Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 8
HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Nú finnst mér vera fínn tími til þess að koma aftur í Aftureldingu. Fyrir hendi eru margir efnilegir leikmenn í bland við reyndari leik- menn. Mig langar til að aðstoða liðið og leikmenn við að eflast og taka skref á fram á við sem lið,“ sagði handknattleiksmaðurinn Örn Ingi Bjarkason eftir að hann skrif- aði undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Aftureldingu, í gær. Örn hefur síðustu fjögur árin verið í herbúðum FH og varð m.a. Íslandsmeistari með Hafnarfjarð- arliðinu fyrir ári og hafnaði í öðru sæti á dögunum eftir úrslitarimmu við HK um Íslandsmeistaratitilinn. „Fjögurra ára samningur minn við FH rann út á dögunum og það kom eiginlega ekkert annað til greina en fara aftur til baka til Aftureldingar,“ sagði Örn Ingi ennfremur en hann var eini leik- maður FH sem var valinn í lið árs- ins í N1-deildinni sem kynnt var á lokahófi Handknattleikssambands- ins á laugardagskvöldið. Á mörgum í FH mikið að þakka „Mér gekk mjög vel á þeim fjór- um árum sem ég var hjá FH og hef vaxið ár frá ári sem leikmaður. Ég á þar af leiðandi mörgum hjá FH mjög mikið að þakka. En ég bý í Mosfellsbæ og vil vera þar. Síðustu fjögur ár hef ég keyrt nán- ast alla daga ársins á milli Mos- fellsbæjar og Hafnarfjarðar til æf- inga og leikja. Það tekur sinn toll og er ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að snúa til baka til Aftureldingar. Auk þess höfðu margir hvatt mig til þess að snúa á ný til Aftur- eldingar og leggja mitt lóð á vogarskálarnar. Eftir fjögur góð ár hjá FH finnst mér nú vera rétti tíminn til þess,“ sagði Örn Ingi Auk samningsins við Örn fram- lengdu Davíð Svansson markvörð- ur, Hilmar Stefánsson, Jóhann Jó- hannsson og hinn stórefnilegi Böðvar Páll Ásgeirsson samninga sína við Aftureldingu í gær en liðið leikur þriðja keppnistímabilið í röð í N1-deildinni á næsta keppnis- tímabili. Einnig hefur Reynir Þór Reynisson þjálfari skrifað undir nýjan samning við Mosfellinga. Mikill hugur í Mosfellingum Ásgeir Sveinsson, formaður meistaraflokksráðs Aftureldingar, segir að mikill hugugur sé í Mos- fellingum fyrir næstu leiktíð þar sem stefnan sé að sækja fram og færast nær toppliðum deild- arinnar. Mikilvægt og stórt skref í þeim áætlunum hafi verið að fá Örn Inga til baka en eins skipti gríðarlegu máli að framlengja samninga við þá leikmenn sem fyr- ir voru, ekki síst hinn efnilega Böðvar Pál, sem vakti verðskuld- aða athygli í deildinni í vetur, að- eins 17 ára gamall. Ásgeir sagði ekki loku fyrir það skotið að fleiri nýir leikmenn bætist í hópinn hjá Aftureldingu á næstu dögum. „Ekkert annað kom til greina“ Ljósmynd/Ragnar Þór Ólason Afturelding Reynir Þór Reynisson þjálfari, Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri, Hilmar Stefánsson, Örn Ingi Bjarkason, Davíð Svansson, Böðvar Páll Ásgeirsson, Jóhann Jóhannsson, og Ásgeir Sveinsson, formaður mfl.ráðs.  Örn Ingi Bjarkason aftur til Aftureld- ingar frá FH  Samdi til tveggja ára 8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is Stella Sigurðardóttir, Fram, og Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK, voru valin leikmenn ársins á lokahófi HSÍ í fyrrakvöld. Efnilegustu leikmennirnir voru Heiðrún Björk Helgadóttir, HK, og Böðvar Páll Ásgeirsson, Aftureld- ingu. Bestu þjálfararnir voru valdir Stefán Arnarson, Val, og Aron Kristjánsson, Haukum. Þá var Davíð Georgsson úr ÍR val- inn bestur í 1. deild karla og þjálfari hans Bjarki Sigurðsson besti þjálf- arinn. Lið ársins í N1-deild kvenna: Markvörður: Florentina Stanciu ÍBV Hornamenn: Dagný Skúladóttir Val og Sólveig Lára Kjærnested Stjörnunni Skyttur: Stella Sigurðardóttir Fram og Þorgerður Anna Atladóttir Val Leikstjórnandi: Ester Ósk- arsdóttir ÍBV. Lið ársins í N1-deild karla: Markvörður: Aron Rafn Eðvarðs- son, Haukum Hornamenn: Bjarki Már Elísson, HK, og Gylfi Gylfason, Haukum Skyttur: Ólafur Bjarki Ragn- arsson, HK og Bjarni Fritzson, Ak- ureyri Leikstjórnandi: Örn Ingi Bjarka- son, FH Við þetta má bæta að þau Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val, og Matthías Árni Ingimarsson, Hauk- um, þóttu bestu varnarmennirnir. Háttvísiverðlaun fengu þau Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Val, og Bjarki Már Elísson, HK. Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson þóttu besta dómaraparið. kris@mbl.is Ólafur Bjarki og Stella best í vetur  Heiðrún Björk og Böðvar Páll valin efnilegust á lokahófi HSÍ Ólafur Bjarki Ragnarsson Stella Sigurðardóttir Justin Shouse úr Stjörnunni og Pál- ína Gunnlaugsdóttir úr Keflavík voru í fyrrakvöld útnefnd bestu leik- mennirnir í Iceland-Express- deildum karla og kvenna á lokahófi Körfuknattleikssambands Íslands í Stapanum í Reykjanesbæ. Margrét Rósa Hálfdánardóttir úr Haukum og Elvar Már Friðriksson úr Njarðvík voru valin bestu ungu leikmennirnir og bestu þjálfararnir voru þeir sem stjórnuðu Íslands- meistaraliðunum, Helgi Jónas Guð- finnsson með karlalið Grindavíkur og Sverrir Þór Sverrisson með kvennalið Njarðvíkur. Aðrar viðurkenningar voru sem hér segir: Prúðustu leikmenn: Hildur Björg Kjartansdóttir, Snæ- felli, og Darri Hilmarsson, Þór Þor- lákshöfn. Bestu erlendu leikmenn: Lele Hardy, Njarðvík, og J’Nathan Bullock, Grindavík Bestu varnarmenn: Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík, og Guðmundur Jónsson, Þór Þ. Besti dómari: Jón Guðmundsson, Keflavík Úrvalslið kvenna: Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík Íris Sverrisdóttir, Haukum Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli Petrúnella Skúladóttir, Njarðvík Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR Úrvalslið karla: Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík Justin Shouse, Stjörnunni Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli Finnur Atli Magnússon, KR Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík. vs@mbl.is Shouse og Pálína bestu leikmenn Margrét Rósa Hálfdánardóttir Elvar Már Friðriksson Justin Shouse Pálína Gunnlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.