Morgunblaðið - 05.03.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.03.2012, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2012 ✝ Trausti Krist-jánsson fædd- ist í Einiholti í Biskupstungum 17. ágúst 1936. Hann lést 8. febr- úar 2012. Foreldrar hans voru hjónin Krist- ján Þorsteinsson frá Lambhúskoti, f. 24.7. 1891, d. 20.10. 1951 og Arnbjörg Jónsdóttir, f. 16.3. 1900, d. 20.8. 1978 frá Ein- iholti. Systkini Trausta eru Þóra Kristjánsdóttir, f. 17.9. 1923, Jón Kristjánsson, f. 19.8. 1924, d. 29.6. 1935, Ingibjörg Kristjánsdóttir, f. 28.2. 1928, d. 5.1. 2012, Vigdís Kristjáns- dóttir, f. 18.11. 1932, Jón Egg- ert Kristjánsson, f. 23.5 1935, d. 11.10. 1935, Gunnar Héðinn Kristjánsson, f. 9.6. 1938, Har- aldur Kristjánsson, f. 18.11. 1939 og Kristín Kristjáns- Trausti ólst upp í Einiholti í Biskupstungum. Hann gekk í barnaskóla í Reykholti og eft- ir barnaskóla lá leið hans í íþróttaskóla Sigurðar Greips- sonar. Á árunum 1957-1959 stundaði hann búfræðinám við Bændaskólann á Hólum. Eftir búfræðinámið á Hólum sneri hann sér aftur að bústörfum í Einiholti. Trausti kynntist ástinni sinni, henni Kristínu, árið 1966 en þau gengu að eiga hvort annað ári seinna. Árið 1968 tóku þau við búinu ásamt Haraldi bróður Trausta og ráku þau saman félagsbú til ársins 1986. Voru þau með mjög fjölbreyttan búskap á jörðinni en má þar helst nefna kýr, svín, kindur, hænur og hesta sem voru í miklu uppá- haldi hjá honum. Í framhaldi af því fór hann að einbeita sér að svínaræktinni. Trausti studdi vel við eiginkonu sína í ferðamennskunni sem byrjaði í Aratungu og ráku þau seinna saman Tjaldmiðstöðina á Laugarvatni frá árinu 1998 til ársins 2006. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. dóttir, f. 16.4. 1942. Hinn 25. mars 1967 giftist Trausti Kristínu Ernu Hólmgeirs- dóttur. Börn þeirra eru: 1) Ágústa Björk, f. 30.5. 1967, maki Aziz Naili og eiga þau saman einn son; Adam Sami Naili og á Ágústa einn son úr fyrra sambandi, Óskar Mána Atlason. 2) Arnbjörg, f. 3.6. 1969, maki Guðjón Björn Guð- björnsson og eiga þau saman einn son, Jón Trausta Guð- jónsson. 3) Helena, f. 30.8. 1974 og á hún tvo syni, Trausta Rafn Henriksson og Gunnar Héðin Brynjólfsson. 4) Kristján Einir, f. 9.7. 1977, maki Guðrún Erna Þórisdóttir og eiga þau saman eina dótt- ur, Kristínu Maríu. Lækurinn Ég er að horfa hugfanginn í hlýjum sumarblænum yfir litla lækinn minn, sem líður fram hjá bænum. Ó, hve marga æskustund áður hér ég dvaldi, saklaust barn með létta lund, og leggina mína taldi. Bæ ég lítinn byggði þar og blómum utan skreytti. Yfir tún og engjarnar oft ég læknum veitti. Nú er ekkert eins og fyr; á öllu sé ég muninn: löngu týndir leggirnir og litli bærinn hruninn. Æska hverfur. Yndi dvín. Allt er líkt og draumur. Áfram líður æfin mín eins og lækjarstraumur. Meðan æðum yljar blóð og andinn má sig hræra, skal ég syngja lítil ljóð læknum silfurtæra. Þegar eg er uppgefinn og eytt hef kröftum mínum, langar mig í síðsta sinn að sofna’ á bökkum þínum. (Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum.) Þú varst algjör snillingur, elsku pabbi minn, og erfitt að sjá þig fara. Veikindi þín ágerð- ust síðastliðið ár en þú varst alltaf svo sterkur og sýndir aldr- ei á þér neinn bilbug. Þú vildir aldrei láta hafa áhyggjur af þér eins og sást best þegar þú sagð- ir við mömmu er hún strauk á þér bakið: „Þú þarft ekki að vor- kenna mér.“ Þetta sagðir þú á seinustu metrunum og sýndi það vel hversu sterkur þú varst og að þú vildir vera sú stoð og stytta fjölskyldunnar sem þú ávallt varst. Þú varst ekki hræddur við að kveðja þetta líf. Þú fórst þína leið eins mikið og þú gast miðað við veikindi þín og það gaf okkur mikið að geta verið hjá þér þegar þú kvaddir. Æskuminningar mínar um okkur eru margar og þú kenndir okkur systkinunum svo margt. Þú varst alltaf til staðar og tókst okkur alltaf með hvert sem þú fórst. Gleymi því aldrei þegar þú varst að temja Kóng, fyrsta hestinn sem þú gafst mér og var fæddur sama ár og ég, og þeim ófáu útreiðartúrum sem þú fórst með mig á honum. Það var ekk- ert skemmtilegra en að fá að fara með þér og spretta úr spori og fara í indíánareið eins og við kölluðum það. Mér er einnig minnisstætt þegar við fórum í ferðir saman upp í Ása í leit að indíjánum og kveiktum varðeld, gæddum okkur á nesti og virt- um landið fyrir okkur. Ég gæti talið upp endalausar góðar minningar um stundir okkar saman en þær gætu fyllt heila bók. Það er erfitt að kveðja þig, besta föður sem ég hefði getað hugsað mér, ekki síst hversu fljótt þú fórst frá okkur. Við huggum okkur við það að þann- ig vildir þú hafa það, ekkert kvein eða væl og við virðum það. Ég vona að þú hafir það gott þarna hinum megin og fylgist með okkur með bros á vör. Vonandi hittumst við aftur á gresjunum miklu. Þinn sonur, Kristján Einir. Mig langar til að minnast mágs míns í nokkrum orðum Þegar Kristín systir mín gift- ist Trausta og fluttist austur fór ég fljótlega með henni og gerð- ist barnapía, þá 10 ára gömul og bjó þar alfarið í sex ár ásamt því að dveljast þar meira og minna alla tíð, enda mörg sameiginleg áhugamál sem við Trausti áttum og þá sérstaklega hestar enda lifðum við og hrærðumst í þeim alla tíð ásamt því að hann sinnti sínum búskap. Það streyma endalausar minningar upp í huga minn, minningar um upp- vaxtarár mín á Einiholti og alla þá tilsögn og lærdóm sem Trausti kenndi mér í umgengni og virðingu fyrir dýrum og jörð- inni. Eftir að ég giftist manni mín- um Þorbirni (Tobba) urðu þeir svilar miklir vinir og vorum við ætíð með annan fótinn í Ein- iholti. Við vorum þar iðulega þegar Trausti og Kristín fóru í frí til útlanda, við hjónin bjugg- um um tíma á Árbæjarhjáleigu og rákum þar svínabú og nutum þá mikillar hjálpar og ráðgjafar frá Trausta. Alla tíð var þó hestamennska og ræktun á hinu eina og sanna hestakyni frá Ein- iholti, sem nefnist gráakynið, okkar sameiginlega áhugamál. Við hjónin munum alltaf minnast Trausta með virðingu og vinarhug og við viljum kveðja hann með þessum orðum: „Þú varst okkar besti vinur og fé- lagi.“ Elsku Kristín, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur til þín, barna og barnabarna. Anna Linda Steinólfs- dóttir og Þorbjörn Guðmundsson. Fallinn er frá svili og félagi, Trausti Kristjánsson bóndi frá Einiholti í Biskupstungum. Það kemur margt upp í hug- ann þegar vinur og félagi fer eftir rúmlega 40 ára samleið, við Trausti vorum svilar, hann var bóndi, en ég er sjómaður og því lágu leiðir okkar ekki saman, oft um langan tíma, það var því mikið um að tala og mikið fjör þegar fjölskyldurnar hittust, það var og er alltaf gaman að koma austur í Einiholt og oft glatt á góðra vina fundum. Trausti var sannur bóndi, maður sem skildi og lifði með náttúrunni og öllu því sem hún býður, enda er ekki hægt annað en að mótast og skapast af þeirri fjallasýn sem hann naut allt frá fæðingu til dauðadags, sá fjallahringur og ásarnir í austri í landi Einiholts sem mað- ur sér frá Einiholti er einstök. Trausti var maður sem trúði á það sem náttúran felur í sér, allt líf, hann trúði á heimstréð Yggdrasil, hinn sígræna ask sem teygir rætur sínar um allan heim. Trausti var Ásatrúar, eða það sem kallað er heiðinn, en það er einmitt þeirra boðskapur sem lýsir honum best, sá siður byggist á umburðarlyndi, heið- arleika, drengskap og virðingu fyrir náttúrunni og öllu lífi. Við hjónin vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að ferðast með Trausta og Kristínu, jafnt inn- anlands sem utan, og voru það allt ánægjulegar ferðir. Sérstak- lega eru minnisstæðar ferðirnar um okkar eigið land þar sem gist var á tjaldstæðum og setið var við eld á kvöldin og rædd landsins mál en Trausta var annt um landið okkar og fornar hefðir. Við vottum Kristínu og fjöl- skyldunni allri okkar dýpstu samúð. Minningin um Trausta mun lifa með okkur sem hann þekktum, eins og segir í Háva- málum. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Kveðja, Ægir Franzson og Sig- ríður Steinólfsdóttir. Trausti Kristjánsson ✝ Guðbjörg Sig-urbjartsdóttir (Bugga) fæddist á Geymisvöllum við Háteigsveg í Reykjavík 14. maí 1951. Hún varð bráðkvödd á heim- ili sínu laugardag- inn 18. febrúar 2012. Foreldrar hennar voru Unn- ur Sjöfn Helga- dóttir saumakona í Reykjavík, f. 25. mars 1913 á Staðarhöfða Innri-Akraneshr., d. 11. októ- ber 2003, og Sigurbjartur Guðmundsson verkamaður í Reykjavík, f. 22. september 1908 í Austurhlíð Gnúpverja- hreppi Árn., d. 12. júlí 1966. Systkini Guðbjargar eru Svav- ar Bergdal Sigurbjartsson, f. 17. október 1936, d. 9. apríl 1970, Jenný Sigurbjartsdóttir (tvíburasystir), f. 14. maí 1951, Steinarsson, f. 16. mars 1995, barnsfaðir og fyrrv. sambýlis- maður, Steinar Már Þórisson, f. 9. september 1968, Dagbjört Sunna Kristmundsdóttir, f. 4. febrúar 2008, og fóstursonur, Guðmundur Már Kristmunds- son, f. 1. júlí 1999. Sambýlis- maður Áslaugar er Krist- mundur Jón Hjaltason, f. 2. ágúst 1969. Guðbjörg giftist 21. janúar 1978 Herði Jónssyni, f. 20. janúar 1955. Þau slitu sam- vistum. Sonur Guðbjargar og Harðar er Örvar Harðarson, f. 28. desember 1977. Dætur Örvars eru Díana Dögg, f. 8. nóvember 2001, barnsmóðir Hrafnhildur Jóhannesdóttir, f. 19. október 1982, og Áslaug Tanja, f. 30. janúar 2011, barnsmóðir Petra Sigrún Jós- epsdóttir, f. 22. mars 1981. Guðbjörg ólst upp á Geymisvöllum við Háteigsveg í Reykjavík, fór ung að árum að vinna, vann ýmis verslunar- og þjónustustörf, en mestan hluta ævinnar var hún hús- móðir. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. d. 3. apríl 1993, og hálfsystkini sam- mæðra eru Ágústa Hulda Baldvins- dóttir, f. 28. mars 1943, og Helgi Baldvinsson, f. 6. mars 1945, og hálfsystkini sam- feðra eru Birgir Sigurbjartsson, f. 8. apríl 1931, maki Helga Svandís Helgadóttir, f. 11. október 1935, Bára Eyfjörð Sig- urbjartsdóttir, f. 2. júlí 1931, d. 16. mars 2006, og Inga Sig- urbjörnsdóttir, f. 26. ágúst 1934, maki Laurence James Scheer, f. 27. júlí 1933. Guðbjörg eignaðist dótt- urina Áslaugu Hallvarð- sdóttur, f. 27. júlí 1973, barns- faðir Hallvarður Agnarsson, f. 21. febrúar 1954. Börn Ás- laugar eru Ingólfur Örvar Mamma! Fallegra eða inni- haldsríkara orð er ekki til í öllum heiminum. Mamman huggar, verndar, græðir, styrkir og veit ráð þegar á þarf að halda. Þú varst mjög hjartahlý, blíð og saklaus sál. Þú gast ekki sagt nei, máttir ekki sjá neitt aumt, bauðst alltaf fram aðstoð að fyrra bragði og kvartaðir aldrei yfir neinu. Barngóð varstu, dundaðir með barnabörnunum tímunum saman, maður fann að tíminn með þeim gaf þér mikið. Einn- ig varstu mikill dýravinur, þú tókst Skugga okkar undir þinn verndarvæng og þú dekraðir mikið við hann. Ég man enn sögurnar sem þú sagðir okkur frá Kúbba þínum sem þú áttir sem barn, hann hafði verið í miklu uppáhaldi. Ég veit bara ekki hvernig ég get lifað án þín, þú varst mér svo mikils virði, þú varst mamma mín og besti vinur. Ég á bara eina ósk og hún er sú að hafa fengið meiri tíma með þér og að þú hefðir fengið meiri tíma með barnabörnun- um sem sakna þín mikið. Litla skilur auðvitað ekki neitt, hún skilur ekki að amma Bugga er farin og að hún fari nú ekki að koma bráðlega í heimsókn. Það var erfitt að rifja upp ein- hverja eina minningu. Allar minningarnar eru góðar. Ég man það eins og það hefði gerst í gær þegar ég skreið upp í rúm til þín sem barn, unglingur og má segja fram eftir öllum aldri og kúrði hjá þér. Það var svo gott að kúra í hálsakotinu þínu og ég man ennþá tilfinninguna, hvað mér leið vel, öryggistilfinninguna sem umvafði mig þá. Einnig áttum við góða tíma þegar við settum tónlist á og þá skellt- um við okkar á gólfið heima hjá mér eða þér, þér fannst svo óskaplega gaman að syngja og dansa, þú naust svo augnabliksins. Kaffihúsa- stundirnar voru í miklu uppá- haldi hjá mér, við reyndum að fara reglulega á kaffihús og fá okkur köku og kaffi og spjalla um allt og ekkert, bara að njóta þess að vera saman. Að missa móður sína er sárara en orð fá lýst. Eitt vit- um við öll með vissu að við fæðumst og við deyjum og Guð taldi að þinn tími væri kominn. Takk fyrir að vera alltaf til staðar þegar ég þurfti á þér að halda, takk fyrir að vera þú – alltaf eins og þú varst. Takk fyrir að vera til staðar fyrir Ingólf þegar hann þurfti á þér að halda. Mamma, ég elska þig svo mikið. Þú ert engillinn minn, Guð geymi þig, minning þín lifir í hjarta mér. Sjáumst síðar og við munum taka sveiflu saman þegar minn tími er komin. Ávallt þín, Áslaug. Elsku mamma. Það verður erfitt að vera án þín, þú hjálpaðir mér svo oft þegar ég þurfti á því að halda. Ég mun ávallt minnast þess hvað ég sagði við þig þegar ég fór í fyrsta skipti til fósturfor- eldra minna, ég hvíslaði í eyra þitt: „Mamma, þú verður alltaf númer eitt.“ Ég mun ávallt minnast þess hvað það var gaman að fá þig til að hlæja og hversu oft við hlógum saman, ég vildi óska þess að ég hefði farið oftar í heimsókn til þín. Þín veikindi voru þér og okkur öllum erfið, en ég veit að þú ert komin á betri stað. Þú ert frjáls. Ég mun hugsa til þín á hverjum degi og kveð þig með söknuði í hjarta. Þinn sonur, Örvar. Elsku Bugga mín. Efst í huga mér á stund sem þessari er þakklæti fyrir allar góðu stundirnar okkar saman, en þó fyrst og síðast fyrir að hafa átt þig að. Það var alltaf svo gott að koma heim til þín og eiga með þér stund, þessi ár sem við áttum saman eru ómetanlegur tími fyrir mig og ég mun varð- veita minninguna vel. Þitt glaðværa eðli, þín gefandi hönd, gladdi okkar hjörtu, batt vináttubönd. En böndin ei rofna þó burt fari önd og berst síðan tær yfir frelsarans lönd. Við munum þig ávallt og minningin þín með okkur lifir, er stjarna sem skín. Þinn kærleikur ríkti svo heill og svo hlýr. Hann í oss lifir og að eilífu býr. (Höf. ók.) Áslaug og Ingólfur, ég votta fjölskyldunni allri og vinum okkar dýpstu samúð og óska þess að Guð veiti ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Steinar Már Þórisson. Guðbjörg Sigurbjartsdóttir HINSTA KVEÐJA Uppáhaldssálmur ömmu Buggu: Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson) Ástarkveðjur, Guðmundur Már og Dagbjört Sunna. Hún amma var mjög góð amma. Ég man eftir henni sem brosandi og kærleiks- ríkri ömmu. Við gengum oft Laugaveginn saman og áttum gott spjall. Ég elska þig, amma, og Guð geymi þig. Ingólfur Örvar. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Neðst á for- síðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skila- frest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einn- ig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningargrein- unum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín undir grein- unum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera um- sjónarfólki minningargreina við- vart. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.