir að Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar
hafi aðsetur þarna enda er Kapella ljóssins ein þeirra
fasteigna sem kirkjuþing 2010 ákvað að bjóða til sölu.
Kirkjan keypti kapelluna ásamt þremur íbúðum í
raðhúsum á Vellinum á 155 milljónir. Keilir var með
húsið á leigu en kapellan hefur nú staðið auð um tíma.
Einhverjar fyrirspurnir hafa borist um leigu á kapell-
unni og kaup á tveimur íbúðanna en ekkert orðið úr
viðskiptum. helgi@mbl.is
Kapella ljóssins til sölu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kapella ljóssins Keilir var með starfsemi sína í Kapellu
ljóssins í upphafi en hefur nú flutt annað á Ásbrú.
Ekki lengur gert ráð fyrir
Stofnun dr. Sigurbjörns
Áfrýjunarnefnd
neytendamála
hefur nú til
umfjöllunar
kæru ÁTVR
gegn Neyt-
endastofu
vegna ákvörð-
unar hennar
um að synja
ÁTVR um að-
lögunarfrest að nýjum stöðlum
Evrópusambandsins um sjálf-
slökkvandi sígarettur.
Forsaga málsins er sú að þann
17. nóvember 2011 varð óheimilt
að selja og markaðssetja á EES-
svæðinu sígarettur sem ekki eru
sjálfslökkvandi. Tilvísun í staðal
þess efnis var birt í stjórnartíð-
indum ESB sama dag. Því kynnti
Neytendastofa þetta bann á
heimasíðu sinni 18. október og
með bréfi dagsettu 28. október til
40 aðila sem höfðu flutt inn sígar-
ettur.
Vildu fá frest
til að selja birgðir
Þann 8. nóvember sendi ÁTVR
Neytendastofu bréf þar sem það
var harðlega gagnrýnt að ekki
hefði verið gefinn sanngjarn aðlög-
unartími að breytingunni hér á
landi. Krafðist fyrirtækið að
minnsta kosti átta mánaða aðlög-
unarfrests og áskildi sér rétt til að
selja birgðir sínar án þess að vera
beitt viðurlögum.
Þessari kröfu hafnaði Neyt-
endastofa á þeim forsendum að
hún hefði ekki völd til að veita
slíkan frest og gefa fyrirheit um
að framfylgja ekki ákvæðum vöru-
öryggislaga.
Ákvörðuninni áfrýjað
Í kjölfarið áfrýjaði ÁTVR þess-
ari ákvörðun Neytendastofu til
áfrýjunarnefndar neytendamála
hinn 14. desember. Í greinargerð
Neytendastofu til nefndarinnar
vegna málsins kemur fram að
verðmæti sígarettnanna sem
ÁTVR hefur á lager og uppfylla
ekki lengur kröfur staðla nemi 200
milljónum króna, samkvæmt kæru
fyrirtækisins. kjartan@mbl.is
ÁTVR vill
frest fyrir
sígarettur
Sitja upp með
ólöglegar sígarettur
að verðmæti 200 millj.
Komdu þér í gang!
l 2ja vikna námskeið 5x í viku í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi
l Tilvalið að mæta með vinkonunum – hámark 6 í hóp
l Leiðbeiningar um mataræði
l Mæling og vigtun í byrjun og enda námskeiðs
Verð aðeins kr. 10.000.
Barnagæsla - Leikland JSB
Velkomin í okkar hóp!
telpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Stutt og strangt
Skráning alltaf í gangi
í síma 581 3730!
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
S&S
stutt ogstrangt
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Aðalfundur Samorku lýsti í
ályktun í gær yfir vonbrigðum
með stöðuna og ferlið við gerð
rammaáætlunar um orkunýt-
ingu næstu árin. Í ágúst í fyrra
hefði þegar verið vikið frá fag-
legri forgangsröðun verkefn-
isstjórnar, málið væri nú öðru
sinni statt í ógegnsæju samn-
ingaferli hjá stjórnvöldum.
Fundurinn ítrekaði andstöðu við
að auðlindamál yrðu færð undir
umhverfisráðuneytið.
Vonbrigði
RAMMAÁÆTLUN