SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Blaðsíða 4
4 4. mars 2012 Vinstriflokkurinn í Þýskalandi hef- ur teflt Beate Klarsfeld fram í emb- ætti forseta. Möguleikar hennar eru hverfandi, en engu að síður verður valið á milli hennar og Joac- hims Gaucks þegar samkoma þingmanna og kjörmanna, sem þing sambandslandanna velja, kemur saman 18. mars. Klarsfeld er 73 ára og fæddist í Þýskalandi. Hún er þekktur nas- istaveiðari og hefur ásamt manni sínum, Frakkanum Serge, helgað líf sitt því að hafa uppi á nasistum í felum. Hún nýtur mikillar virðingar í Frakklandi þar sem þau hjón hafa búið. „Beate, þú ert birtingarmynd réttlætisins,“ sagði Nicolas Sar- kozy, forseti Frakklands, þegar hann veitti henni æðstu orðu franska ríkisins í fyrra. Í Þýskalandi er hún hins vegar einkum þekkt fyrir að hafa veitt Kurt Georg Kiesinger, fyrrverandi kanslara Þýskalands, kinnhest á þingi kristilegra demókrata 1968 eftir að hafa hrópað, „nasisti, nas- isti“. Hún var dæmd í árs fangelsi, en refsingin var síðar milduð og fang- elsisvistin bundin skilorði. Kinnhesturinn vakti miklar um- ræður um fortíð Kiesingers í þriðja ríkinu. 68 kynslóðin setti Klarsfeld á stall, en almenningur leit hana hornauga. Nasistaveiðarinn sem löðrungaði kanslarann Beate Klarsfeld nýtur virðingar í Frakklandi en í Þýskalandi muna menn 45 ára gamlan kinnhest, sem hún veitti forsetanum. AP Joachim Gauck sat í leigubíl í Berlín sunnu-daginn 19. febrúar þegar síminn hringdi. Viðstýrið á leigubílnum sat Vadim Belon, fæddurí Rússlandi. Fyrir honum var Gauck bara gráhærður maður með ferðatösku, sem hann hafði tekið upp í bílinn á Tegel-flugvelli. „Ég lækkaði í tónlistinni. Sem leigubílstjóri heyrir maður aldrei alveg hvað fólk segir í símann, en ég heyrði að hann sagði: „Allt í lagi, ég samþykki þetta. Ég skal gera það,““ sagði Belon við dagblaðið Bild, sem kallar hann frægasta leigubílstjóra Þýskalands. Hann segir að augnabliki síðar hafi Gauck sagt við sig: „Þú ert nú með hinn nýja forseta sam- bandslýðveldisins í bílnum hjá þér. Við þurfum að snúa við og fara beint á skrifstofu kanslarans.“ Símtalið var frá Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, og seinna um daginn tilkynnti hún að Gauck yrði arftaki Christians Wulffs, sem hrökklaðist úr embætti 17. febrúar eftir að saksóknari hafði farið fram á að þinghelgi hans yrði aflétt svo rannsaka mætti ásakanir um að hann hefði notið fyrirgreiðslu hjá vinum sínum. Fyrir tveimur árum þegar Merkel gerði Wulff að forseta var meirihluti Þjóðverja hlynntur því að Gauck fengi embættið. Gauck er 72 ára gamall. Hann var lúterskur prest- ur í Austur-Þýskalandi og barðist þar fyrir mann- réttindum. Hann var í fararbroddi í mótmælahreyf- ingunni, sem á endanum varð til þess að Berlínarmúrinn féll 1989. Gauck fæddist árið 1940 í hafnarborginni Ro- stock. Rússneskur herdómstóll dæmdi föður hans í 25 ára fangelsi og var hann sendur í gúlagið í Síb- eríu. Gauck ætlaði að fara í blaðamennsku, en sá draumur rann út í sandinn þegar hann fékk ekki inni í þýskum fræðum í háskóla. Í staðinn fór hann í guðfræði og var vígður til prests 1967. Hann sagði einhverju sinni í viðtali að hann hefði áttað sig á því þegar hann „var níu ára að sósíalismi væri óréttlátt kerfi“. Í predikunarstólnum talaði hann fyrir frelsi og mannréttindum og málflutn- ingur hans fór ekki fram hjá stjórnvöldum og varð- hundum öryggislögreglunnar, Stasi, var sigað á hann. Þegar Þýskaland var sameinað árið 1990 snerist taflið við og Gauck fékk það verkefni að hafa yf- irumsjón með úrvinnslunni úr skjalasafni Stasi og þar með í raun uppgjörinu við fortíðina. Í skjala- safninu var að finna gögn um milljónir manna, sem nú áttu heimtingu á aðgangi að þeim upplýsingum, sem eftirlitsríkið hafði safnað um þá. Gauck gegndi starfinu til ársins 2000 og naut mikillar virðingar fyrir að hafa tekist samtímis að gera málstað sann- leika og sátta jafnhátt undir höfði. Gauck hefur sagt að hann sé „íhaldsmaður af frjálslynda vinstri vængnum“. Hann kom til greina í embætti forseta árið 2010 og naut stuðnings bæði dagblaðsins Bild og vikublaðsins Der Spiegel, fjöl- miðla, sem sjaldan eru samstiga, svo ekki sé meira sagt. Þegar Wulff sagði af sér lét Merkel undan þrýst- ingi samstarfsflokks síns, Frjálsra demókrata, og Græningja og Sósíaldemókrata úr stjórnarandstöð- unni. Merkel er frá Austur-Þýskalandi líkt og Gauck og er dóttir prests. Hún sagði að Gauck væri „sannur leiðbeinandi um lýðræði“ og hefði átt stóran þátt í að hjálpa þýsku þjóðinni að snúa bökum saman eft- ir sameininguna. Þýskir fjölmiðlar fögnuðu ákvörðuninni um að gera Gauck að forseta. Ríkissjónvarpsstöðin ZDF sagði að hann gæti „bjargað forsetaembættinu með persónu sinni“ og hrósaði Merkel fyrir að skipta um skoðun. „Tveir Austur-Þjóðverjar í efstu stöðum sambandslýðveldisins. Það er næstum því pólitískt kraftaverk,“ sagði sjónvarpsstöðin. Pólitískt kraftaverk Austurþýskur mannréttinda- frömuður í stól forseta Joachim Gauck verður væntanlega næsti forseti Þýskalands. Sérstök samkunda þingsins og fulltrúa sambandslandanna kýs forseta 18. mars. AP Joachim Gauck og Angela Merkel kanslari ræðast við. Bæði eru frá Austur-Þýskalandi. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Við fyrstu sýn mætti halda að það væri áfall fyrir Angelu Merkel að þurfa að tefla nú fram manni í embætti forseta, sem hún lagðist gegn fyrir tveimur ár- um. Ekki má hins vegar gleyma því að kosið verður í Þýskalandi á næsta ári. Samstarfsflokkurinn, FDP, mælist nú aðeins með 3% fylgi og er ekki víst að hann nái inn á þing. Ætli Merkel að sitja áfram þarf hún að finna nýjan samstarfsflokk og það gæti nýst henni vel að taka nú undir stuðning sósíal- demókrata, SPD, við Gauck. Áfall eða kænska? – fyrst og fremst ódýr! 40%afsláttur 2298kr.kg Verð áður 3849 kr. kg Ungnauta Roast Beef GOTT VERÐ

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.