Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 38
38 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012 Orð dagsins: Reglur þínar eru dásam- legar, þess vegna heldur sál mín þær. Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fá- vísa vitra. (Sl. 119, 129-130.) Víkverji var staddur áviðskiptaþingi Viðskiptaráðs um daginn, þessu sem forsætis- ráðherrann nennti ekki að mæta á. Magnað að sá sem í það minnsta þykist stýra þessu landi skuli ekki svo mikið sem mæta á þing Viðskiptaráðs, en þar er það fólk samankomið sem leggur mest af mörkum við að reisa þjóðfélagið við. Að forsætisráðherrann skyldi ekki nenna að mæta gerir ekki annað en ýta undir þá kenningu að þjóðfélagið sé að rísa þrátt fyr- ir þessa ríkisstjórn en ekki vegna hennar. x x x Það áhugaverðasta við svonaþing eru hugmyndirnar sem lagðar eru þar fram. Sérhver við- skiptamaðurinn sem hélt þarna er- indi hafði skarað fram úr á sínu sviði og öðlast reynslu sem hann var tilbúinn að deila með öðrum. Hugmyndir þeirra voru misjafnar en allar augljóslega settar fram af reynslu og miklum vilja til að rétta þjóðfélaginu hjálparhönd og leggja sitt af mörkum við upp- bygginguna. x x x Víkverja, sem áhugamanni umsamfélagsmál og hagkerfi þjóða, fannst einstaklega áhuga- vert að sitja þetta þing. Sumir vildu henda krónunni, aðrir alls ekki. Sumir vildu auka framlag og stuðning ríkisins til einhverra mála, aðrir vildu minnka hann. Þegar best lét á velmektarárunum fyrir hrun var þessi samkoma þekkt að hroka enda virtust fram- sókn viðskiptamannanna engin takmörk sett. En svo komust þeir að því að þeim voru takmörk sett. x x x Núna eru gestir þingsins nærjörðinni. Áhugaverðustu ræðumennirnir voru menn hjá fyr- irtækjum sem lifðu hrunið af og blómstra í dag. Það sem veldur mestu áhyggjunum er að þau fyr- irtæki eru nú að hrökklast úr landi. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 fín klæði, 4 bolta, 7 sælu, 8 slóttug, 9 máttur, 11 verkfæri, 13 vaxa, 14 múlarnir, 15 flói, 17 fisk- urinn, 20 skip, 22 kind, 23 snákur, 24 guðs, 25 fræði. Lóðrétt | 1 verð að gera, 2 bylgjan, 3 ský, 4 höfuð, 5 glæð- ir, 6 siður, 10 halda fund, 12 megna, 13 hávaða, 15 brjósts, 16 sáta, 18 mannsnafn, 19 skammt frá, 20 sægur, 21 dans. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 karlmenni, 8 útveg, 9 nötra, 10 and, 11 tígur, 13 ilina, 15 stegg, 18 óðfús, 21 rós, 22 stunu, 23 kætin, 24 huldumann. Lóðrétt: 2 alveg, 3 logar, 4 efndi, 5 nýtti, 6 þúst, 7 mana, 12 ung, 14 lið, 15 sess, 16 efuðu, 17 grund, 18 óskum, 19 fitin, 20 senn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 18. febrúar 1875 Eldgos hófst í Sveinagjá á Mý- vatnsöræfum. Sumir telja það undanfara Öskjugossins rúm- um mánuði síðar. 18. febrúar 1885 Snjóflóð féll úr Bjólfstindi á fjórtán íbúðarhús á Seyðisfirði og varð 24 mönnum að bana. „Er það nærri því furða að eigi fórust fleiri menn því að í þessum húsum bjuggu um 90 manns,“ sagði í Norðanfara. 18. febrúar 1910 Tuttugu manns fórust er snjó- flóð féll úr Búðarhyrnu á byggðina í Hnífsdal, margir slösuðust og eignatjón varð mikið. „Eldsnöggt eins og byssuskot dundi það yfir, eng- inn fékk minnsta svigrúm til þess að forða sér,“ sagði í vikublaðinu Vestra. 18. febrúar 1959 Vitaskipið Hermóður fórst í stormi og stórsjó undan Höfn- um á Reykjanesi með allri áhöfn, tólf manns. Skipið var á leið frá Vestmannaeyjum þar sem það hafði verið við störf á vegum Landhelgisgæslunnar. 18. febrúar 2000 Kvikmyndahúsin í Reykjavík fóru að sýna kl. 16, 18, 20, 22 og 24 í staðinn fyrir að hefja sýningar klukkustund fyrr, eins og tíðkast hafði um ára- bil. 18. febrúar 2003 „Hrikalegar vindhviður ollu milljónatjóni á Seyðisfirði,“ að sögn Morgunblaðsins. Meira en þrjátíu hús skemmdust og einnig tíu bílar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Það hefur gengið á ýmsu í lífinu og kraftaverkin orðin mörg. Það merkilegasta er að konan mín, Margrét Einarsdóttir, hefur þolað mig í 36 ár,“ segir Jón Sigurðsson á Blönduósi. Hann fæddist í Reykjavík fyrir 60 árum og sleit barnsskónum í Laugarneshverfi í ævintýrum og öryggi, en síðar lá leiðin norður. Þar starfaði Jón sem ráðunautur, er ötull fréttaritari Morgunblaðsins og starfar nú sem umboðsmaður TM. „Gæfan hefur hreinlega lagt mig í einelti,“ segir Jón á bloggsíðu sinni. Jón fagnar sextugsafmæli með vandamönnum og vinum í Ósbæ í kvöld og er þakklátur á þessum tímamótum. „Það hefur svo sem gengið á ýmsu. Þegar ég varð fertug- ur töluðu gárungarnir um að það sýndi hroka að ég skyldi fagna af- mælinu í einu stærsta húsi landsins. Þá lá ég á Borgarsjúkrahúsinu vegna kransæðastíflu. Einu sinni fór ég til Parísar, en þá tók járn- brautalest upp á því að hrifsa mig með sér. Ég dvaldi því í París um tíma án þess að sjá Eiffel-turninn. Eitt sjónvarpskvöld heima í stofu tók hjartað upp á því að fara á yfirsnúning og slá 240 slög. Ég þurfti að fá rafstuð beint úr Blönduvirkjun. Ég var með meðvitund og þetta var hrikalega sárt, en hjartað náði takti á ný eins og lífið.“ aij@mbl.is Jón Sigurðsson á Blönduósi sextugur Kraftaverkin eru orðin mörg (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Gefðu þér tíma til að komast í burtu frá erli hversdagsins því þú verður að öðlast hugarró með einhverjum hætti. Taktu áhættu í nýrri leið til fjáröflunar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þetta er góður dagur til að sinna verk- um sem krefjast einbeitingar og sjálfsaga. Kurteisin kostar ekki neitt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú þarft að beina athygli þinni að málum sem snerta heimilið, fjölskylduna og þína nánustu. Dragðu úr óreiðu í lífi þínu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú verður ein/n á ferð í dag en ekki endilega einmana. Reyndu að hitta á þau sem eru líklegust til að færa þér einhver skemmti- legheit. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það liggur almennt vel á fólki í dag og því er þetta góður dagur til að njóta samvista við vinina. Er ágreiningur uppi um aðferðir? Ekki ögra neinum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Fólk beinir sjónum sínum að þér, sem gæti verið gott – en líka vont. Aginn sem þú beitir á einu sviði lífs þíns á eftir að smita út frá sér. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þetta er góður dagur fyrir stutt ferðalag, eða langt, eigir þú tök á því að bregða þér frá. Sýndu hugrekki og vertu óhefðbundinn, nýj- ungagjarn og sérstakur. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú munt komast yfir upplýsingar sem þú áttir ekki að fá. Eftir það er betra að taka upp léttara hjal. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Áform þín um að bæta heimilið eða fjölskylduna munu fá þann stuðning sem þú hefur óskað eftir. Segðu hvað þér finnst en ekki reyna að þröngva skoðunum þínum upp á aðra. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú verður sennilega beðinn um að taka þátt í listrænu verkefni af einhverju tagi á næstunni. Með festu tryggir þú frama þinn. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það hefur mikið að segja að sam- starfsmenn séu samhentur hópur. Sýndu öðrum þolinmæði og láttu ekki skapið hlaupa með þig í gönur. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Gættu þín í umgengni við aðra, eink- um þá sem þú hefur ekki ástæðu til að telja á þínu bandi. Haltu ótrauður áfram. Stjörnuspá Örn Geirsson er áttræður í dag, 18. febr- úar. Í tilefni dagsins tekur hann á móti vin- um og vanda- mönnum í saln- um í Gullsmára 13 í dag kl. 17. Gestum er bent á að koma með góða skapið en blóm og gjafir af- þakkaðar. 80 ára Sudoku Frumstig 9 7 2 1 9 6 8 9 6 3 5 8 1 6 5 2 3 5 2 9 6 3 5 2 8 7 9 2 1 5 6 4 3 9 8 1 4 3 6 1 5 2 3 1 5 3 9 8 6 8 3 2 8 7 2 3 7 6 4 2 4 3 1 4 9 5 6 2 8 6 3 5 7 8 1 5 9 5 4 9 6 3 8 1 7 2 2 6 7 1 5 4 9 3 8 3 8 1 7 9 2 6 4 5 9 3 8 4 2 1 5 6 7 7 5 4 9 6 3 8 2 1 6 1 2 5 8 7 3 9 4 1 2 5 3 4 6 7 8 9 8 9 6 2 7 5 4 1 3 4 7 3 8 1 9 2 5 6 6 8 9 3 2 4 5 7 1 1 3 4 6 5 7 2 9 8 7 2 5 9 8 1 6 4 3 8 4 2 5 6 3 7 1 9 9 1 6 8 7 2 4 3 5 5 7 3 4 1 9 8 2 6 3 6 1 7 4 5 9 8 2 4 9 8 2 3 6 1 5 7 2 5 7 1 9 8 3 6 4 7 8 6 3 5 2 1 4 9 4 1 2 9 7 6 8 3 5 3 5 9 8 1 4 7 2 6 5 6 3 2 9 8 4 7 1 1 7 8 5 4 3 6 9 2 9 2 4 7 6 1 5 8 3 6 9 1 4 2 7 3 5 8 8 4 5 1 3 9 2 6 7 2 3 7 6 8 5 9 1 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 18. febrúar, 49. dagur ársins 2012 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Kyrrlát fegurð. Norður ♠ÁG872 ♥G4 ♦ÁK10 ♣643 Vestur Austur ♠D10653 ♠K94 ♥D1053 ♥K876 ♦652 ♦74 ♣8 ♣K752 Suður ♠-- ♥Á92 ♦DG983 ♣ÁDG109 Suður spilar 6♦. „Að lesa bridsþátt er eins og að horfa á mynd eftir Tarantino,“ segir Zia og hefur nokkuð til síns máls: Skiptingarófreskjur fara á kreik (slæm lega), háspilum er varpað fyrir borð (afblokkering), öxin reidd til höggs (dobl) og sagnhafa slátrað í miskunn- arlausu blóðbaði (1400 niður). Inn á milli bregður þó fyrir róm- antískari myndum, þar sem kyrrlát fegurð svífur yfir vötnunum. Zia var hér sagnhafi í tígulslemmu og fékk út einspilið í laufi. Fegurðin hljóða liggur í tímasetn- ingunni: Ekki má taka nema eitt tromp áður en byrjað er að svína í laufinu. Vestur stingur vissulega, en trompin skila sér öll í næsta slag og þá er óhætt að endurtaka laufsvíninguna, henda hjarta í frílauf og trompa hjarta. Með ♠Á skilar þetta tólf slögum. Flóðogfjara 18. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.48 3,4 10.15 1,1 16.17 3,1 22.30 0,9 9.15 18.10 Ísafjörður 5.55 1,8 12.21 0,5 18.18 1,6 9.29 18.05 Siglufjörður 1.40 0,5 7.56 1,2 14.18 0,2 21.00 1,1 9.12 17.48 Djúpivogur 0.41 1,7 7.09 0,6 13.07 1,5 19.19 0,4 8.47 17.37 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið 1. e4 c6 2. c4 d5 3. exd5 cxd5 4. d4 Rc6 5. Rc3 Rf6 6. Bg5 dxc4 7. d5 Re5 8. Dd4 h6 9. Dxe5 hxg5 10. Bxc4 g4 11. O-O-O Hh5 12. Dd4 g6 13. Rge2 Bh6+ 14. Kb1 Bg7 15. Rg3 Hh7 16. Dd3 Bd7 17. d6 e6 18. Rb5 Kf8 19. Rc7 Hc8 20. Hhe1 Re8 Staðan kom upp á Skákþingi Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Ólafur G. Jónsson (1870) hafði hvítt gegn al- þjóðlega meistaranum Birni Þorfinns- syni (2406). 21. Bxe6! Df6 22. Dd2?? Hvítur hefði staðið til vinnings eftir 22. Db3. Eftir textaleikinn er taflið betra á svart. 22…fxe6 23. He4?! Kg8 24. Rxe6? Bxe6 25. Hxe6 Dxe6 26. He1 Be5 27. Re4 Rxd6 28. Rg5 Df5+ 29. Ka1 Bxb2+ 30. Dxb2 Dxg5 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.